Vilja Sundabraut í einkaframkvæmd, RÚV af auglýsingamarkaði og afnema stimpilgjöld

Þingmenn úr Sjálf­stæð­is­flokki vilja að einka­að­ilar fjár­magni lagn­ingu Sunda­brautar, að RÚV verði tekið af aug­lýs­inga­mark­aði án þess að það tekju­tap verði bætt og afnema 7,1 millj­arða stimp­il­gjöld. Þá vilja þeir að heim­ils­hjálp verði frá­drátt­ar­bær.

Vilhjálmur Árnason og Diljá Mist Einarsdóttir eru á meðal flutningsmanna í öllum málunum.
Vil­hjálmur Árnason og Diljá Mist Ein­ars­dóttir eru á meðal flutn­ings­manna í öllum mál­unum. Mynd: Samsett

Nokkrir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks lögðu í gær fram eina þings­á­lykt­un­ar­til­lögu og þrjú laga­frum­vörp sem fela í sér umdeildar breyt­ingar á nokkrum mála­flokkum. Öll málin hafa áður verið lögð fram en ekki hlotið braut­ar­gengi.

Sú fyrsta, sem Bryndís Har­alds­dóttir er fyrsti flutn­ings­maður á, en Vil­hjálmur Árnason, Haraldur Bene­dikts­son, Njáll Trausti Frið­berts­son og Diljá Mist Ein­ars­dóttir eru líka skrifuð fyrir, fjallar um að sam­göngu­ráð­herra eigi að fela einka­að­ila að fjár­magna í heild lagn­ingu Sunda­brautar.

Það eigi að gera á grund­velli laga um sam­vinnu­verk­efni og sam­göngu­fram­kvæmdir, sem sam­þykkt voru í fyrra­sumar, og fela í sér heim­ild til að semja við einka­að­ila um fjár­mögnun fram­kvæmda, bygg­ingu mann­virkja og veg­hald. Í grein­ar­gerð með til­lög­unni segir að ​​flutn­ings­menn hennar telji „afar brýnt að ráð­ist verði sem fyrst í lagn­ingu Sunda­brautar þar sem ástand umferðar á ein­ungis eftir að versna frá því sem nú er og tryggja þarf örygg­is­leiðir út úr höf­uð­borg­inni til aust­urs og norð­urs ef til nátt­úru­ham­fara kemur.“

Vilja RÚV burt af auglýsingamarkaði

Óli Björn Kárason er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps til laga sem felur í sér að RÚV hætti þátt­töku á aug­lýs­inga­mark­aði í tveimur skrefum án þess að RÚV yrði bætt upp tekju­tapið. Hann lagði einnig fram sama frum­varp í sam­floti við Brynjar Níelsson, fyrr­ver­andi þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, á síð­asta kjör­tíma­bili en það hlaut ekki braut­ar­gengi.

[adspot]Nú eru fleiri þing­menn flokks­ins á meðal flutn­ings­manna. Auk Óla Björns eru Vil­hjálmur, Diljá Mist, Berglind Ósk Guð­munds­dóttir, Ásmundur Frið­riks­son og Hildur Sverr­is­dóttir flutn­ings­menn.

Frum­varpið á, að mati flutn­ings­manna, að styrkja stöðu einka­rek­inna fjöl­miðla og gera RÚV kleift að ein­beita sér að menn­ing­ar­hlut­verki sín­u.

[links]Það gengur út á að frá byrjun næsta árs og út árið 2023 verði RÚV gert óheim­ilt að stunda beina sölu á aug­lýs­ing­um, hlut­fall aug­lýs­inga megi ekki fara yfir fimm mín­útur á hvern klukku­tíma í útsend­ing­ar­tíma, óheim­ilt verði að slíta í sundur dag­skrár­liði með aug­lýs­ingum og bannað að selja kostun á efni. Þátt­töku RÚV á aug­lýs­inga­mark­aði verði svo hætt í byrjun árs 2024.

Ekki er gert ráð fyrir því að RÚV verði bætt það tekju­tap sem fyr­ir­tækið yrði fyrir vegna þessa með öðrum hætti, en tekjur RÚV af sam­keppn­is­rekstri voru 2,2 millj­arðar króna árið 2019 og tæp­lega tveir millj­arðar króna í fyrra, þar af voru um 1,6 millj­arðar króna vegna aug­lýs­inga­sölu.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu kemur fram and­staða við það end­ur­greiðslu­kerfi á rit­stjórn­ar­kostn­aði einka­rek­inna fjöl­miðla sem komið var á fót með lögum fyrr á þessu ári. „ Flutn­ings­menn telja að skyn­sam­legra sé að styrkja stöðu einka­rek­inna fjöl­miðla með því að tak­marka veru­lega sam­keppn­is­rekstur rík­is­ins fremur en að koma upp flóknu kerfi milli­færslna og rík­is­styrkja. Slíkt stuðlar að auknu heil­brigði á fjöl­miðla­mark­aði.“

Afnám stimpilgjalda og skattfrjáls heimilishjálp

Vil­hjálmur er svo fyrsti flutn­ings­maður frum­varpi til laga um afnám stimp­il­gjalda vegna kaupa ein­stak­linga á íbúð­ar­hús­næði, en ein­stak­lingum ber nú almennt að greiða 0,8 pró­sent stimp­il­gjald vegna kaupa á íbúð­ar­hús­næði en þó er veittur helm­ings­af­sláttur þegar um fyrstu kaup er að ræða. Með honum á frum­varp­inu eru Diljá Mist, Njáll Trausti, Óli Björn, Berglind Ósk, Ásmundur og Hildur.

Samkvæmt fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varpi eru tekjur rík­is­sjóðs vegna stimp­il­gjalda áætl­aðar 7,1 millj­arðar króna á næsta ári. Flutn­ings­menn frum­varps­ins telja að gjaldið hafi áhrif til hækk­unar fast­eigna­verðs, dragi úr fram­boði og rýri hlut kaup­enda og selj­enda. „Af fram­an­greindu má ætla að afnám stimp­il­gjalds af fast­eigna­við­skiptum muni auð­velda verð­myndun á hús­næð­is­mark­aði með til­heyr­andi aukn­ingu á fram­boði sem hefur verið með minnsta móti und­an­farin ár.“

Vil­hjálmur er líka fyrsti flutn­ings­maður frum­varps sem hefur hefur þann til­gang að gera að heim­il­is­hjálp frá­drátt­ar­bæra frá skatti. Til slíkra starfa telj­ast t.d. hefð­bundin heim­il­is­störf, svo sem þrif og hrein­gern­ingar, hefð­bundin garð­yrkju­störf eða snjó­mokstur á gang­stéttum og í inn­keyrslu að heim­ili. Þegar hús­fé­lag fjöl­eign­ar­húss ann­ast greiðslu kostn­aðar úr sam­eig­in­legum sjóði vegna slíkra starfa á sam­eign getur ein­stak­lingur dregið sinn hlut í þeim kostn­aði frá tekju­skatts­stofni sínum.

Auk hans eru flutn­ings­menn frum­varps­ins Diljá Mist, Óli Björn, Bergling Ósk, Birgir Þór­ar­ins­son og Guðrún Haf­steins­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár