Vilja að skýrsla um hvalveiðar verði unnin upp á nýtt

Stjórn Land­verndar mót­mælir harð­lega mál­flutn­ingi sem fram kemur í nýrri skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands um hval­veiðar.

Hvalur 8
Hvalur 8 Mynd: Birgir Þór Harðarson

Stjórn Land­verndar mót­mælir harð­lega mál­flutn­ingi sem fram kemur í nýrri skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands um hval­veiðar. Stjórnin skorar á Hag­fræði­stofnun að draga skýrsl­una til baka og vinna hana upp á nýtt í sam­ráði við vist­fræð­inga. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá sam­tök­unum sem þau sendu frá sér í dag.

[links]„Í fyrsta lagi eru þær for­sendur sem skýrslu­höf­undur gefur sér í útreikn­ingum sínum af vist­fræði­legum toga og þar með langt utan hans fags­viðs. Margir vist­fræð­ingar telja þessar for­sendur úreltar,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Í öðru lagi nefnir Land­vernd að frá­leitt sé að spyrða saman nátt­úru­vernd­ar­sam­tök og hryðju­verk almennt og ekki síst í „fag­legri“ skýrslu sem fjallar um hval­veiðar, hvað þá að hvetja til laga­setn­ingar um hryðju­verk í sam­hengi við bar­áttu fyrir verndun umhverf­is­ins. Raun­veru­leg hryðju­verk bein­ist að því að drepa almenna borg­ara í þágu til­tek­ins mál­staðar. Barátta nátt­úru­vernd­ar­sam­taka sé frið­sam­leg.

Í þriðja lagi sé sú ógn sem að steðjar vegna rányrkju manna raun­veru­leg og þessi ógn krist­all­ist í bar­áttu nátt­úru­vernd­ar­sam­taka fyrir verndun hvala.

[adspot]

Í skýrsl­unni segir að milli­ríkja­við­skipti og hag­kvæm nýt­ing nátt­úru­auð­linda skipti miklu máli fyrir vel­ferð íslensku þjóð­ar­innar. Nýta þurfi nátt­úru­auð­lindir á ábyrgan hátt þannig að tryggt sé að nýt­ingin sé sjálf­bær. Íslend­ingar hafi stundað hval­veiðar af ábyrgð frá því að þær hófust að marki árið 1935. Stærð stofna hafi verið metin ásamt veiði­þoli þeirra. Þeir stofnar sem standa illa hafi verið frið­aðir. Íslend­ingar hafi verið meðal fyrstu hval­veiði­þjóða í heim­inum til að banna veiðar á hnúfu­bak og steypireyði.

„Virð­is­auki af hval­veiðum og hvala­skoðun lýsir beinum áhrifum starf­sem­innar á íslenskt efna­hags­líf. Í virð­is­auk­anum eru bæði laun og arður eig­enda fyr­ir­tækj­anna. Óbein áhrif af starf­sem­inni geta komið fram með marg­vís­legum hætti. Hval­veiðar geta til dæmis haft áhrif á stærð fiski­stofna. Hval­veiðar valda öðrum hug­hrifum hjá mörgum en veiðar á öðrum dýrum. Þær geta haft áhrif á áhuga fólks á að eiga við­skipti við hval­veiði­þjóðir, en and­staða við veið­arnar þarf að vera almenn ef hún á að rýra afkomu íslenskra fyr­ir­tækja, til dæmis í sjáv­ar­út­vegi. Í skýrsl­unni er meðal ann­ars rætt um áhrif hval­veiða á tekjur Íslend­inga af erlendum ferða­mönnum,“ segir í skýrsl­unni.

Jafn­framt kemur fram að þegar allt sé skoðað virð­ist hval­veiðar vera hluti af hag­kvæmri nýt­ingu nátt­úru­auð­linda lands­manna. Rök hnígi til þess að hag­kvæmt sé fyrir þjóð­ar­hag að haldið verði áfram að veiða hvali. Skyn­sam­legt gæti einnig verið að skil­greina fleiri teg­undir hvala sem nytja­stofna.

„Hvala­skoðun er nýt­ing á hvölum, engu síður en veiðar. Tímabært kann að vera að setja reglur um starf­sem­ina til þess, til dæmis, að tryggja að hún trufli hval­ina sem minnst og hafi ekki áhrif á fjölda þeirra á skoð­un­ar­svæðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár