„Leyfa listinni að lýsa upp skammdegið“ á Ljósabasar Nýló

Ljósa­basar Nýló er nú hald­inn í þriðja sinn og rúm­lega 200 verk um 70 félags­manna eru til sölu á basarnum í Mars­hall­hús­inu. Safn­stjóri segir frá­bært að safnið hafi fengið fastan sama­stað í hús­inu og hún spáir íslensku mynd­list­ar­sen­unni bjartri fram­tíð.

Um þessar mundir öslar fólk í gegnum snjó og slabb til þess að sækja jóla­sýn­ingar sem haldnar eru víða um borg­ina. Jóla­sýn­ing­unum eða jóla­basör­unum, eins og þessar sýn­ingar eru gjarnan kall­aðar, hefur vaxið fiskur um hrygg á nýliðnum árum og segja má að þær séu orðnar fastur liður í jóla­und­ir­bún­ingi hjá fjölda fólks. Áhuga­fólk um mynd­list sækir þær til að sjá það helsta sem uppi er á ten­ingnum í mynd­list sam­tíð­ar­innar, lista­menn skila af sér fjölda verka og starfs­fólk sýn­ing­ar­stað­anna vinnur í kappi við tím­ann í byrjun des­em­ber við að setja sýn­ing­arnar upp.

Kjarninn fór í leið­angur um borg­ina, skoð­aði basar­ana og ræddi við stað­ar­hald­ara. Ferða­lagið hefst í Nýlista­safn­inu en þar stendur yfir Ljósa­basar Nýló sem nú er hald­inn í þriðja sinn. Hann opn­aði á sjálfan full­veld­is­dag­inn, 1. des­em­ber og stendur til þess 19. Í Nýlista­safn­inu tekur á móti okkur Sunna Ást­þórs­dóttir en hún er safn­stjóri og for­maður stjórnar Nýlista­safns­ins. Að hennar sögn er Ljósa­basar Nýló að verða að föstum lið í starfi Nýlista­safns­ins en hann er þáttur í fjár­mögnun safns­ins.

„Það er að skap­ast hefð fyrir basarnum,“ segir Sunna. „Þetta eru full­trúar Nýló sem taka þátt, allt lista­menn sem eiga og reka safnið ásamt hinum full­trúum safns­ins. Þetta er svona að þeirra frum­kvæði og skilar sér beint til þeirra, en líka að hluta inn í kjarna­starf­semi Nýló, og sá ágóði nýt­ist sér­stak­lega í að styðja við sýn­inga- og við­burða­hald safns­ins.“

Hvað get­urðu sagt mér um umfang basars­ins, hvað eru þetta mörg verk og eftir hve marga lista­menn?

„Þeir eru hátt í 70 lista­menn­irnir sem taka þátt. Þegar við opn­uðum voru lista­menn­irnir um 60 en það eru alltaf fleiri að bæt­ast við flór­una. Sama með verkin, þau eru rúm­lega 200 en það eru alltaf að koma inn fleiri. Svo selj­ast verk og ný koma inn í stað­inn,“ segir Sunna og bendir á að einnig sé hægt að skoða verkin á net­inu.

„Basarinn er bæði hér í sýn­ing­ar­salnum í Mars­hall­hús­inu og á net­inu, á ljosa­basar.nylo.is. Basarinn var í fyrsta sinn á net­inu í fyrra vegna heims­far­ald­urs­ins, þá gátum við ekki haldið hann í salnum okkar eins og áður. Í ár ákváðum við að gera bæði, enda reynd­ist heima­síðan vel. Þar er líka hægt að lesa um lista­menn­ina sem taka þátt og glöggva sig aðeins á þeim og verkum þeirra í víð­ara sam­hengi, auk þess sem hægt er að kaupa verk.“

200 verk hengd upp á tveimur dögum

Sú venja hefur skap­ast á jóla­mörk­uðum sem þessum að þegar fólk kaupir verk, í það minnsta á staðnum, þá getur það fengið verkið afhent um leið og tekið það svo með sér heim og hengt verkið upp á vegg eða pakkað inn, sé lista­verkið ætlað ein­hverjum öðrum. Upp­hengið á jóla­mörk­uð­unum er haft með svoköll­uðum salon stíl, verkin hanga mjög þétt og ná hér um bil frá gólfi og upp í loft og því er hægt að sýna mörg verk sam­tímis. Nafn­giftin á þessum stíl upp­hengis er til­kom­inn því þessi háttur var hafður á við upp­hengi mynda á salon sýn­ing­unum í París sem voru einn stærsti list­við­burður í heimi um áraraðir.

Hvernig er með und­ir­bún­ing fyrir svona stóran markað, hvenær hefst hann?

„Und­ir­bún­ing­ur­inn hefst tím­an­lega, félags­menn skrá sig snemma og við byrjum snemma að huga að ramm­anum en svo er alveg spýtt í lóf­ana í nóv­em­ber, og sér­stak­lega þegar við erum að fara að setja upp. Yfir­leitt setjum við upp hátt í 200 verk á tveimur dögum. Það er mikil stemn­ing, þá söfnum við liði, og það er svo gaman að pakka öllum verk­unum upp og sjá með eigin augum hvaða verk félags­menn hafa komið með. Þau eru öll ein­stök, og end­ur­spegla í raun fjöl­breyti­leika full­trúa­ráðs safns­ins. Það er mjög skemmti­legt að sjá verk mis­mun­andi kyn­slóða mynd­list­ar­manna saman í kös.“

Verk á Ljósabasar Nýló hanga hátt og lágt á veggjum safnsins í Marshallhúsinu. Slíkt upphengi er sagt vera með salon stíl og tíðkast á jólamörkuðum sem þessum.
Verk á Ljósa­basar Nýló hanga hátt og lágt á veggjum safns­ins í Mars­hall­hús­inu. Slíkt upp­hengi er sagt vera með salon stíl og tíðkast á jóla­mörk­uðum sem þessum.

Þessi hraði í upp­setn­ingu, hann fæst kannski vegna þess að þið njótið ákveð­ins frelsis við upp­heng­ingu verka, því þetta er ekki eins og hefð­bundin sýn­ing í þeim skiln­ingi?

„Einmitt, þetta er heldur ekki sýn­ing. Þetta er basar og í salon stíl og verkin eru dálítið í belg og biðu sem er svo­lítið fag­ur­fræði lista­verka­mark­aða. Þannig að jú, við getum hengt hátt og lágt og ég held að sér­stak­lega fyrir börn sé mjög gaman að fara á þessa listjóla­mark­aði því mörg verk­anna eru hengd upp í þeirra augn­hæð.“

Ekki markmiðið að vera í samkeppni við aðra basara

Nú er þessi basar dálítið frá­brugð­inn öðrum basörum í borg­inni vegna þess að þetta er safn alla aðra mán­uði árs­ins. Hvernig er að fá að setja þennan hatt á sig og verða eins konar sölugall­erí í um það bil mánuð á ári?

„Við erum safn allan árs­ins hring, og safna­starfið heldur áfram í des­em­ber líkt og aðra mán­uði. Ljósa­basar­inn er hald­inn að frum­kvæði félags­manna sem fjár­öflun fyrir safnið okkar. Þessi mark­aður er ekki sýn­ing heldur vett­vangur þar sem félags­menn taka höndum saman fyrir Nýló, hluti sölu­á­góð­ans rennur síðan í starf­semi safns­ins. Eitt það skemmti­leg­asta við basar­inn er að sjá þessi ólíku verk félags­manna í sama rými. Þannig að þetta er í raun­inni bara mjög skemmti­legt tæki­færi til þess að vinna beint með félags­mönnum.“

Hlutverk Nýlista­safns­ins er marg­þætt eins og Sunna fer yfir í kjöl­farið: „Við erum lista­manna­rekið safn, og í því felst fjöl­breytt hlut­verk. Í stuttu máli söfnum við sam­tíma­mynd­list með öllu því sem því til­heyrir, höldum úti sýn­ing­ar­haldi og miðlum mynd­list. Sú stað­reynd að við erum lista­manna­rekin snýr svo að því á hvaða for­sendum starfið er unnið, það er ávallt á for­sendum mynd­list­ar­manna og meðal ann­ars með það að mark­miði að opna augu almenn­ings fyrir við­fangs­efnum mynd­list­ar­manna hverju sinni. Við erum í góðu sam­starfi við bæði ríki og borg, og Ljósa­basar­inn er svo ein leið til þess að fjár­magna starf­sem­ina.“

Nafnið Ljósa­basar, hvernig er það til­komið?

„Þegar þáver­andi stjórn lagði grunn að basarnum, þá var hug­myndin ekki að vera í sam­keppni við jóla­mark­að­ina, heldur frekar að nýta sér styrk­inn í því að það er margt í gangi í des­em­ber. Basarinn á sér stað á myrkasta árs­tím­anum, þannig hugs­unin var að leyfa list­inni að lýsa upp skamm­degið.“

Ekki bara ljósaverk á boðstólum

Sunna segir það hafa komið fyrir að nafnið hafi valdið mis­skiln­ingi. Það hafi til dæmis gerst að lista­menn hafi verið tví­stíg­andi við það að taka þátt í basarnum vegna þess að þeir eigi ekk­ert ljósa­verk til að selja. Einnig hafa gestir haldið að ein­ungis sé hægt að festa kaup á ljósa­verkum.

„Það eru margir sem halda að þetta séu bara verk sem lýsa en það er ekki svo. Það má líka skoða þetta í breiðu sam­hengi. Einn af eig­in­leikum list­ar­innar er að gera ákveðna kima heims­ins sýni­lega, hvort sem sú skot séu raun­veru­leg eða til­heyra öðrum víddum, þá spretta fram ein­hver ný sjón­ar­horn með list­inni. Svo er það nú svo að ef það væri ekki ljós í heim­inum þá gæti manns­augað ekki numið liti eða okkar sýni­lega umhverfi.“

Jóla­mark­aðir líkt og Ljósas­basar Nýló eru orðnir að föstum lið í helgi­haldi margra, líkt og áður var vikið að og slíkir mark­aðir hafa á nýliðnum árum skotið upp koll­inum einn af öðrum. Sunna seg­ist ekki hafa myndað sér sér­staka skoðun á því hvort að slíkir mark­aðir séu orðnir of margir eða hvort að íslenskur list­mark­aður þoli þennan fjölda. En eitt er hún sann­færð um og það er gildi þess að kaupa íslenska mynd­list.

Þrátt fyrir að listamenn séu ekki skyldugir til þess að skila af sér ljósaverkum á Ljósabasar má fá þar keypt ljósaverk. Hér má sjá þrjú slík verk: Bel Ray, Total Performance Lubricants eftir Elísabet Birtu Sveinsdóttur og tvö verk Katrínar Ingu Jónsdóttur Hjördísardóttur sem bæði heita Sjálfsást.
Þrátt fyrir að lista­menn séu ekki skyldugir til þess að skila af sér ljósa­verkum á Ljósa­basar má fá þar keypt ljósa­verk. Hér má sjá þrjú slík verk: Bel Ray, Total Performance Lubricants eftir Elísabet Birtu Sveins­dóttur og tvö verk Katrínar Ingu Jóns­dóttur Hjör­dís­ar­dóttur sem bæði heita Sjálfs­ást.

„Mér finnst að fleiri ættu að íhuga að fjár­festa í mynd­list,“ segir Sunna og nefnir það að fleira sé mynd­list en mál­verk á vegg: „Hér á basarnum okkar eru tví­víð verk unnin með ýmsum aðferðum, en líka skúlp­t­úrar, víd­eó­verk, inn­setn­ingar og allt þar á milli.“

Gott að hafa fastan samastað eftir tíða flutninga

Talið berst nú að öðru – sjálfu Mars­hall­hús­inu, hvar Nýló hefur verið til húsa í rúm fjögur ár þegar húsið var form­lega opnað eftir gagn­gerar end­ur­bætur í mars árið 2017. Í hús­inu er einnig að finna annað lista­manna­rekið rými, gall­er­íið Kling&Bang, en þar er auk þess Stúdíó Ólafs Elí­as­sonar, sem að vísu hefur að mestu verið lokað í heims­far­aldri, og veit­inga­stað­ur­inn La Prima­vera. Að sögn Sunnu er það frá­bært að mynd­listin sé í aðal­hlut­verki í hús­inu, það bjóði upp á frjótt sam­tal milli íbúa húss­ins. Að auki sé það gott að starf­semin í hús­inu dragi til sín mis­mun­andi hópa.

Áður en Nýlista­safnið fékk nýjan sama­stað í Mars­hall­hús­inu hafði það verið á hálf­gerðum ver­gangi og flutn­ingar voru reglu­legur við­burður, eitt­hvað sem er alls ekki æski­legt í safna­starfi. Spurð að því hvort það hafi verið bylt­ing fyrir Nýlista­safnið að fá aðsetur í hús­inu svarar Sunna ját­andi.

„Nýlista­safnið hefur nátt­úr­lega þurft að flytja fimm eða sex sinnum í gegnum tíð­ina. Það var stofnað 1978 og hefur flutt margoft, bæði sýn­ing­ar­rýmið en líka saf­n­eignin og það er ekki gott fyrir verk að vera alltaf á flutn­ingi. Við erum með saf­n­eign­ar­geymslur í Breið­holti og von­andi getum við verið þar til fram­búðar, það er rosa­lega mikið öryggi að vita af því að saf­neigin er ekki að fara á flakk næstu árin.“

Nýlista­safnið leigir aðstöðu sína af Reykja­vík­ur­borg sem jafn­framt styrkir starf­semi safns­ins. Enn er um ára­tugur eftir af leigu­samn­ingnum sem Sunna segir vera langan tíma á skala Nýlista­safns­ins. Það að safnið hafi trygga búsetu á svo góðum stað til svo langs tíma hefur auk þess í för með sér að kraftar starfs­fólks­ins nýt­ast betur að sögn Sunnu.

„Síðan er líka bara frá­bært hvað sal­ur­inn er fal­legur og þetta er skemmti­legt og bjart rými að vinna í. Nú þurfum við ekki að pæla í ein­hverjum vatnslekum eða raf­magns­rofi. Við erum bara að ein­beita okkur að því sem við eigum að gera sem er að sinna list­inni.“

Framtíð myndlistarsenunnar „rosalega björt“

Nú fylgist þið hér í Nýló vel með sam­tíma­list­inni, er ein­hver rauður þráður í list­sköpun starf­andi lista­manna og um hvað fjalla þeir í list­sköpun sinni í dag?

„Mér finnst eig­in­lega meira spenn­andi, kannski í ljósi árs­tím­ans, að pæla í hvað er fram undan. Mynd­list­ar­senan er svo fjöl­breytt, í sífelldri gerjun og alltaf á hreyf­ingu. Sjón er yfir­leitt sögu rík­ari, hér er mjög mikið um að vera, nýjar sýn­ingar að opna nán­ast viku­lega og á nýju ári er til dæmis til­valið að setja sér mark­mið um að heim­sækja nýjan sýn­ing­ar­stað í hverjum mán­uði. Það eru spenn­andi tímar í vændum á mörgum sviðum, en sér­stak­lega finnst mér vert að nefna að umræðan um inn­gild­ingu, mál­efni og stöðu aðfluttra Íslend­inga, er byrjuð að taka pláss hér á landi. Þetta er mik­il­væg og löngu tíma­bær umræða sem á von­andi eftir að ýta við sýn­inga­lands­lag­inu, færa okkur fjöl­breytt­ari sýn­ingar og verk sem ýta enn frekar við við­teknum hug­myndum okkar um list­ina.“

Rúmlega 200 verk eftir hátt í 70 listamenn eru til sölu á Ljósabasar Nýló þetta árið en basarinn stendur til 19. desember.
Rúmlega 200 verk eftir hátt í 70 lista­menn eru til sölu á Ljósa­basar Nýló þetta árið en basar­inn stendur til 19. des­em­ber.

Hún segir einnig að létt­leiki og nýj­unga­girni ein­kenni mynd­list­ar­sen­una á Íslandi í dag.

„Mynd­list­ar­menn hér á landi eru líka mjög leik­andi. Þó að snert sé á alvar­legum við­fangs­efnum þá er aldrei langt í ein­lægni eða húmor jafn­vel. Ég held að rauði þráð­ur­inn sé sá að mynd­list­ar­menn eru óhræddir við að glíma við bæði ný og ögrandi við­fangs­efni.“

Þannig að fram­tíð mynd­listar á Íslandi er björt?

„Rosalega björt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár