Fimm til sjö þúsund manns í óleyfisíbúðum

Samkvæmt nýrri skýrslu eru engar vís­bend­ingar um að óleyf­is­bú­seta hafi minnkað á síð­ustu þremur árum. Allt að sjö þús­und manns gætu búið í atvinnu­hús­næði á land­inu öllu, þar af fjögur þús­und á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Drífa Snædal, forseti ASÍ
Drífa Snædal, for­seti ASÍ Mynd: Bára Huld Beck

Um 5-7 þús­und manns gætu búið í hús­næði sem skipu­lagt er undir atvinnu­starf­semi, sam­kvæmt nýrri skýrslu vinnu­hóps um umbætur á hús­næð­is­mark­aði sem Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) vekur athygli á í dag. Há leiga og skortur á leigu­hús­næði er talin vera veiga­mesta skýr­ingin, en hóp­ur­inn telur að starfs­manna­leigur og atvinnu­rek­endur komi starfs­mönnum sínum fyrir í óleyf­is­bú­setu.

Skýrslan var unnin af vinnu­hópi sem skip­aður var í tengslum við gerð Lífs­kjara­samn­ing­anna til að safna upp­lýs­ingum um fjölda óskráðra íbúða og leiðir til þess að fá eig­endur óskráðra íbúða til þess að skrá þær opin­ber­lega. Í vinnu­hópnum starfa full­trúar frá Slökkvi­liði höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, Þjóðskrá, Eflingu og Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun (HMS).

Samkvæmt vinnu­hópnum skapar óleyf­is­bú­seta ákveðna hættu þegar vá steðjar að, líkt og elds­voði eða nátt­úru­ham­farir, og gerir við­bragðs­að­ilum erfitt fyrir í björg­un­ar­störfum.

Engin merki um samdrátt

Skýrslu­höf­undar minn­ast á könnun sem Slökkvi­liðið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fram­kvæmdi á árinu 2017, en þar komu fram skýrar vís­bend­ingar um tölu­verða aukn­ingu á óleyf­is­bú­setu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þá var áætlað að í kringum 3.500 til 4 þús­und manns byggju við slíkar aðstæður. Slökkvi­liðið mat það svo að ekki séu vís­bend­ingar um að slík, búseta hafi dreg­ist saman á þessum árum, en út frá því mati, auk talna um atvinnu­hús­næði yfir landið allt, mat vinnu­hóp­ur­inn fjölda íbúa í óleyf­is­hús­næði yfir allt landið.

Samkvæmt mati vinnu­hóps­ins mætti búast við að 5.290 til 6.800 manns búa í óleyf­is­í­búðum á land­inu öllu. Um 60 pró­sent þeirra eru talin búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en einnig er búist við tölu­verðum fjölda í öðrum lands­hlutum, ef miðað er við mann­fjölda. Talið er að um 500-700 manns á Suð­ur­landi og 300-700 manns á Suð­ur­nesjum búi í óleyf­is­í­búðum.

Eftirspurn gæti aukist

Samkvæmt skýrsl­unni er mikil upp­söfnuð íbúða­þörf á land­inu, en byggja þarf þrjú þús­und íbúðir á hverju ári til að vinna hana upp á næstu tíu árum. Vinnu­hóp­ur­inn telur að upp­söfnuð þörf fyrir íbúðir muni halda áfram að aukast á næstu árum ef ekki verður mik­ill brott­flutn­ingur frá land­inu, en þá er talið lík­legt að eft­ir­spurn eftir ósam­þykktu hús­næði haldi áfram að aukast.

Vinnu­hóp­ur­inn bendir á að ástæður á bak við óleyf­is­bú­setu geti verið marg­þættar, en skortur á leigu­hús­næði og há leiga sé lík­ast til veiga­mesta skýr­ingin. Þá séu einnig dæmi um að starfs­manna­leigur og atvinnu­rek­endur komi starfs­mönnum sínum fyrir í óleyf­is­bú­setu sem hafa jafn­vel ekki raun­veru­legt val um búsetu. Einnig spili það inn í að hluti erlends verka­fólks sem dvelst tíma­bundið á land­inu vegna vinnu kjósi hrein­lega að búa tíma­bundið í eins ódýru hús­næði og mögu­legt er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár