Norðmenn fengu Facebook til að bakka með ritskoðun

Ein­hverra hluta vegna var sögu­leg verð­launa­ljós­mynd Nick Ut tekin úr birt­ingu á Facebook. Eftir mót­mæli, var ákvörð­un­inni snúið. Facebook ræður miklu um hvað fær dreif­ingu á net­inu, og hvað ekki.

Eftir kröftug mót­mæli, þar sem for­svars­menn sam­skipta­mið­ils­ins Facebook voru sak­aðir um grófa rit­skoðun, fór sögu­fræg mynd verð­launa­ljós­mynd­ar­ans Nick Ut, af níu ára nak­inni stúlku koma hlaup­andi undan Napalm sprengju í Víetnam-stríð­inu, aftur í birt­ingu. Hún hafði verið tekin út af vefnum, allt í einu, af Facebook.

Bannið mætti mik­illi and­stöðu, ekki síst í Noregi, þar sem fjöl­miðlar mót­mæltu bann­inu strax kröft­ug­lega og bentu á hið aug­ljósa, að þarna væri Facebook farið að rit­skoða not­endur með óeðli­legum hætti.

Erna Solberg for­sæt­is­ráð­herra var meðal þeirra sem settu mynd­ina inn á Facebook-síðu sína og mót­mælti hún fram­ferði Facebook harð­lega.

Facebook breytti um stefnu, síð­degis í gær, og var þá sagt að myndin hefði sögu­legt gildi og að það myndi vega þyngra en að eitt barn skuli vera nakið á mynd­inni.

Myndin var tekin 8. júní 1972 í þorp­inu Tang Bang. Ut var þá ljós­mynd­ari fyrir AP, 21 árs­gam­all, og náði ein­stökum myndum af skelfi­legum afleið­ingum Napalm-sprengjuregns Banda­ríkja­hers. Börn komu hlaup­andi undan eld­haf­inu og beint í átt­ina að Ut, sem mynd­aði atburða­rás­ina. Hann hlaut Pulitzer verð­launin fyrir mynd­ina. Árið 2012 fékk hann heið­ursverð­laun Pulitzer fyrir fram­lag sitt til blaða­ljós­mynd­unar á 40 ára ferli, sem hófst með ferð hans til Tang Bang.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár