„Þetta rústaði svolítið jólunum í fyrra“

Veggir Ásmund­ar­salar hafa aldrei verið jafn þétt skip­aðir og nú að sögn Aðal­heiðar Magn­ús­dóttur, eig­anda húss­ins. Aðal­heiður ræðir við Kjarnann um starf­sem­ina í hús­inu og jóla­sýn­ing­arnar sem hún líkir við mynd­list­aran­nál.

Jóla­sýn­ingar líkt og þær sem á síð­ustu árum hafa sprottið upp koll­inum eru langt í frá nokk­urra ára gam­all siður. Um miðja síð­ustu öld voru til að mynda nokkrar slíkar jóla­sýn­ingar haldnar að Freyju­götu 41, í Ásmund­ar­sal Í umfjöllun Þjóð­vilj­ans frá 11. des­em­ber 1949 um eina þá allra fyrstu segir að það hafi verði verið stillt svo í hóf að lista­verkin á sýn­ing­unni gætu vel ratað í jóla­pakk­ana. Strax þá var rætt um að gera slíka jóla­sýn­ingu að árlegum við­burði á aðvent­unni og nokkrar slíkar sýn­ingar voru haldnar í hús­inu þegar þar var rek­inn List­vina­sal­ur­inn á sjötta ára­tugnum.

Þessi siður var svo end­ur­vak­inn í Ásmund­ar­sal fyrir um þremur árum síðan þegar fyrsta jóla­sýn­ingin, Le Grand Salon de Noël, leit dags­ins ljós. Jóla­sýn­ing Ásmund­ar­salar er því nú haldin í fjórða sinn, í þetta sinn undir yfir­skrift­inni Svona eru jólin. Eigandi húss­ins, Aðal­heiður Magn­ús­dóttir, eða Heiða eins og hún er iðu­lega kölluð, segir vegg­ina í Ásmund­ar­sal aldrei hafa verið jafn þétt skip­aða og nú. Um 180 lista­menn eigi verk á jóla­sýn­ing­unni þetta árið, alls um 600 tals­ins. Lista­verkin eru af ýmsum toga, mál­verk, teikn­ingar, ljós­myndir, skúlp­t­úrar og grafík og prent­verk, svo eitt­hvað sé nefnt.

Opin vinnustofa í Gryfjunni allan sýningartímann

Heiða stendur ekki ein í stafni við gerð jóla­sýn­ing­ar­innar, sýn­ing­ar­stjórar eru lista­menn­irnir Leifur Ýmir Eyj­ólfs­son og Sigurður Atli Sig­urðs­son. Þeir hafa á und­an­förnum árum starf­rækt prent­verk­stæði og og staðið fyrir útgáfu undir nafn­inu Prent & vinir. Á sýn­ing­ar­tíma halda Prent & vinir úti graf­íkverk­stæði í Gryfj­unni í Ásmund­ar­sal, nokk­urs konar opinni vinnu­stofu, þar sem gestum gefst kostur að fylgj­ast með ólíkum lista­mönnum að störfum og kaupa verk þeirra nán­ast áður en þau þorna.

Þrátt fyrir að jóla­sýn­ingin standi yfir í um þrjár vikur ár hvert þá litar hún starf Heiðu allt árið enda þarf mik­inn und­ir­bún­ing til að koma sýn­ingu sem þess­ari á kopp­inn. „Við erum varla búin að taka niður jóla­sýn­ing­una þegar und­ir­bún­ingur fyrir næstu jóla­sýn­ingu hefst,“ segir Heiða. „Þá förum við yfir hvað megi betur fara, hvernig við getum skipu­lagt okkur betur og annað þess háttar en þetta er að verða straum­línu­lag­aðra með hverju árinu hjá okkur.“

Áður en upp­setn­ing getur haf­ist þarf einnig að velja inn verk á sýn­ing­una. „Við veljum lista­menn sem við bjóðum að taka þátt í sýn­ing­unni. Þetta árið óskuðum við eftir að verk væru sér­stak­lega unnin fyrir þessa sýn­ingu “ Þannig að þetta er mjög skipu­lagt þó þetta hafi á sér þennan ævin­týra­lega, kao­tíska brag. Það má segja að þetta sé mjög vel und­ir­búið og skipu­lagt kaós,“ segir Heiða.

Sú hefð hefur skap­ast á jóla­sýn­ingum að hengja upp verk með svoköll­uðu salon-upp­hengi, þar sem veggirnir eru nýttir til hins ítrasta og öllum reglum um mið­línu og augn­hæð er kastað á glæ. Það er þó ekki svo að kylfa sé látin ráða kasti við upp­setn­ingu sýn­ing­ar­innar sem tekur um viku. Heiða segir þá viku vera mjög skemmti­legan tíma. „Þá byrjum við í þessum „tetris“ að sjá hvað passar saman og hvernig litir virka og hvernig þetta flæðir allt saman, svo það er líka mikil kúnst að láta þetta allt mynda eina fal­lega heildar mynd.“

Sýningin og sýningarskráin annáll myndlistar hvers árs

Við upp­setn­ing­una gefst líka tæki­færi til þess að kynn­ast verk­unum. „Það sem er líka gaman er að þegar við erum búin að vera hengja upp þessar myndir í heila viku, þá þekkir maður orðið mynd­irnar og lista­menn­ina og er búin að kynna sér hvað liggur að baki. Það er því ánægju­legt að miðla þeim upp­lýs­ingum áfram til gest­anna.“

Er ein­hver rauður þráður í lista­verkum íslenskra sam­tíma­lista­manna í dag eða er eitt­hvað sér­stakt sem íslenskir sam­tíma­lista­menn fjalla um, umfram annað?

„Sigurður Atli lýsir því vel þegar hann segir að maður verði var við að lista­menn leyfi efn­inu að taka völdin, það fær að flæða óhindrað. Myndlist á það til að búa til mótefni fyrir sam­fé­lagið sem und­an­farið hefur skil­greinst af hindr­unum. Það verður athygl­is­vert þegar fram líða stundir að leita aftur í bæk­linga síð­ustu ára og sjá hvaða straumar voru í gangi á hverjum tíma. Það má segja að sýn­ingin og þar af leið­andi bæk­ling­ur­inn sé ann­áll þess sem er að ger­ast í list ár hvert. Hér koma saman bæði nýút­skrif­aðir lista­menn jafnt sem eldri og reynd­ari.“

Í ár líkt og áður hefur verið lögð mikil vinna í þennan bæk­ling. Hvað get­urðu sagt mér um hann?

„Hann hefur, eins og sýn­ingin sjálf, þró­ast frá sýn­ingu til sýn­ingar. Þetta árið er það Olga Elliot sem hannar bæk­ling­inn í sam­starfi við Prent og vini og í honum má finna smá „bio“ um hvern lista­mann fyrir sig. Bæk­ling­inn má einnig finna á net­inu á asmund­ar­salur.is.“

„Hellingur“ nú þegar selst

Spurð að því hvort mikið hafi selst segir Heiða að sýn­ingin hafi farið virki­lega vel af stað og greini­legt að fólk sé mjög áhuga­samt. Nú þegar er búið að selja „alveg hell­ing“.

Það getur reynst nauðsynlegt að styðjast við stiga þegar gestir vilja skoða betur, eða kaupa, þær myndir sem hanga hve hæst í salnum.
Það getur reynst nauð­syn­legt að styðj­ast við stiga þegar gestir vilja skoða betur, eða kaupa, þær myndir sem hanga hve hæst í salnum.

„Við buðum fólki upp á pönnu­kökur þegar við opn­uðum. Við vorum með tjald hérna fyrir utan þannig að fólk gæti hinkrað þar ef það væri of margt fólk í salnum, í ljósi aðstæðna. Og það var ótrú­lega fal­legt flæði af fólki allan dag­inn. Veðrið lék við okkur og það var ein­stakur hátíð­leiki í loft­inu.“

Nú hafa svona basarar verið að spretta upp og þeim fjölgað á síð­ustu árum. Hvað veldur því?

„Áhugi á list hefur stór­auk­ist og kannski er yngra fólkið farið að sækja meira í að vera með alvöru list frekar heldur en í plakata­menn­ing­una sem var mjög lengi í tísku.“

Eitt af því sem Heiðu finnst svo skemmti­legt við það að halda þessa sýn­ingu ár eftir ár er að fá að fylgj­ast með þessu verða að hefð hjá fólki. „Það er orðin hefð hjá fólki að líta til okkar í bæj­ar­ferð fyrir jólin og margir sem kaupa sér alltaf verk. Hjón koma saman og kaupa sér sam­eig­in­lega jóla­gjöf. Ungt fólk og jafn­vel ung­lingar eru að kaupa sér verk í jóla­gjöf, svona sitt fyrsta lista­verk.“

Spurð að því hvort jóla­basar­arnir séu orðnir mik­il­vægir fyrir lista­menn, á svip­aðan hátt og jóla­bóka­flóðið fyrir rit­höf­unda, segir Heiða svo vera. Hægt sé að tala um lista­mark­aða­flóð og með því fylgi aukin fjöl­breytni.

Getur íslenskur list­mark­aður staðið undir því að svona margir stórir basarar séu haldnir á þessum skamma tíma ár eftir ár?

„Það hlýtur að þýða það að lista­mark­að­ur­inn hefur stækkað síð­ustu árin sem er mjög ánægju­legt.“

Hissa á að húsið skyldi selt á opnum markaði

Menn­ing­ar­starf­semi hvers konar hefur ein­kennt húsið sem stendur að Freyju­götu 41 nán­ast allar götur síðan Ásmundur Sveins­son reisti húsið handa sér og Gunn­fríði Jóns­dóttur konu sinni. Þau fluttu inn á Freyju­göt­una árið 1934 og iðk­uðu þar list sína en þau voru bæði mynd­höggv­arar. Árið 1940 skildu Ásmundur og Gunn­fríður og þau skiptu í kjöl­farið hús­inu á milli sín. Gunn­fríður fékk syðri helm­ing húss­ins en Ásmundur nyrðri hlut­ann. Gunn­fríður bjó og starf­aði í sínum helm­ingi húss­ins allt þar til hún lést árið 1968. Ásmundur reisti sér aftur á móti nýtt íbúð­ar­hús og vinnu­stofu í Sigtúni eftir skiln­að­inn, hvar Ásmund­ar­safn er til húsa í dag.

Í sínum helm­ingi Ásmund­ar­salar rak Ásmundur sýn­ing­ar­sal um tíma og þar var List­vina­sal­ur­inn starf­ræktur á árunum 1951 til 1954 og svo var þar Mynd­lista­skól­inn í Reykja­vík til húsa um ára­bil. Áður en Heiða festi kaup á hús­inu ásamt manni sínum, fjár­fest­inum Sig­ur­birni Þor­kels­syni, hafði Lista­safn ASÍ haft þar aðsetur. Þegar Alþýðu­sam­bandið aug­lýsti húsið til sölu hafði sumt fólk af því áhyggjur að menn­ing­ar­starf­semi gæti lagst af í hús­inu og eftir að fréttir voru fluttar af því að Aðal­heiður og Sig­ur­björn hefðu keypt húsið sættu kaupin jafn­vel ákveð­inni gagn­rýni.

Hvernig var það að fylgj­ast með þeirri umfjöllun og að lesa þessa gagn­rýni?

„Þessi gagn­rýni var mjög skilj­an­leg. Ég var í raun og veru alveg jafn hissa og allir aðrir að húsið væri selt á almennum mark­aði. Við lesum á sínum tíma í fast­eigna­aug­lýs­ing­unum í Mogganum að húsið væri til sölu.“

Heiða segir því næst frá útskrift­ar­verk­efni sínu í hönnun og mark­aðs­setn­ingu frá Parsons háskóla í New York sem sner­ist um það að skapa list­hús þar sem allar listir myndu sam­ein­ast undir einu þaki í bland við vinnu­stofu lista­manna. Í hús­inu átti líka að vera kaffi­hús þar sem fólk gæti komið saman.

„Það er orðið mjög langt síðan þessi hug­mynd kvikn­aði en greini­lega eitt­hvað sem að blund­aði í manni. Þannig að þegar við sáum þetta aug­lýst þá hugs­uðum við að þetta væri auð­vitað full­komið hús­næði fyrir þetta gamla útskrift­ar­verk­efni, þó við hefðum ekki verið með alveg full­mót­aða sýn. Það sem er ánægju­leg­ast er að jafn­vel þeir sem að gagn­rýndu þetta á sínum tíma hafa glaðst með okkur yfir því að vel hefur tek­ist til.“

Dagskrá hússins hugsuð „fyrir öll skilningarvitin“

Eftir að kaupin voru frá­gengin tóku við fram­kvæmdir. Parketið í sýn­ing­ar­salnum á efri hæð­inni var rifið upp og nú ganga gestir þar um gólf á fal­legum, grænum terrazzo flísum. Á jarð­hæð­inni þurfti mikið átak til þess að opna rýmið þar sem nú er kaffi­hús en í tíð Lista­safns ASÍ var sá hluti húss­ins hólfaður niður í smærri her­bergi, líkt og minn­ugt mynd­list­ar­á­huga­fólk man ef til vill eftir.

„Við vildum setja inn kaffi­hús, þannig að við breyttum aðeins og færðum til veggi niðri til þess að ná þessu rými og fá svona hjarta í húsið. Gryfjan fékk svo aftur það hlut­verk að vera vinnu­stofa lista­manna. Það fer oft ekk­ert á milli mála hvað er um að vera í Gryfj­unni. Hér hafa verið lista­menn sem vinna í olíu og þá er olíu­máln­ing­ar­lykt í hús­inu og þegar Hákon Bragason og Almar Atlason voru hér með smíða­verk­stæði þá ang­aði allt húsið af sagi.“

Heiða segir veggina í Ásmundarsal sjaldan eða aldrei hafa verið jafn þétt skipaða listaverkum.
Heiða segir vegg­ina í Ásmund­ar­sal sjaldan eða aldrei hafa verið jafn þétt skip­aða lista­verkum.

En hvernig er það að vinna í þessu húsi?

„Það er ynd­is­legt. Það eru nátt­úr­lega ótrú­leg for­rétt­indi að fá að vinna í svona skap­andi umhverfi. Hér er alltaf líf, meira að segja út í garði,“ segir Aðal­heiður og á þá við Matthías Rúnar Sig­urðs­son mynd­höggv­ara sem hefur höggvið stórar sem smáar myndir sínar í stein um nokkra hríð í garði Ásmund­ar­salar. Og upp­taln­ingin á ólíkum list­greinum sem snert er á í Ásmund­ar­sal heldur áfram:

“Eins og ég hef sagt áður þá er Ásmund­ar­salur hugs­aður fyrir öll skiln­ing­ar­vitin. Hvort sem það er mynd­list, dans, músík, hönnun eða mat­ar­upp­lif­anir, við finnum því stað. Við pössum okkur líka að skilja alltaf eftir rými í dag­skránni fyrir eitt­hvað óvænt og skemmti­legt sem gæti dottið inn. Til dæmis í fyrra vegna COVID, þá færð­ust til hlutir hjá okkur og þá náðum við að koma inn leik­list­ar­sýn­ingu. Þá máttu ein­ungis 25 manns koma inn í einu.“

Leik­list­ar­sýn­ingin sem um ræðir er Haukur og Lilja - Opnun eftir Elísa­betu Jök­uls­dóttur sem sýnd var við góðan orðstír í Ásmund­ar­sal. Hún hlaut á end­anum sex til­nefn­ingar til Grímu­verð­launa og hlaut Edda Björg Eyj­ólfs­dóttir Grímuna fyrir leik sinn.

Finnst skemmtilegast að taka á móti börnum

Aðspurð seg­ist Heiða vera mjög stolt af því starfi sem unnið hafi verið í Ásmund­ar­sal á nýliðnum árum. Það þakkar hún ekki síst góðu sam­starfs­fólki en í dag er það Ólöf Rut Stef­áns­dóttir upp­lif­un­ar­hönn­uður sem sér um dag­legan rekstur Ásmund­ar­salar.

„Ég er með frá­bært fólk með mér sem er líka með alla anga úti að leita að ein­hverju athygl­is­verðu og skemmti­legu. Við aug­lýsum á haustin eftir umsóknum um við­burði og sýn­ingar í hús­inu. Núna í haust voru 250 umsóknir sem bár­ust fyrir næsta ár. Það er ekki ósvipað lista­ann­álnum á jóla­sýn­ing­unni, að þegar þú færð 250 umsóknir í fangið þá sérðu hvað er að ger­ast í dansi, hvað er að ger­ast í mynd­list og það er bara virki­lega skemmti­legt að fara í gegnum það ásamt fagráði Ásmund­ar­salar. Því miður getum við ekki tekið við nema brota­broti af því.“

Er eitt­hvað á þessum rúmu þremur árum sem hefur sér­stak­lega staðið upp úr fyrir þig úr starfi Ásmund­ar­salar?

„Það er bara svo margt. Þetta er bara eins og börnin manns, maður vill ekki velja á milli þeirra. Það sem var virki­lega gaman að sjá var fyrsta sýn­ingin sem við vorum með eftir opn­un­ina. Á Lista­há­tíð 2018 vorum við með Atóm­stjörn­una sem var sam­vinna á milli dans­ara, leik­ara og mynd­list­ar­fólks. Þau tóku yfir allt húsið, garð­inn, sval­irnar og kjall­ar­ann, og húsið fyllt­ist af lífi sem var svo alltum­lykj­andi. Þessi hópur vann að verk­inu inni í hús­inu á meðan á fram­kvæmdum stóð. Þannig að þetta verk fór í gegnum allar fram­kvæmd­irnar og end­aði með okkur í frum­sýn­ingu á hús­inu. Það á sér­stakan stað í hjart­anu af því að þetta var það fyrsta sem við sýndum og það fékk ein­stak­lega góðar við­tökur.“

Annars heldur Heiða sér­stak­lega upp á það að taka á móti börnum í húsið og hefur hún tekið upp á því að bjóða upp á heim­sóknir fyrir barna­heim­ilin og skól­ana í nágrenni Ásmund­ar­salar.

„Mér finnst alltaf ótrú­lega gef­andi að taka á móti ungum börnum og segja þeim frá verk­unum. Leifur Ýmir er til dæmis með eitt grillað verk hér á jóla­sýn­ing­unni, hann bók­staf­lega grillar verk á grilli. Þeim finnst það alveg ótrú­lega skemmti­legt. „Hvað seg­irðu, setur hann það bara í alvör­unni á grillið?!“ spyrja börnin.“

Farin að geta brosað yfir uppákomunni á Þorláksmessu

Fjöl­miðlaum­fjöllun um jóla­sýn­ingu þessa árs lit­ast tölu­vert af síð­asta kvöldi jóla­sýn­ing­ar­innar í fyrra. Óþarfi er að rekja í löngu máli atburða­rás­ina í Ásmund­ar­sal á Þor­láks­messu í fyrra þegar lög­reglan var á ell­efta tím­anum á Þor­láks­messu­kvöldi „kölluð til vegna sam­kvæmis í sal í útleigu í miðbæ Reykja­víkur,“ líkt og það var orðað í upp­lýs­inga­pósti úr dag­bók lög­regl­unni sem sendur var út að morgni aðfanga­dags. Í þessum upp­lýs­inga­pósti lög­regl­unnar var einnig sér­stak­lega tekið fram að í hópnum hafi um 40-50 gestir verið sam­an­komnir í salnum, „þar á meðal einn hátt­virtur ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands,“ og á aðfanga­dag kom það í ljós að um var að ræða Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra.

Mynd Auðar Ómarsdóttur B.B. hefur vakið nokkra athygli. í forgrunni er loðið listaverk Hrafnhildar Arnardóttur sem er betur þekkt undir listamannsnafninu Shoplifter.
Mynd Auðar Ómars­dóttur B.B. hefur vakið nokkra athygli. í for­grunni er loðið lista­verk Hrafn­hildar Arn­ar­dóttur sem er betur þekkt undir lista­manns­nafn­inu Shoplifter.

Nú í byrjun des­em­ber var til að mynda sagt frá opnun jóla­sýn­ing­ar­innar á Smartlandi Mörtu Maríu á mbl.is undir fyr­ir­sögn­inni „Sölu­sýn­ingin sem Bjarni gerði fræga opnar aftur“. Skömmu eftir opnun var innslag í kvöld­fréttum Stöðvar 2 sent út í beinni frá Ásmund­ar­sal þar sem tekið var við­tal við Auði Ómars­dóttur og hún spurð út í verk sitt á jóla­sýn­ing­unni sem nefn­ist B.B. Verk Auðar er 40 sinnum 50 sentí­metra olíu­mál­verk, por­trett­mynd af Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra.

Hvernig horfir þetta mál allt saman við eig­endum Ásmund­ar­salar?

„Þetta var nátt­úr­lega hið leið­in­leg­asta mál. En ég held að þessi síð­asta frétt með Auði sýni það að fólk er farið að geta aðeins brosað út í annað yfir þessu.“

Svo eins og staðan er núna, þá eruð þið farin að geta hlegið að þessu?

„Við erum að kom­ast þangað. Þetta eitt það leið­in­leg­asta sem ég hef lent í, þetta rústaði svo­lítið jól­unum í fyrra, það verður bara að segj­ast eins og er.“

Dróguð þið ein­hvern lær­dóm af þessu?

„Við bara erum mjög lög­hlýðin,“ segir Heiða kímin. „En eftir allan þennan tíma og allar þessar rann­sóknir og yfir­heyrslur sem fóru fram þá fáum við sekt fyrir það að við Sig­ur­björn vorum ekki með grímur. Það var eina brotið. Við máttum vera með opið og hér voru ekki of margir. Fjöl­miðlar voru lítið að leggja áherslu á það þegar það loks­ins kom í ljós að það var ekki neitt brot framið annað en það að grímunotkun var ábóta­vant.“

Og til hvað er opið á Þor­láks­messu í ár?

„Til klukkan tíu,“ segir Heiða og brosir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár