Ráðamenn Íslands og Bretlands funda vegna Brexit

Þrír kostir hafa verið kort­lagðir í fram­haldi af útgöngu Bret­lands úr ESB. Brexit-mál eru í for­gangi hjá íslenska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu um þessar mundir.

Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra og Aurelia Frick, utanríkisráðherra Liechtenstein, ræða saman í höfuðstöðvum EFTA í Sviss eftir leiðtogafund samtakanna 21. nóvember síðastliðinn.
Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra og Aurelia Frick, utan­rík­is­ráð­herra Liechtenstein, ræða saman í höf­uð­stöðvum EFTA í Sviss eftir leið­toga­fund sam­tak­anna 21. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Mynd: EPA

Efnt verður til fundar hátt­settra emb­ætt­is­manna breskra og íslenskra stjórn­valda í byrjun des­em­ber til að tryggja hags­muni beggja landa við útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu. Mikil vinna hefur átt sér stað á vegum ráð­herra­nefndar við að kort­leggja stöðu Íslands vegna Brexit. Málefni Brexit eru for­gangs­mál íslenskra stjórn­valda um þessar mundir, segir í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Und­an­farnar vikur hefur ráð­herra­nefndin kort­lagt stöð­una og metið mögu­leik­ana. Í meg­in­dráttum fel­ast kost­irnir í einu af þrennu: Því að Ísland geri víð­tækan frí­versl­un­ar­samn­ing við Bretland, að EFTA-ríkin geri slíkan samn­ing sam­eig­in­lega eða að aðild­ar­ríki EES og EFTA ger­ist aðilar að útgöngu­samn­ingi Breta við ESB.

„Það er ljóst að það verður að vanda vel til verka í þessu mik­il­væga máli og ekki rasa um ráð fram. Við höfum átt í reglu­bundnum við­ræðum við bresk stjórn­völd vegna við­skipta­mála okkar og ég hef átt óform­leg sam­töl við ráða­menn um stöð­una. Í byrjun des­em­ber verður jafn­framt efnt til fundar hátt­settra emb­ætt­is­manna breskra og íslenskra stjórn­valda í London þar sem farið verður yfir málin," segir Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra.

Í Frí­versl­un­ar­sam­tökum Evrópu (EFTA) eru þrjú ríki auk Íslands. Það eru Noregur, Liechtenstein og Sviss. Ísland fer nú með for­mennsku í ráð­herra­ráði EFTA og lagði Lilja ríka áherslu á að „ríkin séu sam­stíga og láti ekki ólíka hags­muni eða sam­keppni sín á milli hafa áhrif á sam­starfið,“ segir í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Samstaða hafi verið um að EFTA-ríkin fjögur myndu vinna náið saman til að tryggja hags­muni ríkj­anna við útgöngu Breta úr ESB.

Í fyr­ir­spurn Kjarnans til utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins var óskað eftir upp­lýs­ingum um stöðu mál­efna Íslands vegna Brexit. Frétta­stofa Reuters hefur flutt fréttir af því að Noregur og Bretland muni hefja sam­ræður um við­skipta­leiðir í kjöl­far útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu strax í des­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár