Ráðherra segir hamfaraspár ferðaþjónustunnar ekki trúverðugar

Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, segir að breyt­ingar á virð­is­auka­skatti ættu að vera gleði­efni, þar sem ferða­menn borgi aðeins meira en almenn­ingur aðeins minna. Hann efast um mál­flutn­ing ferða­þjón­ust­unnar.

Þorsteinn Víglundsson, ráðherra félags- og húsnæðismála
Þor­steinn Víglunds­son, ráð­herra félags- og hús­næð­is­mála Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, seg­ist leyfa sér að efast um þann mál­flutn­ing ferða­þjón­ust­unnar að breyt­ingar á virð­is­auka­skatti í grein­inni muni setja hana á hlið­ina. Þetta kemur fram á Facebook-síðu ráð­herr­ans.

Máli sínu til stuðn­ings birt­ist Þor­steinn mynd sem sýnir verð­þróun á gist­inu frá árinu 2010. „Í stuttu máli hefur verðið lið­lega tvö­fald­ast á sama tíma og almennt verð­lag hefur hækkað um 23%. Á sama tíma hefur nýt­ing­ar­hlut­fall gisti­rýma auk­ist jafnt og þétt.“ Þegar tekin séu saman áhrif verð­hækk­unar og betri nýt­ingar megi ætla að tekjur dæmi­gerðs hót­els hafi þre­fald­ast frá árinu 2010 til 2016. „Ham­fara­spár um áhrif þess­ara skatt­breyt­inga á rekstur og afkomu grein­ar­innar virka því ekki mjög trú­verð­ugar í þessu sam­hengi og eru engan veg­inn í takt við þær grein­ingar sem unnar hafa verið.“

Þor­steinn segir að hörð mót­mæli ferða­þjón­ust­unnar við áformum stjórn­valda komi ekki á óvart, enda sé sjald­gæft að atvinnu­greinar fagni skatta­hækk­unum. Til­gang­ur­inn er tví­þættur, segir hann. „Í fyrsta lagi að hemja þann stjórn­lausa vöxt sem verið hefur í ferða­þjón­ustu á und­an­förnum miss­erum, Í öðru lagi að lækka almenna þrep virð­is­auka­skatts­ins sem þýðir að allur almenn­ingur mun borga aðeins lægri virð­is­auka en ferða­menn aðeins hærri. Þannig nýtur þá almenn­ingur þess upp­gangs sem verið hefur í þess­ari mik­il­vægu atvinnu­grein.“

Það sé ekki eft­ir­sókn­ar­vert að vöxtur ferða­þjón­ust­unnar sé taum­laus, og horfa verði til sam­fé­lags­legra þol­marka ekki síður en þeirra jákvæðu efna­hags­legu áhrifa sem vöxtur ferða­þjón­ustu hafi vissu­lega haft.

Mik­il­vægt sé að ná tökum á þess­ari þróun og draga þannig úr ruðn­ings­á­hrifum sem greinin er farin að valda, meðal ann­ars á vinnu­mark­aði og gagn­vart öðrum útflutn­ings­greinum vegna styrk­ingar krón­unnar, en ekki síður á hús­næð­is­mark­aði.

„Samhliða þessu verður almennt þrep virð­is­auka­skatts lækkað og verður þar með það lægsta á Norð­ur­lönd­unum. Í stuttu máli þýðir þetta að ferða­menn borga aðeins meira en allur almenn­ingur aðeins minna í virð­is­auka­skatt. Það ætti að vera gleði­efni fyrir okkur öll.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár