Auglýsingakaup Kópavogsbæjar í tímariti Sjálfstæðismanna „sjálftaka og spillingarmenning“

Tímarit Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur hlotið hæstu aug­lýs­inga­styrk­ina af öllum útgáfum á vegum stjórn­mála­flokka í Kópavogi á tíma­bil­inu 2014 til 2020 en upp­hæðin nemur 1,4 millj­ónum og er yfir við­mið­un­ar­mörkum.

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Sig­ur­björg Erla Egils­dóttir Mynd: Facebook/Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Sig­ur­björg Erla Egils­dóttir, bæj­ar­full­trúi Pírata í Kópavogi, telur að rétt­ast væri að leggja aug­lýs­inga­styrki til stjórn­mála­flokka af hið snarasta, sam­hliða því að rann­saka þær greiðslur sem Sjálft­stæð­is­flokk­ur­inn í Kópavogi hefur fengið úr bæj­ar­sjóði und­an­farin ár. Frá þessu greinir hún á Facebooksíðu sinni í pistli undir heit­inu „Sjálf­taka, spill­ing­ar­menn­ing og leynd­ar­hyggja í Kópavogi“.

Útskýrir hún mál sitt og bendir á að Kópa­vogs­bær kaupi reglu­lega aug­lýs­ingar í Voga, tíma­riti Sjálf­stæð­is­manna í Kópavogi. Hún hafi kom­ist að þessu fyrir til­viljun og spurst fyrir um hvaða reglur giltu um styrki til stjórn­mála­flokka af þessum toga.

Fékk hún þau svör að við­mið um aug­lýs­ingar til stjórn­mála­flokka hefðu verið ákveðnar á fundi kjör­inna full­trúa árið 2011 og miðað hefði verið við 150.000 krónur á ári. Hún segir að þessi sam­þykkt sé þó hvergi skráð í opin­berum gögnum og þeir flokkar sem hafa komið nýir inn í bæj­ar­stjórn eftir að þetta var sam­þykkt hafi ekki verið upp­lýstir um styrk­ina.

Styrkir yfir viðmiðunarmörkum 2014, 2016 og 2017

Í kjöl­farið spurð­ist Sig­ur­björg Erla fyrir um upp­hæðir þess­ara styrkja síð­ustu tvö kjör­tíma­bil. „Nú er komið í ljós að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur hlotið lang­hæsta aug­lýs­inga­styrk­inn á tíma­bil­inu. Ekki nóg með það, heldur hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn líka hlotið umtals­verðar upp­hæðir greiddar umfram téð við­mið, en fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar 2016 og 2017 keypti Kópa­vogs­bær við­bót­ar­aug­lýs­ingar í Voga, tíma­rit Sjálf­stæð­is­manna.“

Í umsögn lög­fræð­ings á stjórn­sýslu­sviði Kópa­vogs­bæjar sem Kjarninn hefur undir höndum má finna töflu með umræddum skyr­kjum.

Í ofan­greindri töflu má sjá kaup á aug­lýs­ingum Kópa­vogs­bæjar í útgáfum á vegum stjórn­mála­flokk­anna. Í umsögn­inni segir að almennt sé um hefð­bundna aug­lýs­ingu á opn­un­ar­tíma sund­laug­anna að ræða á heil­síðu. Á árunum 2016 og 2017 hafi verið keyptar við­bót­ar­aug­lýs­ingar í Voga vegna alþing­is­kosn­inga og séu kjör­staðir aug­lýstir í þeim til­vikum.

Til þess fallið að fela styrkveitingar til stjórnmálaflokka

Sig­ur­björg Erla segir í pistli sínum að enga stoð sé að finna fyrir þessu í sam­þykktum, engar þess­ara greiðslna hafi komið fyrir bæj­ar­ráð og þær finn­ist hvergi í opnu bók­haldi bæj­ar­ins.

„Þetta fyr­ir­komu­lag er til þess fallið að fela styrk­veit­ingar til stjórn­mála­flokka og gefa ákveðnum flokkum for­skot að hærri styrkjum en öðrum. Fyr­ir­komu­lagið er ógagn­sætt, hvergi birt og ekki kynnt öllum flokkum. Nú er það auk þess orðið ljóst að flokk­ur­inn sem er við stjórn hefur notið þess mest og fengið hæstu styrk­ina,“ skrifar hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár