Nýjar slóðir

Kristín Guð­munds­dóttir gefur út sína fyrstu bók.

Daníel dreki
Daníel dreki Mynd: Aðsend mynd

Kristín Guð­munds­dóttir hefur verið að skrifa síðan 2008 eftir tvö nám­skeið „Frá neista yfir í nýja bók“ hjá End­ur­menntun háskóla Íslands. Margar hug­myndir komu upp og núna eru komnar átta sögur fyrir full­orðna að ýmsu tagi ásamt þess­ari bók. Vinkona hennar Becky teikn­aði mynd­irnar í bók­inni. Þær hafa þekkst síðan 1998 þegar Becky var að kenna Kristínu spænsku með góðum árangri. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan. Kristín hefur sett upp facebook síðu og þar getur fólk fylgjst með fram­vindu mála.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

Frá vin­kona mín Becky sem er frá Spáni og hefur búið hér á landi síðan 1995. Hún tal­aði um að það vant­aði góðar bækur fyrir fólk að erlendum upp­runa. Til voru bækur fyrir þá sem eru að byrja læra tungu­málið, það er allt gott um það að segja. En ef fólk vill lesa eitt­hvað meira þá er ekki auð­ugan garð að gresja. Við ákváðum að kýla á þetta og skráðum okkur á Karolina fund. Ég plat­aði kunn­ingja­kona mína og JCI félaga Guðlaugu Birnu Björns­dóttur að hanna kápuna, sem hún gerði lista­vel og höfum við unnið saman í mörgum verk­efnum. Hún miklar þakkir skildar.

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins

Bókin inni­heldur 12 létt­lestrar sögur. Hver saga er sjálf­stæð og það er ekk­ert sér­stakt þema, nema íslensk mál­fræði. Ég reyni að útskýra orðin og orða­sam­böndin sem fyrir koma, með því að láta per­són­urnar tala um það, upp­lifa það eða útskýra á auð­veldan hátt. Ég reyni að hafa sög­urnar sem fjöl­breyttastar og það farið um víðan völl. Mér hefur tek­ist það nokkuð vel að ég held, Becky var him­in­lif­andi þegar hún las þær. Ég kem inn á sögu Íslands, mat­ar­hefðir og margt fleira sem teng­ist íslensku sam­fé­lagi. Um leið er fólk að læra íslensku.

Hver er aðal mark­hóp­ur­inn?

Full­orðið fólk, mér var sagt af sér­kenn­ara að full­orð­ins­fræðslan þurfi á svona bókum að halda. Full­orðið fólk er lengur að ná tungu­mál­inu en krakk­arnir eins og gefur að skilja. Sögurnar eru líka fyrir börn en það er vel haldið utan um þau. Fólk verður að taka lítil skref í einu ef það ætlar að læra okkar flókna tungu­mál. Mér finnst að fólk verði að lesa eitt­hvað skemmti­legt það allt ferlið mun auð­veld­ara.

Hér er hægt að taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár