Katrín leiðir myndun ríkisstjórnar eftir fund með Guðna

Nú verður reynt að mynda rík­is­stjórn Vinstri grænna, Pírata, Bjartrar fram­tíðar, Sam­fylk­ingar og fimmta flokks. „Við áttum ekki von á þessu,“ sagði Katrín.

Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti hefur veitt Katrínu Jak­obs­dóttur, for­manni Vinstri grænna, stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð. Fundi þeirra lauk nú fyrir skemmstu á Bessa­stöðum.

Katrín mun reyna að mynda fimm flokka rík­is­stjórn með Pírötum, Bjartri fram­tíð, Sam­fylk­ing­unni og annað hvort Viðreisn eða Fram­sókn­ar­flokki. Hún úti­lokar ekki að reyna síðar stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki, en Vinstri grænir álykt­uðu fyrr á árinu að ganga ekki í sam­starf með flokknum.

Hvað segir Viðreisn?

Það flækir stöð­una að Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, hefur ekki viljað mynda fimm flokka stjórn­ina sem Katrín reynir nú að mynda. „Ég er ekki alveg viss um að þjóðin sé að kalla eftir fimm flokka stjórn. Þá værum við að ganga inn í Pírata­banda­lagið. Það hugn­ast mér nú ekki alveg,“ sagði Benedikt dag­inn eftir kosn­ingar. Ekki hefur náðst í Benedikt í gær eða í dag til að spyrja hann út í afstöðu sína nú.

Ef Viðreisn vill ekki fimm flokka stjórn gæti Katrín þurft að leita til Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem hefur sama þing­manna­fjölda og Viðreisn. Gangi það ekki eftir, eða telj­ist það óæski­legt, er næsti val­kostur að end­ur­skoða afstöðu Vinstri grænna til sam­starfs með Sjálf­stæð­is­flokknum.

„Hún fékk umboð mitt til þess að leiða stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður,“ sagði Guðni á blaða­manna­fund­inum. „Við ræddum um það að þótt ekki mætti rasa um ráð fram þá þyrfti að hafa hraðar hendur. Hún sýndi því sjón­ar­miði mínu fullan skiln­ing.“

Katrín mun funda með Guðna á ný í síð­asta lagi á mánu­dag eða þriðju­dag. „Auðvitað fylgist ég líka með í fjöl­miðlum og eftir öðrum leiðum,“ sagði Guðni. 

Katrín bjóst ekki við þessu

„Ég fer núna og hitti minn þing­flokk,“ sagði Katrín. „Við áttum svo sem ekki endi­lega von á þessu. Vænt­an­lega mun ég síðan óska eftir því að fá að ræða við full­trúa allra flokka. Ég hef talað fyrir því að við skoðum myndun fjöl­flokka­stjórnar frá miðju til vinstri,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir. Hún end­ur­tók að hún hefði ekki búist við verk­efn­inu. „Þetta er bara risa­stórt verk­efni sem ég átti ekki endi­lega von á að félli í minn hlut í gær. Er maður ekki bara auð­mjúkur gagn­vart slíkum verk­efnum?“

Aðspurður um mögu­lega utan­þings­stjórn segir Guðni það „alls ekki tíma­bært“. Slík stjórn hafi aðeins einu sinni verið á Íslandi. „Við skulum láta hug­mynd um utan­þings­stjórn lifa áfram í heimi sagn­fræð­ing­anna.“

Hann segir flokks­for­menn­ina munu mynda með sér rík­is­stjórn. „Það er skylda þeirra að mynda rík­is­stjórn.“

„Við erum ekki öll sammála“

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, skil­aði stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð­inu í gær, eftir að við­ræður hans við mál­efna­hópa Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar slitn­uðu í kjöl­far kröfu flokk­anna tveggja um upp­boð á afla­heim­ildum. 

Aðspurð hvort komi til greina að mynda stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki sagði Katrín: „Það er svo sem hægt að fara í útreikn­inga á því, þetta eru sjö flokkar og ein­hvern veg­inn þurfum við að ná þessu mark­miði. Ég mun að sjálf­sögðu fá að heyra í öllum.“

Katrín seg­ist leggja áherslu á að tryggja auk­inn jöfnuð, upp­bygg­ingu heil­brigð­is­kerf­is­ins og umhverf­is­mál, til dæmis lofts­lags­málin.

Spurð hvort sjáv­ar­út­vegs­málin og Evr­ópu­málin muni verða erfið í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum segir hún: „Ég held að við verðum að takast á við það þegar þar að kemur ... það liggur fyrir að við erum ekki öll sam­mála.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár