Íslendingar nota fjögur til fimm tonn af heitu vatni á hvern fermetra

90% alls heita vatns­ins á Íslandi fer í hús­hitun. Restin fer í baðið, sturt­una, þrif, upp­vask og svo fram­vegis. Hér eru lyk­il­tölur um vatn.

Meðalnotkun vatns á heimili er um 500 lítrar á sólarhring.
Með­al­notkun vatns á heim­ili er um 500 lítrar á sól­ar­hring. Mynd: Bára Huld Beck

Íslensk heim­ili nota árlega að með­al­tali fjögur til fimm tonn af heitu vatni á hvern fer­metra. Um 90 pró­sent fara í hús­hitun en um 10 pró­sent í bað, sturtu, þrif, upp­vask og almenna neyslu.

[links]Oft er miðað við að hver Íslend­ingur noti um 200 lítra af vatni á dag en sam­kvæmt nýrri rann­sókn, sem er í vinnslu á vegum Veitna ohf., fyr­ir­tækis sem sér um að veita raf­magni og heitu og köldu vatni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og víðar, sýna fyrstu nið­ur­stöður að lík­lega sé notk­unin minni eða um 130 til 150 lítrar á dag. Til sam­an­burðar má nefna að 60 lítrar af vatni eru not­aðir í með­alst­urtu sem tekur fimm mín­útur.

Íslend­ingar hafa mikið og gott aðgengi að vatni því það rignir vel og snjóar á land­inu. Þrátt fyrir það er vert að huga frekar að hversu mikið vatn er verið að nota, hversu mikið rennur af grunn­vatni á land­inu og hver gæði drykkj­ar­vatns eru.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítar­legri umfjöllun um íslenskt vatn hér á vef Kjarnans.

Meðalnotkun

  • Íslensk heim­ili nota árlega að með­al­tali fjögur til fimm tonn af heitu vatni á hvern fer­metra.
  • Um 90% fara í hús­hitun en um 10% í bað, sturtu, þrif, upp­vask og almenna neyslu. 
  • Með­al­notkun á heim­ili eru 500 lítrar á sól­ar­hring.
  • Oft er miðað við að hver Íslend­ingur noti um 200 lítra af vatni á dag en sam­kvæmt nýrri rann­sókn, sem er í vinnslu á vegum Veitna ohf., fyr­ir­tækis sem sér um að veita raf­magni og heitu og köldu vatni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og víðar, sýna fyrstu nið­ur­stöður að lík­lega sé notk­unin minni eða um 130 til 150 lítrar á dag.
  • 60 lítrar af vatni eru not­aðir í með­alst­urtu sem tekur fimm mín­útur.
  • Með­al­vinnsla í Heiðmörk er um það bil 700 lítrar vatns á sek­úndu.
  • Um helm­ingur þess vatns sem Veitur ohf. dreifa er nýttur í atvinnu­rekstri.

[adspot]

Grunnvatn

  • 5.000 rúmmetrar af vatni renna á sek­úndu af land­inu og þar af um 1.000 rúmmetrar af grunn­vatni.
  • Stærsti hluti grunn­vatns­ins, eða um 600 rúmmetrar á sek­úndu, kemur fram sem lind­ar­vatn á hálend­inu og sam­ein­ast jökul- og dragám þar. Afgang­ur­inn, um 400 rúmmetrar á sek­úndu, kemur fram í lindum á lág­lend­inu.
  • Forspá veð­ur­farslík­ana bendi til þess að úrkoma verði um 6.000 rúmmetrar á sek­úndu árið 2100 vegna loft­lags­breyt­inga. Jökl­arnir muni bráðna meira og hlýrra verði í veðri.

Neysluvatn

  • 97% af neyslu­vatni Íslend­inga er grunn­vatn.
  • Við reglu­bundið eft­ir­lit á árunum 2010 til 2012 greind­ist E.coli í innan við 1% sýna hjá vatns­veitum sem þjóna fleirum en 500 manns.
  • E.coli greind­ist í 6,5% sýna frá vatns­veitum sem þjóna 500 íbúum eða færri.

Hægt er að lesa nánar um stöðu vatns á Íslandi í umfjöllun Kjarnans „Bláa gullið“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vatn

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár