Ekki skamma þig – ekki skamma aðra

Það ætl­aði allt um koll að keyra þegar raun­veru­leika­stjarnan Kim Kar­dashian West birti mynd af sér nak­inni fyrir nokkru. Hún er ein fjöl­margra sem verða fyrir lík­ams-skömm.

Kim Kardashian West er samfélagsmiðlastjarna. Fáir eru með fleiri fylgjendur en hún í heiminum.
Kim Kar­dashian West er sam­fé­lags­miðla­stjarna. Fáir eru með fleiri fylgj­endur en hún í heim­inum. Mynd: EPA

Nýlega hefur mikið verið í umræð­unni hin svo­kall­aða lík­ams-skömm (e. body-sham­ing) og þá í sér­stak­lega í ljósi nýrrar vit­unda­vakn­ingar hjá fyr­ir­tæk­inu Dove sem hrinti af stað verk­efni sem þeir köll­uðu

The Body Project

. Það smit­að­ist út á fleiri vett­vanga eins og til dæmis með her­ferð­ina

#sönn­fegur

ð hér á Íslandi. Umræðan hefur einnig kom­ist á flug vegna ákveð­innar sjálfs­myndar (e. sel­fie) sem raun­veru­leika­stjarnan Kim Kar­dashian-West tók af sér, og hún birti á Twitter aðgangi sínum 7. mars síð­ast­lið­inn. Á mynd­inni sést Kim á evu-klæð­unum í bað­her­berg­is­spegli sínum.

Margir hneyksl­uð­ust á upp­á­tæk­inu og þótti það bera með sér athygl­is­sýki og ósið­semi. Með þessu hafi stjarnan marg­um­tal­aða ein­ungis ætlað sér að „brjóta inter­netið" (sem og hún gerði - enn einu sinni) til þess eins að vekja á sér athygli. Sumir sögðu jafn­vel að þörf hennar fyrir að hneyksla reglu­lega með ljós­myndum af lík­ama sínum væri til að tryggja það að hún yrði ekki gleymd innan um flóð frétta um aðrar stjörnur. Tekjur hennar grund­vall­ast jú af því að hún njóti vin­sælda, en vin­sældir hennar má vafa­laust rekja til þess hversu mikið alheims­augað hvílir á henni og fjöl­skyldu hennar. Áður hefur hún „brotið inter­netið" með for­síðu­mynd Paper magazine þar sem föngu­legur aft­ur­endi stjörn­unnar var í lyk­il­hlut­verki. Heim­ur­inn virð­ist einnig seint geta gleymt því hvernig frægð hennar reis eftir umdeilt klám­mynd­band sem hún gerði ásamt þáver­andi kærasta sínum Ray J og lak út fyrir 13 árum.

Borin saman við Bieber

Sjálfan alræmda hefur á stuttum tíma skapa mikla umræðu um lík­ams-skömm­ina í sam­fé­lag­inu en ótal margir tjáðu sig um málið á hinum ýmsu sam­fé­lags­miðlum. Ýmsir bentu á að Kim hefði lík­leg­ast aldrei vakið eins hörð við­brögð ef hún væri þykk­ari í holdum því þá hefði henni mögu­lega verið hampað fyrir að vera stolt af lík­ama sínum.

Skömmin fælist þá í raun í því að hún skuli sýna lík­ama sinn á sama tíma og hún liti út eins og klippt út úr tíma­riti.

Að auki var bent á mynd sem að stór­stjarnan Justin Bieber birti af sér á Instagram aðgangi sínum þar sem hann stendur berrass­aður í frí­inu sínu. Sú mynd fékk ein­ungis jákvæð við­brögð aðdá­enda söngv­ar­ans knáa, þó hann afsak­aði síðar mynd­birt­ing­una og ákvað að eyða mynd­inni. Hún hafi ein­ungis átt að vera grín og ástæða þess að Bieber eyddi henni hafi verið sú að hann hafi ekki áttað sig á að það væru mjög ungar stúlkur að fylgj­ast með honum.

Kim hefur hins vegar ekk­ert viljað afsaka, enda þykir henni engin ástæða til. Hún sendi frá sér til­kynn­ingu stuttu eftir mynd­birt­ing­una á Twitter þar sem hún sagði að „nú væri komið nóg“.

Hún tal­aði þar um að vera orðin lang­þreytt á að vera sífellt minnt á for­tíð sína og sett í ein­hvern fyr­ir­fram ákveð­inn ramma. Hún sagð­ist vera stolt af lík­ama sínum og að það að líða vel í eigin skinni sé vald­efl­andi. Hún minnti einnig á druslu-skömm­ina sem í sífellu skýtur upp koll­inum í sam­fé­lagi okkar. Í lokin hvatti hún aðrar konur til að taka skref í átt að yfir­ráði yfir eigin lík­ama og láta ekki aðra segja sér til hvernig þær eigi að haga sér.

“Hey, guys. I wanted to write a post ela­borat­ing on my tweets last night. In all seriousness, I never und­er­stand why people get so bothered by what other people choose to do with their lives.

I don’t do drugs, I hardly drink, I’ve never committed a crime—and yet I’m a bad role model for being proud of my body?

It always seems to come back around to my sex tape. Yes, a sex tape that was made 13 years ago. 13 YEARS AGO. Liter­ally that lonnng ago. And people still want to talk about it?!?!

I lived through the emb­arrass­ment and fear, and decided to say who cares, do better, move on. I shouldn’t have to constantly be on the defense, list­ing off my accomplishments just to prove that I am more than somet­hing that happ­ened 13 years ago.

Let’s move on, alr­eady. I have.

I am empowered by my body. I am empowered by my sexu­ality. I am empowered by feeling comfortable in my skin. I am empowered by showing the world my flaws and not being afraid of what anyone is going to say about me. And I hope that through this plat­form I have been given, I can encourage the same empowerment for girls and women all over the world.

I am empowered by my hus­band, who is so accepting and supp­ortive and who has given me a newfound confidence in myself. He allows me to be me and loves me unconditionally.

I feel so lucky to have grown up surrounded by strong, dri­ven, independent women. The life les­sons I’ve lear­ned from my sisters, my mother and my grand­mother, I will pass along to my daughter. I want her to be proud of who she is. I want her to be comfortable in her body. I don’t want her to grow up in a world where she is made to feel less-than for embracing everyt­hing it means to be a woman.

It’s 2016. The body-sham­ing and slut-sham­ing—it’s like, enough is enough. I will not live my life dictated by the issues you have with my sexu­ality. You be you and let me be me.

I am a mother. I am a wife, a sister, a daughter, an entrepreneur and I am allowed to be sexy.

#happyinternationalwomensday”

Ekki almenningseign

Yfir­lýs­ingin minnir nokkuð á það hvað brjósta­bylt­ingin - eða #FreeTheNipple-bar­áttan- vildi koma á fram­færi: konur ráða yfir lík­ama sínum og það hvort horft sé á ákveðna lík­ams­parta á kyn­ferð­is­legan hátt eða ekki er undir þeim sjálfum komið. Líkami Kim hefur vissu­lega verið not­aður í gegnum tíð­ina sem sölu­vara í hinum ýmsu tíma­ritum, og fer­ill hennar hófst að mörgu leyti á því að lík­ami hennar var sýndur kyn­ferð­is­lega í kyn­lífs­mynd­bandi. Kim gæti því verið að minna á og taka til baka valdið sem hún hefur yfir lík­ama sínum með þess­ari umdeildu sjálfu og yfir­lýs­ing­unni sem henni fylgdi. Mynd­birt­ingin er á hennar per­sónu­lega aðgangi og myndin tekin af henni sjálfri og því er það hún sjálf sem hefur valdið. Undir mynd­inni ritar hún síðan brand­ara sem er á eng­ann hátt kyn­ferð­is­legur í eðli sínu.

Spurn­ingin er þá hvort að skömmin sem sam­fé­lagið vill ýta undir sé ein­ungis vegna þess að Kim Kar­dashian-West sé kona, eða hvort það sé vegna þess að hún er í góðu formi. Mögulega þykir ein­hverjum stjarnan ekki geta umflúið eigin for­tíð, að kyn­lífs­mynd­bandið ein­hvern veg­inn skil­greini hana sem mann­eskju og lík­ams­veru og þar af leið­andi verði lík­ami hennar ávallt und­ir­op­inn kyn­ferð­is­legu áhorfi. Kim er mikið í sviðs­ljós­inu og hún er opin­ber stjarna, enda með sjón­varps­þátt þar sem millj­ónir manna geta fylgst með henni næstum dag­lega og gæti það mögu­lega ruglað ein­hverja sem halda að þar með sé hún orðin að almenn­ings­eign. Með mynd­inni minnir Kim á að svo sé ekki, hún ræður yfir sér og sínum lík­ama og að þó hún kjósi að sýna sinn meira en aðrir að þá þýði það ekki að hann sé falur almenn­ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár