Semur um 1,3 milljarða króna hátæknivinnslu í Rússlandi

Nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækið Valka hefur samið við Murman Seafood um hönnun og upp­setn­ingu á nýrri hátækni­fisk­vinnslu í Rúss­landi. Heild­ar­samn­ing­ur­inn hljóðar upp á 1,3 millj­arða króna.

Helgi Hjálmarsson, framkvæmdastjóri Völku ehf..
Helgi Hjálm­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Völku ehf.. Mynd: Valka

Valka hefur samið við Murman Seafood um hönnun og upp­setn­ingu á nýrri hátækni­fisk­vinnslu í borg­inni Kola í Murmansk í Rúss­landi. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu.

Samkvæmt fyr­ir­tæk­inu er fisk­vinnslan fyrsta sinnar teg­undar í land­inu og verður tækni­leg­asta bol­fisk­vinnslan í Rúss­landi að upp­setn­ingu lok­inni. Valka mun hafa yfir­um­sjón með verk­efn­inu en auk Völku koma fleiri tækja­fram­leið­endur að upp­setn­ingu vinnsl­unnar. Heild­ar­samn­ing­ur­inn hljóðar upp á 1,3 millj­arða króna.

Verk­efnið hefur verið í und­ir­bún­ingi í rúm­lega ár og er gang­setn­ing áætluð seinni hluta næsta sum­ars.

Murman Seafood gerir út sex frysti­tog­ara og er eitt þeirra fyr­ir­tækja sem fékk úthlutað við­bót­ar­kvóta hjá rúss­neskum yfir­völdum gegn því að fjár­festa í land­vinnslu. Vinnslu­húsið sem byggt verður frá grunni verður búið nýj­ustu tækni og tækjum og þar á meðal eru sjálf­virkar beina- og bita­skurða­vélar frá Völku.

Með nýja vinnslu­kerf­inu gefst Murman Seafood tæki­færi til þess að hámarka verð­mæti þeirra 50 tonna af hrá­efni sem áætlað er að vinna í nýju vinnsl­unni á degi hverjum. Fram að þessu hefur hrá­efnið að mestu leyti verið selt heilfryst en með þess­ari fjár­fest­ingu getur fyr­ir­tækið boðið upp á ferskar hágæða vörur sem eru til­búnar á neyt­enda­markað.

Helgi Hjálm­ars­son fram­kvæmda­stjóri Völku ehf. segir það hafa verið mjög ánægju­legt að vinna að und­ir­bún­ingi að þessu metn­að­ar­fulla verk­efni með Murman Seafood. „Þetta er fyrsta verk­efni þess­arar teg­undar hjá Völku og stefnum við að því að þróa starf­semi okkar enn frekar í þessa átt. Ávinn­ing­ur­inn af því að einn aðili sjái um allan tækja­búnað í stað fjöl­margra fyr­ir­tækja er að flýta vinnslu­ferl­inu og sjá til þess að flæðið í vinnsl­unni sé með sem bestu móti. Með þess­ari nálgun verður vinnslan sú tækni­leg­asta í Rúss­landi, fram­leið­inin hámörkuð og fisk­ur­inn skor­inn með þeim hætti að verð­mæti hans sé sem mest,“ segir hann.

Denis V. Khiznyakov fram­kvæmda­stjóri land­vinnslu hjá Murman Seafood segir að með bygg­ingu á þess­ari hátækni­verk­smiðju sé verið að bregð­ast við þörfum mark­að­ar­ins og bæta sam­keppn­is­stöð­una á alþjóða­mark­aði.

„Við munum áfram fram­leiða hefð­bundar flaka­af­urðir en einnig hefja fram­leiðslu á bitum sem kallar á auk­inn sveigj­an­leika og tækni­stig í vinnsl­unni. Afurð­irnar okkar verða seldar bæði inn­an­lands og til útflutn­ings. Við erum afar ánægðir með sam­starfið við Völku fram að þessu, þeir eru mjög lausn­a­mið­aður sam­starfs­að­ili. Vinnslu­línan frá þeim er sú full­komn­asta sem er í boði í dag og mun skapa okkur ákveðna sér­stöðu,“ segir Denis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár