Hvaða áhrif hefur stríðið á íslenska hagkerfið?

Hærra verð, minni kaup­máttur og minni tekjur úr ferða­þjón­ustu, en stór­iðjan gæti hagn­ast. Kjarninn tók saman nokkrar hugs­an­legar afleið­ingar inn­rásar Rússa í Úkraínu á íslenskt efna­hags­líf og ástæður þeirra.

Innrás Rússa í Úkraínu mun hafa slæm áhrif á efna­hags­lífið hér­lendis og auka óviss­una um þróun hag­kerf­is­ins til fram­tíðar. Frá þessu greindi Seðla­bank­inn í nýjasta rit­inu sínu, Fjár­mála­stöð­ug­leika, sem var gefið út á mið­viku­dag­inn í síð­ustu viku.

Lítill hluti þess­ara áhrifa verður þó vegna við­skipta­tengsla Íslands við Úkraínu eða Rússland, enda eru þau tak­mörkuð. Áhrifin verða fyrst og fremst óbein, en gætu þó verið veru­leg í flest­öllum öngum hag­kerf­is­ins. Hér fyrir neðan má sjá hugs­an­legar afleið­ingar stríðs­ins á nokkra þeirra.

Innfluttar vörur verða dýrari

Bæði Rússland og Úkraína eru mik­il­vægir hrá­efn­is­fram­leið­endur. Líkt og myndin hér að neðan sýnir komu 24 pró­sent af öllum hveiti­út­flutn­ingi frá lönd­unum tveimur árið 2020, auk þess sem þau áttu tólf pró­senta hlut­deild í öllum útflutn­ingi á nikkel, tíu pró­sent af útflutn­ingi olíu og þrjú pró­sent af öllum álút­flutn­ingi.

Stór hluti af hrávörum heimsins kemur annað hvort frá Rússlandi eða Úkraínu. Heimild: Trademap.org
Stór hluti af hrá­vörum heims­ins kemur annað hvort frá Rúss­landi eða Úkraínu. Heimild: Trademap.org

Þessar hækk­anir hafa svo að miklu leyti gengið til baka á síð­ustu dögum, en sam­kvæmt frétt New York Times má rekja þær lækk­anir til þess að fjár­festar búast nú við minni eft­ir­spurn frá Kína. Þó eru sér­fræð­ingar sam­mála um að mikil óvissa ríki enn um hrá­vöru­verð, það geti enn hækkað veru­lega vegna stríðs­ins.

Hér á landi má því búast við því að inn­fluttar mat­vörur og olía verða dýr­ari, en báðar vöru­teg­undir er veru­lega stór hluti af neyslu lands­manna. Með miklum olíu­verðs­hækk­unum munu aðrar inn­fluttar vörur svo einnig hækka í verði, þar sem þær koma flestar til lands­ins á skipum eða flug­vélum sem ganga fyrir olíu. Sömu­leiðis gætu vörur sem inni­halda nikkel, líkt og raf­bílar, hækkað tölu­vert í verði.

Færri túristar en stóriðjan gæti grætt

Ferða­þjón­ustu­geir­inn er einnig við­kvæmur fyrir hækk­unum á olíu­verði, þar sem þær munu leiða til dýr­ari flug­miða. Með því verður kostn­að­ar­sam­ara að koma til lands­ins og mætti því búast við að fleiri slái Íslands­för sinni á frest.

Einnig er lík­legt að ferða­menn vilji síður ferð­ast á milli landa á meðan stríð geisar í álf­unni. Líkt og Kjarninn hefur áður fjallað um gera evr­ópsk ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki ráð fyrir færri banda­rískum ferða­mönnum vegna stríðs­ins, en veru­lega dró úr bók­unum þeirra í flestum löndum Evrópu eftir að stríðið byrj­aði. Því mætti búast við hæg­ari við­spyrnu ferða­þjón­ust­unnar og mögu­lega veik­ara gengi krón­unnar, haldi stríðið áfram í langan tíma.

Áhrifin gætu hins vegar verið þver­öfug fyrir stór­iðj­una, sem myndi græða á hærra hrá­vöru­verði og veik­ari krónu. Hið opin­bera myndi einnig græða á hærra heims­mark­aðs­verði á áli, þar sem slík verð­hækkun leiðir til þess að álverin þurfa að greiða hærra verð fyrir ork­una sína. Álverðs­hækkun síð­asta árs var meg­in­á­stæða þess að Lands­virkjun skil­aði 19 millj­arða króna hagn­aði í fyrra og hyggst greiða rík­is­sjóð 15 millj­arða króna í arð­greiðslu í ár vegna þess.

Meiri verðbólga, minni kaupmáttur og meira atvinnuleysi

Þar sem hrá­vöru­verðs­hækk­anir, og þá sér í lagi olíu­verðs­hækk­anir, munu hafa áhrif á verð flestra inn­fluttra neyslu­vara má búast við auknum verð­bólgu­þrýst­ingi vegna stríðs­ins. Slíkur þrýst­ingur hefur nei­kvæð áhrif á kaup­mátt fólks, þar sem minna fæst upp úr vesk­inu ef ráð­stöf­un­ar­tekjur hald­ast óbreyttar.

Samkvæmt Gylfa Zoega, sem er hag­fræði­pró­fessor í HÍ og situr í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans, væri var­huga­vert að hækka laun í sam­ræmi við verð­hækk­anir á inn­fluttum vörum, þar sem slíkt myndi aðeins leiða til víxl­hækk­unar launa og verð­lags. Gerist það eykst verð­bólgan enn meira, sem leiðir líka til minni kaup­máttar almenn­ings.

Sömu­leiðis gæti atvinnu­leysi auk­ist hér­lendis vegna stríðs­ins. Fyr­ir­tæki gætu orðið fyrir tekju­missi og þurft að segja upp starfs­fólk ef eft­ir­spurn eftir vöru og þjón­ustu dregst mikið saman vegna minni kaup­máttar almenn­ings. Einnig gæti störfum í ferða­þjón­ust­unni fækkað ef ferða­vilji minnkar um allan heim.

Húsnæði gæti orðið enn dýrara

Þar sem inn­fluttar vörur gætu hækkað í verði vegna stríðs­ins er lík­legt að hús­næð­is­verð hækki vegna auk­ins bygg­ing­ar­kostn­aðar. Hér gætu einnig bein áhrif vegið þungt, en líkt og Við­skipta­blaðið greindi frá nýlega eru um 90 pró­sent alls steypu­styrkt­ar­járns sem flutt er inn fyrir Íslands­markað frá Hvíta-Rúss­landi, sem hefur tekið þátt í hern­að­ar­að­gerðum Rússa.

Sigurður Brynjar Pálsson, for­stjóri Byko, segir einnig í við­tali við blaðið að 40 pró­sent af öllu timbri sem fyr­ir­tækið flytji inn komi frá Rúss­landi.

Með meiri bygg­ing­ar­kostn­aði mætti búast við að nýbygg­ingar sem koma inn á mark­að­inn verði dýr­ari. Einnig gæti hvat­inn til hús­næð­is­upp­bygg­ingar dreg­ist saman, þar sem verk­takar þurfa að leggja út meiri pen­ing til að byggja hús. Hvort tveggja mun þrýsta upp hús­næð­is­verð, sem hefur nú þegar hækkað hratt vegna mik­ils eft­ir­spurn­ar­þrýst­ings og lít­ils fram­boðs af eignum á sölu.

Hins vegar gæti verið að eft­ir­spurnin eftir hús­næð­is­kaupum muni drag­ast saman á næst­unni, þar sem kaup­máttur mun minnka vegna verð­bólgu á inn­fluttum vörum. Slíkt gæti dempað þær verð­hækk­anir sem yrðu á hús­næð­is­mark­aðnum vegna meiri bygg­ing­ar­kostn­aðar.

Fleiri netárásir og hærra skuldabréfaálag

Samkvæmt Fjár­mála­stöð­ug­leika Seðla­bank­ans gæti stríðið einnig haft nei­kvæð áhrif, bæði bein og óbein, á fjár­mála­kerfið. Bein áhrif væru að öllum lík­indum fleiri netárásir og hærri fjár­magns­kostn­aður á erlendum mörk­uðum.

Bankinn segir að fjár­mála­fyr­ir­tæki hér á landi gætu þurft að efla við­búnað sinn gegn netárásum, en þeim hafi fjölgað eftir að inn­rásin í Úkraínu hófst. Einnig hefur vaxta­á­lag á erlendar skulda­bréfa­út­gáfur bank­anna auk­ist, vegna auk­innar óvissu á fjár­mála­mörk­uðum. Ef ástandið varir lengi gæti hærri fjár­mögn­un­ar­kostn­aður haft áhrif á vaxta­kjör bank­anna á lán­veit­ingum í erlendum gjald­miðlum.

Óbeinu áhrifin væru svo tengd hugs­an­legum sam­drætti í efna­hags­kerf­inu hér, en með því gæti virði útlána­safns bank­anna rýrnað nokkuð, auk þess sem van­skil gætu auk­ist. Þó segir Seðla­bank­inn að við­náms­þróttur bank­anna sé mik­ill þessa stund­ina, svo kerf­is­leg áhætta fyrir fjár­mála­kerfið er tak­mörkuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár