SA krefjast þess að boðað verkfall verði dæmt ólögmætt

Samtök atvinnu­lífs­ins hafa höfðað mál fyrir Félags­dómi gegn Eflingu stétt­ar­fé­lagi og kraf­ist að boðað verk­fall 8. mars næst­kom­andi verði dæmt ólög­mætt.

Fólk greiðir atkvæði um verkfall 25. feb 2019
Fólk greiðir atkvæði um verk­fall 25. feb 2019 Mynd: Efling

Samtök atvinnu­lífs­ins hafa höfðað mál fyrir Félags­dómi gegn Eflingu stétt­ar­fé­lagi og kraf­ist að boðað verk­fall 8. mars næst­kom­andi verði dæmt ólög­mætt. Þess er einnig kraf­ist að Efling verði dæmt til greiðslu sektar í rík­is­sjóð vegna brota á lögum um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur.

[links]Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá sam­tök­unum.

„SA telja atkvæða­greiðslu Eflingar hafa verið and­stæða lögum enda verði vinnu­stöðvun, sem ein­ungis sé ætlað að ná til ákveð­ins hóps félags­manna, ein­ungis borin undir þá félags­menn sem vinnu­stöðvun er ætlað að taka til. Einnig er vísað til þess að atkvæða­greiðsla Eflingar hafi ekki verið póst­at­kvæða­greiðsla í skiln­ingi laga enda var atkvæða að mestu aflað með kjör­fundum fyrir utan ein­staka vinnu­staði. Þegar atkvæði eru greidd á kjör­fundi þurfa a.m.k. 20% félags­manna á atkvæða­skrá að taka þátt í atkvæða­greiðslu,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Samkvæmt SA voru fjöl­margir aðrir ann­markar á atkvæða­greiðslu Eflingar og telja þau að Efling hafi hvorki fylgt lögum um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur né reglum sem mið­stjórn ASÍ hefur sett um fyr­ir­komu­lag atkvæða­greiðslna hjá aðild­ar­fé­lögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár