Verkfallsaðgerðir Eflingar samþykktar

Boðaðar hafa verið frek­ari verk­falls­að­gerðir í sam­starfi við VR sem ná til lengri tíma, segir í til­kynn­ingu Eflingar.

Félags­menn Eflingar sam­þykktu boðun verk­falls 8. mars meðal hrein­gern­inga­fólks á hót­elum með „yfir­gnæf­andi meiri­hluta greiddra atkvæða“ eins og segir í til­kynn­ingu á Facebook síðu Eflingar.

Af 862 greiddum atkvæðum voru 769 sem sam­þykktu boð­un­ina, 67 greiddu atkvæði gegn og 26 tóku ekki afstöðu. Ver­falls­boð­unin var því sam­þykkt með 89 pró­sent atkvæða.

Formaður Eflingar, Sólveig Anna Jóns­dóttir, sagði nið­ur­stöð­una mik­inn byr undir báða vægi í kom­andi bar­áttu. „Félags­menn hafa talað. Ég er inni­lega stolt af félags­mönnum okkar sem hafa sent mjög skýr og kröftug skila­boð með atkvæðum sínum. Það var ótrú­legt að upp­lifa and­rúms­loftið á vinnu­stöð­unum þar sem við skipu­lögðum atkvæða­greiðslur.“

Verk­falls­boð­unin telst nú sam­þykkt af félags­mönnum og verður afhent SA og Rík­is­sátta­semj­ara strax eftir að skrif­stofur opna í dag, föstu­dag­inn 1. mars.

„Í dag mun Efling til­kynna um víð­tæk­ari verk­falls­að­gerðir sem verða sam­stilltar með VR og ná lengra fram í tím­ann. Efling þakkar öllum félags­mönnum sem tóku þátt í atkvæða­greiðsl­unni sem og kjör­stjórn Eflingar og starfs­fólki sem vann hörðum höndum að kosn­ing­unni,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Á kjör­skrá voru 7950 ein­stak­lingar og þátt­taka var því rétt tæp 11 pró­sent.

Félags­menn í Eflingu og VR eru um 60 þús­und tals­ins, 32 þús­und í VR en 27 þús­und í Eflingu, að því er segir á vef­síðu Eflingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár