Það er of seint fyrir okkur að vera svartsýn

Maðurinn er afsprengi jarð­ar­innar og hefur með hug­viti sínu lagt undir sig ólík­leg­ustu svæði heim­ili síns og beislað krafta nátt­úr­unnar. Nú er svo komið að ef fram heldur sem horfir munum við menn klára auð­lindir jarðar á næstu ára­tugum.

Allt á jörð­inni teng­ist öllu öðru hvort sem það er vatn, jarð­vegur, loft eða tré. Þessar teng­ingar urðu til hér á jörð­inni og af þeim spratt líf. Lífverur og dýra­teg­undir heims­ins, mann­eskjan þar á meðal, reiða sig á þessar teng­ingar og eru raunar hlutar af þeim. Með ofsókn í auð­lindir jarð­ar­innar virð­ist mann­eskjan (homo sapi­ens) vera að stefna þessum teng­ingum í hættu og raska nátt­úru­legu jafn­vægi lífs­ins á jörð­inni. Verður ekki eitt­hvað gert til að snúa þeirri þróun við munum við ekki geta bjargað heim­ili okkar, jörð­inni.

Kvik­myndin Home var fyrst gefin út árið 2009 á fjöl­mörgum tungu­málum. Hún var frum­sýnd í kvik­mynda­húsum víða um heim en um leið og sýn­ingar hófust var myndin sett á YouTube svo sem flestir gætu séð. Leik­stjóri mynd­ar­innar, Yann Arthus-Bertrand, hefur gefið öllum þeim sem vilja end­ur­nýta efni mynd­ar­innar leyfi til að gera það. „Myndin er ekki varin höf­und­ar­rétti. Þann 5. júní [2009], umhverf­is­dag­inn, munu allir geta hlaðið henni niður á vefnum,“ sagði hann í TED-fyr­ir­lestri.

Myndina má sjá í heild sinni hér að ofan. Nær allt myndefnið eru loft­myndir frá öllum heims­hornum sem sýna nátt­úr­una, dýra­líf, skóga, ár, dali, plöntur, eyði­merkur og auð­vitað menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftsagsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár