Hversu miklar tekjur hefur ríkissjóður haft af veiðigjöldum síðan 2005 á verðlagi ársins 2015?

Þórólfur Matth­í­as­son, pró­fessor í hag­fræði, svarar fyrstu spurn­ing­unni á Stað­reynda­vakt­inni.

Hér á eftir birtist fyrsta svarið í Staðreyndavaktinni. Svarið kemur frá staðreyndavakt Vísindavefsins, og má einnig finna á vef Vísindavefsins.

Í töflu 1 má finna yfir­lit yfir inn­heimt veiði­gjöld á árunum 2005 til 2014 sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Fjár­sýslu rík­is­ins. Einnig er sýnd áætluð inn­heimta árs­ins 2015 og áætlun í

fjár­laga­frum­varpi

fyrir árið 2016 um inn­heimt veiði­gjöld á því ári sem nú er að líða.

Tafla 1:

Innheimt veiði­gjöld frá 2005-2016.

ÁrVeiði­gjald, millj­ónir króna, hlaup­andi verð­lag
2005786
2006432
2007875
2008-270
20091.015
20102.265
20113.893
20129.836
20139.724
20148.121
20157.410
20167.852

Vert er að vekja athygli á að inn­heimt gjald árið 2008 telst nei­kvætt þar sem gjaldið sem hafði verið lagt á fyrir fisk­veiði­árið 2007/2008 var lækkað með lögum nr. 151/2007 sem tóku gildi 29. des­em­ber 2007.

[adspot]

Tafla 1 ber með sér að inn­heimt gjald var hæst árið 2012, rétt tæpir 10 millj­arðar króna á hlaup­andi verð­lagi. Samtals voru greiddir 52 millj­arðar króna í veiði­gjöld á tíma­bil­inu.

Tafla 2 sýnir stað­virtar upp­hæðir þar sem not­ast er við þrjár ólíkar verð­vísi­tölur til stað­virð­ing­ar­innar. Í fyrsta lagi er það verð­vísi­tala sjáv­ar­af­urða, í öðru lagi verð­vísi­tala sam­neysl­unnar og í þriðja lagi vísi­tala neyslu­verðs. Graf 1 sýnir sömu upp­lýs­ingar á grafi.

Tafla 2:

Innheimt veiði­gjöld frá 2005-2016 miðað við þrjár ólíkar verð­vísi­tölur til stað­virð­ingar. Upphæðir eru í millj­ónum króna.

ÁrFast verð­lag 2015 (verð­vísi­tala sjáv­ar­af­urða)Fast verð­lag 2015 (verð­lag sam­neyslu)Fast verð­lag 2015 (neyslu­verðs­vísi­tala)
20052.2621.5001.378
2006977758710
20071.8941.4411.368
2008-406-402-376
20091.2761.3721.261
20102.7482.9142.669
20114.2124.7504.411
20129.93111.35310.596
201310.45810.77310.084
20148.6558.6688.254
20157.4107.4107.410

Graf 1: Innheimt veiði­gjöld frá 2005-2016 miðað við þrjár ólíkar verð­vísi­tölur til stað­virð­ingar. Upphæðir eru í millj­ónum króna.

Í öllum til­vikum eru fjár­hæðir færðar til verð­lags árið 2015. Ekki er gerð til­raun til að færa áætl­aða inn­heimtu árs­ins 2016 til verð­lags árs­ins 2015. Tölurnar bera með sér að verð­mæti veiði­gjalds­ins hafi hækkað mikið milli áranna 2011 og 2012 og fari síðan lækk­andi frá árinu 2013.

Upp­runa­lega spurn­ingin var: Hversu miklar tekjur hefur ríkið af veiði­gjöldum og er rétt að útgerðin greiði lægri veiði­gjöld nú en áður?

Svarið er að á árunum 2005-2016 fékk ríkið 52 millj­arða króna í veiði­gjöld og þau hafa farið lækk­andi frá árinu 2012.

Sjá einnig hvað útgerðin hefur borgað í veiði­gjald á hvert þorskígildiskíló frá árinu 2005.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár