Vanhæfur vegna tals um „bankabófa“ og deilinga á samfélagsmiðlum

Ásgeir Brynjar Torfason, lektor í við­skipta­fræði, tal­aði um banka­bófa í vid­eo­bloggi árið 2011 og það er meðal ann­ars grund­völlur þess að Hæsti­réttur dæmdi hann van­hæfan sem með­dóm­ara í Marple-mál­inu.

Skúli Þorvaldsson, einn sakborninganna.
Skúli Þor­valds­son, einn sak­born­ing­anna.

Ásgeir Brynjar Torfason, lektor í við­skipta­fræði við Háskóla Íslands, tal­aði um „banka­bófa“ í við­tali árið 2011 og það lýsti afstöðu hans til stjórn­enda íslensku bank­anna að mati Hæsta­réttar Íslands. Þetta er meðal ástæðna þess að Hæsti­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu í dag að Ásgeir Brynjar hefði verið van­hæfur til að vera með­dóms­maður í Marple-mál­inu svo­kall­aða, þar sem fyrr­ver­andi stjórn­endur Kaup­þings eru meðal sak­born­inga.

Því þarf að taka málið aftur fyrir í hér­aðs­dómi Reykja­víkur, sem hafði áður kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að þeir Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og Skúli Þor­valds­son fjár­festir skyldu dæmdir í sex mán­aða fang­elsi og að Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, skyldi dæmdur í 18 mán­aða fang­elsi. Hér­aðs­dómur sýkn­aði Guðnýju Örnu Sveins­dóttur, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóra bank­ans. Málið snýst um til­­­færslu á um átta millj­­örðum króna úr sjóðum Kaup­­þings til félags­­ins Marple Hold­ing, í eigu Skúla. Málið var höfðað á þeim for­sendum að þetta hefði verið gert án þess að lög­­­mætar við­­skipta­­legar ákvarð­­anir lægju þar að baki.

Verj­endur sak­born­inga týndu ýmis ummæli Ásgeirs Brynjars, meðal ann­ars á bloggi Egils Helga­sonar, og deil­ingar á sam­fé­lags­miðlum til máli sínu til stuðn­ings. Þá var einnig fundið að því að hann væri stjórn­ar­maður í félag­inu Gagnsæi, sam­tökum gegn spill­ingu.

Hæsti­réttur segir að þátt­taka hans í slíku félagi geti ekki ein og sér leitt til þess að hann telj­ist van­hæfur. Hann hafi einnig látið frá sér ummæli sem hafi verið almenns eðlis og ekki beinst sér­stak­lega gegn stjórn­endum Kaup­þings, bæði á bloggi Egils Helga­sonar og í grein í Frétta­blað­inu.

„Á hinn bóg­inn hefur með­dóms­mað­ur­inn ítrekað á sam­skipta­miðlum tekið upp fréttir af dóms­málum gegn stjórn­endum A hf. [Kaupþing] og birt mynd meðal ann­ars af ákærðu Y [Hreiðar Már Sig­urðs­son] og Z [Magnús Guð­munds­son] við frá­sögn um sak­fell­ingu þeirra í dóms­máli. Þær til­grein­ingar verða ekki skildar á annan veg en þann, að með­dóms­mað­ur­inn lýsi yfir stuðn­ingi við það, sem fram kom í því efni sem hann tekur upp. Þá lýsir tal hans um ,,banka­bófa“ sem hann við­hafði á árinu 2011 afstöðu hans til stjórn­enda bank­anna, þar með talið ákærðu,“ segir í nið­ur­stöðu Hæsta­réttar.

Sum ummæli Ásgeirs Brynjars hafi sýnt „ein­dregna afstöðu með­dóms­manns­ins til stjórn­enda bank­anna,“ meðal ann­ars þeirra Hreiðars Más og Magnúsar sér­stak­lega.

Samkvæmt því sem fram kemur í dómi Hæsta­réttar var í að minnsta kosti ein­hver skipti ein­göngu um að ræða til­vik þar sem Ásgeir Brynjar „merkti við“ ummæli á Twitter eða Facebook, eða deildi fréttum án þess að segja nokkuð um þær. „Ummæli og afstaða í garð stjórn­enda bank­anna verður einnig að meta í ljósi almennrar afstöðu með­dóms­manns­ins og yfir­lýstra áhuga­mála hans.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár