Vísindaskáldskapurinn orðinn raunverulegur

Amazon hækk­aði á mörk­uðum í gær um tæp­lega þús­und millj­arða króna. Ástæðan var kynn­ing for­stjór­ans, stofn­and­ans og stærsta hlut­hafans, Jeff Bezos, á ótrú­legum vaxt­ar­á­formum fyr­ir­tæk­is­ins.

Jeff Bezos, stofn­andi og for­stjóri Amazon, og jafn­framt stærsti ein­staki hlut­haf­inn með um átján pró­sent hlut, hélt í gær blaða­manna­fund þar sem til umfjöll­unar voru vaxt­ar­á­form Amazon í Banda­ríkj­unum og á heims­vísu.

Hann byrj­aði fund­inn á því að upp­lýsa um það að Amazon hygð­ist ráða 100 þús­und nýja starfs­menn í fullt starf á næstu 18 mán­uðum, eða sem nemur um 5.500 starfs­mönnum á mán­uði næsta eina og hálfa árið. Í lok árs í fyrra voru starfs­menn Amazon í Banda­ríkj­unum 180 þús­und en áætl­anir gera ráð fyrir 280 þús­und starfs­mönnum í fullu starfi fyrir mitt ár 2018.

Á Seattle-svæð­inu - þar sem Amazon er með höf­uð­stöðvar sínar - starfa nú um 40 þús­und starfs­menn í fullu starfi en áformin gera ráð fyrir að þeir verði orðnir 72 þús­und í lok árs 2018.

Ótrúleg tækni

Fyr­ir­tækið hefur að und­an­förnu verið að sýna á spilin þegar kemur að tækni­þróun í versl­un­ar­rekstri. Nú þegar hefur það opnað verslun þar sem ekki eru neinir starfs­menn og versl­un­ar­kassar. Gervi­greind sér til þess að við­skipta­vin­ur­inn getur farið inn í búð­ina, tekið það sem hann vill og gengið út án þess að bíða í röð. Við­skiptin eru gerð upp í gegnum not­enda­svæði hvers við­skipta­vinar hjá Amazon (Amazon Go), með snjall­síma eða snjallúr.

Þessi tækni minnir helst á vís­inda­skáld­sögur, í það minnsta í huga margra. Þetta er hins vegar veru­leiki og bendir allt til vöxt­ur­inn verði mik­ill og hraður.

Lagernum í þessum versl­unum er stjórnað af vél­mennum sem fylla á vöru­hillur, í bak­hluta þeirra, þegar þær klár­ast.

Margir eru ugg­andi yfir þess­ari þróun en í Banda­ríkj­unum starfa 3,5 millj­ónir manna við afgreiðslu­störf í versl­unum.

Þúsundir verslana á teikniborðinu?

Eina búðin sem er útbúin þess­ari ein­stöku tækni er á starfs­svæði fyr­ir­tæk­is­ins í Seattle. Til stendur að opna mik­inn fjölda versl­ana um allan heim, sem verða búnar þess­ari tækni, en Bezos hefur ekki viljað segja frá því hversu stór­huga þessi áform eru. Wall Street Journal flutti fréttir af því að fyr­ir­tækið hefði þegar tryggt sér tvö þús­und stað­setn­ingar á borg­ar­svæðum í Banda­ríkj­unum undir búð­irnar. Amazon stað­festi frétt­ina ekki, og sagði frétt­ina hafa verið ótíma­bæra.

Vítt og breitt um Bandaríkin

Störfin, sem Bezos greindi frá í gær, verða vítt og breitt um Banda­ríkin og mun stór hluti þeirra krefj­ast tækni­þekk­ingar starfs­fólks. Stórar dreif­inga­stöðvar fyrir póst­verslun verða byggðar upp og verða þær útbúnar gervi­greind­ar­bún­aði.

Á dög­unum greindi sá ágæti mið­ill Quartz frá því að Amazon væri búið að sækja um einka­leyfi á tækni­bún­aði sem gerði fyr­ir­tæk­inu kleift að reka vöru­hús upp í skýj­unum - í orðs­ins fyllstu merk­ingu. Frá vöru­hús­unum munu drónar síðan senda vörur heim til fólks. Á seinni hluta síð­asta árs greindi Amazon frá því að bún­að­ur­inn til að senda vörur með drónum væri til­bú­inn. Fyrsta tákn­ræna send­ingin (þær skipta nú lík­lega þús­und í prufu­skyni) var í Camebridge í Bret­landi, 7. des­em­ber í fyrra, og heppn­að­ist vel.

Breyttur heimur

Mark­aðsvirði Amazon var við lokun mark­aða í gær 386,6 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 45 þús­und millj­örðum króna. Hluta­bréf fyr­ir­tæk­is­ins hækk­uðu um tæp­lega tvö pró­sent í gær, eða um sem nemur 7,7 millj­örðum Banda­ríkja­dala, tæp­lega 900 millj­örðum króna.

Til sam­an­burðar þá er stærsta smá­sölu­fyr­ir­tæki Banda­ríkj­anna, Walmart, nú metið á 212 millj­arða Banda­ríkja­dala. Raunar er virði Amazon nú meira en sam­an­lagt virði allra helstu keppi­nauta fyr­ir­tæk­is­ins, Walmart, Target, Costco. Svo eitt­hvað sé nefnt. Sann­ar­lega ótrú­legar tölur. En miðað við áformin þá er þetta aðeins byrj­unin.

Bezos og Donald Trump

Jeff Bezos hefur ekki verið vin­sæl­asti mað­ur­inn hjá verð­andi for­seta Banda­ríkj­anna, Donald J. Trump. Bezos hefur oft verið gangrýndur af Trump og stuðn­ings­mönnum hans, ekki síst þar sem hann á Washington Post sem hefur birt gagn­rýnar umfjall­anir um hann oftar enn einu sinni. Bezos hefur neitað öllum afskiptum af efn­is­tökum Washington Post.

Hann hefur hins vegar gagn­rýnt hann fyrir að ábyrgða­laust tal, ekki síst um inn­flytj­endur og alþjóða­vætt atvinnu­líf. Sjálfur segir Bezos að Banda­ríkin, og raunar heim­ur­inn allur, þurfi að und­ir­búa hag­kerfin betur undir miklar breyt­ingar sem framundan eru vegna tækni­fram­fara.

Þegar hann var gagn­rýndur af Trump síð­ast­liðið haust þá sagði hann á Twitter svæði sínu að það væri lík­lega eitt laust pláss í geim­flaug Blue Origin, geim­ferða­fyr­ir­tækis hans. Trump gæti fengið það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár