Orðið krefjandi fyrir Noreg að eiga stærsta fjárfestingasjóð í heimi

Norski olíu­sjóð­ur­inn er nú á við fimm­tíu­falda árlega lands­fram­leiðslu á Íslandi.

Norski olíu­sjóð­ur­inn á eignir upp á 885 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um ríf­lega 101 þús­und millj­örðum króna. Það er upp­hæð sem nemur 50 faldri árlegri lands­fram­leiðslu á Íslandi. Til sam­an­burðar þá búa rúm­lega fimm millj­ónir í Noregi en 334 þús­und á Íslandi. Fjöldi Íslend­inga í Noregi er nú tal­inn vera kom­inn yfir tíu þús­und en þeim hefur fjölgað umtals­vert í land­inu frá því að fjár­mála­kerfið hrundi í októ­ber 2008.

Olíu­sjóður Noregs hefur á und­an­förnum árum bólgnað út og er hann orð­inn umsvifa­mesti fjár­fest­inga­sjóður sinnar teg­undar í heim­inum. Eignir hans í verð­bréfum eru sér­stak­lega áhrifa­miklar á skráðum hluta­bréfa­mörk­uðum erlendis, en ríf­lega 97 pró­sent af eignum sjóðs­ins eru utan norska hag­kerf­is­ins.

The Economist fjall­aði ítar­lega um stöðu sjóðs­ins á dög­unum, og benti á að mik­il­vægi hans fyrir Noreg hefði aldrei verið meira og það muni aukast mikið á næst­unni. Ástæðan er meðal ann­ars sú að olíu­verð hefur lækkað mikið og horfur á olíu­mörk­uðum hafa verið frekar slæmar. Fyrir vikið er inn­streymi í sjóð­inn frá olíu­lindum Noregs lík­legt til þess að verða minna en áður.

Í þessu árferði reynir því á yfir­menn sjóðs­ins, með þá Yngve Slyngstad sjóðs­stjóra og félaga í broddi fylk­ingar.

Norski olíu­sjóð­ur­inn á stóra eign­ar­hluti í flestum stærstu hluta­fé­lögum heims­ins, ekki síst í tækni­geir­anum. Sam­an­lagt virði hans í skráðum verð­bréfum nemur tveimur pró­sentum af öllum hluta­bréfum í Evrópu, og einu pró­senti á heims­vísu. Sjóð­ur­inn á ríf­lega 1 pró­sent í Alphabet, Microsoft, Apple og Facebook (kannski brást Facebook við óánægj­unni í Noregi með rit­skoðun á sam­fé­lags­miðlinu, vegna­þess að þetta kom óbeint frá stórum hlut­hafa, hver veit?), en verð­bréfa­eign­irnar liggja í meira níu þús­und hluta­fé­lögum í 78 löndum.

Í The Economist kemur fram að góður árangur sjóðs­ins eigi sér skýr­ingar í skyn­sam­legri upp­setn­ingu og algjöru sjálf­stæði frá stjórn­mála­mönnum, þrátt fyrir að Seðla­banki Noregs og fjár­mála­ráðu­neytið hafi ákveðna aðkomu að honum. En með því að tryggja sjálf­stæði við stjórn, og hafa algjört gagn­sæi í fjár­fest­ingum, þá sé í sjóðnum mik­il­vægt innra aðhald sem gerir honum kleift að taka alltaf vand­aða ákvarð­anir við fjár­fest­ingar.

En þær eru vita­skuld aldrei áhættu­lausar, eins og reglu­legar sveiflur á hluta­bréfa­mörk­uðum eru til vitnis um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár