Í kappi við tímann - Meiri útgjöld í pípunum

Þrýst er á um meiri útgjöld til ýmissa inn­viða­verk­efna.

Stóra myndin í fjár­laga­frum­varp­inu er að skýr­ast, en rík­is­stjórnin vinnur nú að því að koma saman helstu áherslum ráðu­neyta, áður en Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra, leggur fram nýtt frum­varp.

Ljóst er að mikið kapp við tím­ann er framundan, þar sem sam­þykkjar þarf fjár­lög fyrir næsta ár fyrir ára­mót, en skammur tími verður til umfjöll­unar á Alþingi. Nú er stefnt að því að Alþingi komi saman 14. des­em­ber.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, sagði í fréttum RÚV í kvöld að hún hefði „góð orð“ frá leið­togum ann­arra flokka fyrir því að þetta muni ganga upp.

Í fjár­laga­frum­varpi Bene­dikts Jóhann­es­sonar, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, var ráð fyrir því gert að afgangur yrði 44 millj­arðar af fjár­lögum næsta árs, en útlit er nú fyrir að hann verði eitt­hvað minni í fjár­laga­frum­varpi Bjarna.

Sér­stak­lega er þrýst á um aukin útgjöld til heil­brigðis- og mennta­mála, auk þess sem auknar áherslur á sam­göngu­fram­kvæmdir munu birt­ast í fjár­lög­unum. Þá munu breyt­ingar á gjöldum og skatt­heimtu einnig setja sitt mark á frum­varpið. Betri afkomu af rík­is­rekstr­inum, þegar kemur að tekjum, mun þó koma á móti og hafa áhrif til góðs á heild­ar­út­kom­una.

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­flokk­anna, Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins, er fjallað um efna­hags­málin meðal ann­ars útfrá mik­il­vægi þess að styrkja inn­viði lands­ins. „Tekist hefur að ná jafn­vægi í rík­is­fjár­málum en þegar horft er til inn­viða sam­fé­lags­ins og nýrra við­fangs­efna blasa við brýn og umfangs­mikil verk­efni. Efna­hagur á lands­vísu hefur vænkast hratt und­an­farin ár en gæta þarf að jafn­vægi með þjóð­inni og tæki­færum allra sem landið byggja. Stefna þarf að stöð­ug­leika til lengri tíma og auka gagn­sæi í athafna­lífi og allri stjórn­sýslu til að efla traust almenn­ings á rekstri fyr­ir­tækja, fjár­mála­lífi, stjórn­málum og stofn­unum sam­fé­lags­ins,“ segir í stefnu­yf­ir­lýs­ingu stjórn­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár