Íslensk aðildarfélög KSÍ gætu fengið um hálfan milljarð króna

Svo gæti farið að aðild­ar­fé­lög Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) fái um hálfan millj­arð króna í styrki frá sam­band­inu í ár. Þegar var búið að ákveða að þau myndu fá 300 millj­ónir króna vegna þess að íslenska karla­lands­liðið tryggði sér þátt­töku á EM í knatt­spyrnu. Frábær árangur liðs­ins, sem komst í átta liða úrslit á mót­inu, gerði það að verkum að sú upp­hæð sem KSÍ fékk frá Knatt­spyrnu­sam­bandi Evrópu (UEFA) fyrir þátt­töku fór úr 1,1 millj­arði króna í 1,9 millj­arða króna. Ef miðað er við að upp­hæðin sem fellur íslensku félög­unum í skaut hækki í sama hlut­falli og tekjur KSÍ af EM þá verður upp­hæðin um 518 millj­ónir króna. Hins vegar verður að taka mið af því að kostn­aður vegna þátt­töku lands­liðs­ins jókst sökum þess hversu vel gekk og greiðslur til leik­manna hækk­uðu sömu­leiðis umtals­vert. Það gæti lækkað greiðslur til aðild­ar­fé­lag­anna.

Í Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, í dag er haft eftir Geir Þor­steins­syni, for­manni KSÍ, að ekki sé enn búið að ákveða hvernig fénu verði skipt á milli félag­anna en að hann von­ist til þess að það skýrist síðar í þessum mán­uði.

Stjórn KSÍ sem ákveður hvernig gullpotturinn skiptist

Það verður stjórn KSÍ sem tekur ákvörðun um hvernig fénu verður skipt og ljóst er að um mikla búbót verður fyrir þau.

Kjarninn greindi frá því í febr­úar að á árinu 2015 hafi félögin í Pepsí-­deild karla fengið 40 millj­óna króna styrk frá UEFA vegna barna- og ung­linga­starfs. KSÍ greiddi síðan öðrum aðild­ar­fé­lög­um en þeim sem léku í Pepsí-­deild karla 41,5 millj­ónir króna (um 28 pró­sent af heild­ar­kök­unn­i), félögum í Pepsí-­deild karla 71,1 milljón króna vegna út­send­ing­ar- og mark­aðs­réttar (48 pró­sent) og félögum í leyfis­kerfi KSÍ 22,8 millj­ónir króna (16 pró­sent). Þá greiddi KSÍ 11,6 millj­ónir króna (átta pró­sent) í ferða­þátt­töku­gjald, verð­launafé og fleira á árinu 2015. Sam­tals gera þessar greiðslur KSÍ til­ að­ild­ar­fé­laga 147 millj­ónir króna. 

Í fjár­hags­á­ætlun KSÍ, sem birt var í febr­úar, kom fram að styrkir og fram­lög til aðild­ar­fé­laga KSÍ væru áætl­aðir 413 millj­ónir króna á árinu 2016, en voru 147 millj­ónir króna í fyrra. Inni í þeirri tölu voru þær 300 millj­ónir króna sem skipta átti niður á aðild­ar­fé­lög vegna þátt­töku Íslands á EM. Um var að ræða lang­hæstu tölu sem KSÍ hefur ætlað að deila út til aðild­ar­fé­laga og nú er ljóst að hún mun hækka enn frekar.

Kostn­aður KSÍ vegna móts­ins hefur einnig hækkað, þótt ekki liggi með öllu fyrir hversu hár hann er. Þar skiptir máli að liðið var á end­anum í heilan mánuð í Frakk­landi með til­heyr­andi kostn­aði vegna uppi­halds. Auk þess greindi Morg­un­blaðið frá því í gær að leik­menn og þjálf­arar muni, sam­kvæmt útreikn­ingum blaðs­ins, skipta á milli sín greiðslu upp á 950 millj­ónir króna vegna árang­urs­ins. Það þýðir að hver og einn mun fá um 38 millj­ónir króna að með­al­tali.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

em2016

Fréttirem2016

Starfs­fólk KSÍ fær bón­us­greiðslur vegna EM

Starfs­fólk Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) fær greitt launa­upp­bót sökum álags í tengslum við þátt­töku A-lands­liðs karla á EM í Frakk­landi í sumar, þar sem liðið komst í átta liða úrslit. Uppbótin mun sam­svara mán­að­ar­launum hvers starfs­manns. Stjórn KSÍ sam­þykkti þetta á fundi í júlí. Frá mál­inu er greint í Frétta­blað­inu í dag. Geir Þor­steins­son, for­maður KSÍ, bar fram til­lög­una þegar hún...
Fréttirem2016

Eft­ir­spurn eftir gist­ingu í Frakk­landi jókst mest meðal Íslend­inga

Tífalt fleiri Íslend­ingar leit­uðu eftir gist­ingu í Frakk­landi á fyrri hluta þessa árs en í fyrra á vef Hotels.com, enda náði íslenska landsiðið í knatt­spyrnu langt á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu sem fram fór í Frakk­landi í júní. Sam­an­borið við önnur lið sem náðu jafn langt og Ísland í keppn­inni juk­ust leitir Íslend­inga mest. Að jafn­aði fjölg­aði leitum að hót­el­her­bergjum í Frakk­landi um...
Pistillem2016

Þórður Snær Júlíusson

Þegar Arnór Ingvi tryggði Portú­gölum Evr­ópu­meist­ara­titil

Úrslita­leikir hafa til­hneig­ingu til að vera leið­in­legir. Þeir sem hafa ekki verið það eru telj­andi á fingrum ann­arar handar. Mexíkó 1986, kannski úrslita­leikur EM 2000, úrslita­leikur meist­ara­deild­ar­innar í Istanbúl árið 2005 koma upp í hug­ann. Þótt ýmsir leikir hafi inni­haldið hádramat­ísk augna­blik, t.d. magn­aður sigur Manchester United á Bayern Munich árið 1999, þá var leik­ur­inn sjálfur að mestu hund­leið­in­legur. Úrslita­leikur...
Erlentem2016

Portúgal Evr­ópu­meist­arar eftir sigur á Frökkum

Portúgal er Evr­ópu­meist­ari eftir að hafa sigrað Frakk­land 1-0 í úrslita­leik EM 2016. Eina mark leiks­ins var skorað af vara­mann­inum Eder, sem á 109 mín­útu leiks­ins. Heima­menn í Frakk­landi höfðu þótt mun sig­ur­strang­legri fyrir leik­inn og sig­ur­líkur þeirra þóttu ekki minnka þegar Cristiano Ronaldo, einn besti knatt­spyrnu­maður sög­unnar, þurfti að fara meiddur af velli um miðjan fyrri hálf­leik. Fyrir leik­inn...
Erlentem2016

Kolbeinn við það að verða kos­inn leik­maður EM á vef Sky

Kolbeinn Sig­þórs­son, fram­herji íslenska lands­liðs­ins og franska liðs­ins Nantes, er í efsta sæti í kosn­ingu á leik­manni EM hjá Sky. Kolbeinn hefur fengið yfir 20 þús­und atkvæði en Antoine Griezmann, helsta stjarna franska lands­liðs­ins, situr í öðru sæti með um 18 þús­und atkvæði. EM lýkur síðar í dag með úrslita­leik heima­manna í Frakk­landi gegn liði Portúgal. Íslenska lands­liðið datt sem...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár