Konur upplifa að læknar hlusti ekki á þær

Heilsu­fars­á­hyggjur kvenna eru stundum afskrif­aðar sem móð­ur­sýki. Rann­sóknir erlendis sýna að konur upp­lifa mis­munun á við karla í heil­brigð­is­kerf­inu. Mik­il­vægt að hlusta á lýs­ingar þeirra.

Getur skapað hættu
Getur skapað hættu Upplifi konur að ekki sé hlustað á þær í lækn­is­heim­sóknum getur það valdið því að þær fari að efast um veik­indi sín og skirrist við að leita sér frek­ari lækn­inga, segir Guðrún Stein­þórs­dóttir. Mynd: Heiða Helgadóttir

Konur upp­lifa oft og iðu­lega að ekki sé hlustað á þær þegar þær hitta lækna. Áhyggjur þeirra af eigin heilsu og lýs­ingar á verkjum eru jafn­vel afskrif­aðar sem móð­ur­sýki og kerl­inga­bækur. Konur lýsa því að læknar hlusti ekki á þær, að þeir sjúk­dóms­greini þær ekki, neiti að senda þær í frek­ari rann­sóknir en sendi þær heim með skila­boð um að ekk­ert sé að þeim, utan að þær séu stress­aðar og mættu mögu­lega við því að missa nokkur kíló.  

Getur haft alvarlegar afleiðingar

Þetta eru upp­lif­anir og lýs­ingar íslenskra kvenna en ekki hefur verið gerð nákvæm rann­sókn á upp­lifun kvenna hér á landi af sam­skiptum við lækna. Erlendis fer hins vegar fram mikil umræða þessi miss­erin um mis­ræmi í upp­lifun kvenna og karla af heil­brigð­is­kerf­inu. Þannig sýna rann­sóknir að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár