30% lækkun Icelandair á einni viku

Hluta­bréf í Icelandair hafa lækkað um 30% á einni viku, eftir afkomu­við­vörun frá félag­inu fyrr í vik­unni.

Verð á hluta­bréfum í Icelandair Group lækk­aði áfram í dag, en þó tals­vert minna en í gær. Við lokun mark­aða í dag hafði hluta­bréfa­verð í félag­inu lækkað um 1,54 pró­sent, í rétt um fjögur hund­ruð mill­ljóna króna við­skipt­u­m.

Mark­aðsvirði Icelandair lækk­aði um 24 pró­sent á mið­viku­dag eftir að félagið sendi út afkomu­við­vör­un, og um 3,57 pró­sent í gær. Í heild­ina er lækk­unin á hluta­bréfa­verði í félag­inu 30,04 pró­sent á einni viku.

Alls hefur mark­aðsvirði Icelandair lækkað um rúm­lega 110 millj­arða króna frá því í apríl 2016. Mark­aðsvirðið er nú um 80 millj­arðar króna.

Hægari bókanir og óvissa í alþjóðastjórnmálum

Í til­kynn­ing­unni um versn­andi afkomu sem send var út í vik­unni sagði að að und­an­förnu hafi orðið breyt­ing á bók­un­ar­flæði Icelandair til hins verra. „Bók­anir eru hæg­ari en gert var ráð fyrir og með­al­far­gjöld á mörk­uðum hafa lækkað umfram spár. Þessa þróun má einkum rekja til auk­innar sam­keppni en einnig má leiða líkur að því að óvissa vegna breyt­inga í alþjóða­stjórn­málum hafi áhrif á eft­ir­spurn. Að auki hafa gjald­miðlar þró­ast á óhag­stæðan máta miðað við fyrra ár, olíu­verð hefur hækkað og verk­fall í sjáv­ar­út­vegi hefur nei­kvæð áhrif á frakt­starf­semi félags­ins.“

Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Icelandair Group, sagði í kvöld­fréttum RÚV í vik­unni að hann hefði áhyggjur af stöð­unni og þess vegna hefði afkomu­við­vör­unin verið send út. Hann sagði þó að hafa þyrfti í huga að 2016 hefði verið mjög gott ár hjá félag­inu og að það væri mjög vel í stakk búið til að takast á við áskor­anir sem það stæði frammi fyrir.

Eign lífeyrissjóðs hefur fjórfaldast

Stærsti ein­staki eig­andi Icelandair er Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, sem á 14,7 pró­sent hlut í félag­inu. Hann sendi frá sér til­kynn­ingu í gær þar sem bent var á að meiri­hluti þess hluta­fjár sem sjóð­ur­inn á í Icelandair hafi verið keyptur árið 2010 á geng­inu 2,5, en það er nú 16,2 krónur á hlut.

Vegið kaup­gengi allra hluta í Icelandair sé 3,7 og miðað við það sé virði hluta­bréf­anna enn meira en fjór­falt kaup­virði þeirra. „Þegar tekið hefur verið til­lit til 1.523 mkr arð­greiðslna er raun­á­vöxtun þess­arar fjár­fest­ingar frá 2010 til dags­ins í dag 32,34%, sem telst mjög góð afkoma.“

Lestu frétta­skýr­ingu um hvað sé að valda verð­hruni á bréfum Icelandair hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár