Eru rafbílar hagkvæmir á Íslandi?

Rafbílar hafa verið áber­andi í umræð­unni og hlut­deild þeirra í bíla­flota Íslend­inga eykst jafnt og þétt. En borgar sig fyrir alla Íslend­inga að eiga svona bíl?

Erna Gísladóttir forstjóri BL, umboðsaðila rafmagnsbílsins Nissan Leaf.
Erna Gísla­dóttir for­stjóri BL, umboðs­að­ila raf­magns­bíls­ins Nissan Leaf. Mynd: Anton Brink

Hag­kvæmni raf­bíla mun aukast til muna undir lok þessa árs þegar hægt verður að keyra hring­veg­inn á raf­magni innan skamms, eins og fjallað var um fyrir tveimur vikum síðan. Hins vegar, þótt gíf­ur­leg aukn­ing hafi verið í fjölda nýskráðra raf­bíla, eru þeir ein­ungis 1,5% af bíla­flota Íslend­inga. Meiri­hluti bíla­kaup­enda kjósa frekar bens­ín­bíl heldur en raf­bíl enn sem komið er, en hvor kost­ur­inn er hag­kvæm­ari?

Útreikn­ingar Kjarnans sýna að raf­bílar séu hag­kvæmir í vissum til­fellum vegna nið­ur­greiðslu rík­is­ins. Samkvæmt Hag­fræði­stofnun eru nið­ur­greiðslur til raf­bíla hins vegar ekki þjóð­hags­lega hag­kvæmar þessa stund­ina, en mögu­legt er að þær verði það í fram­tíð­inni.

Dýrar græjur

Raf­bíla­kaup eru nokkuð dýr­ari en bens­ín­bílar, þrátt fyrir að vera und­an­þegnir virð­is­auka­skatti og vöru­gjöldum. Hærra inn­kaupa­verð stafar fyrst og fremst af lít­illi stærð­ar­hag­kvæmni bíl­anna, en stutt er síðan byrjað var að fjölda­fram­leiða þá og enn er ekki næstum því jafn­mikið fram­leitt af þeim og bens­ín­bílum. Með auk­inni fjölda­fram­leiðslu og stærri verk­smiðjum mun fram­leiðslu­kostn­aður á hvern bíl lækka, en búist er við að kaup­verð á raf­bíl muni að með­al­tali lækka um 8% á ári.

Ef borin eru saman kaup­verð á tveimur raf­bílum (Nissan Leaf og e-Golf) við sam­bæri­lega bens­ín­bíla (Nissan Pulsar og Golf) hjá bíla­um­boðum á Íslandi kemur í ljós að kaup­verð raf­bíl­anna er um 800 þús­und krónum hærra, eða 125-133% af kaup­verð bens­ín­bíl­anna.

Mun ódýrari í rekstri

Þrátt fyrir hærra inn­kaups­verð sparar eig­andi raf­bíls miklar fjár­hæðir við að þurfa ekki að kaupa bensín. Raf­magns­verð er mun ódýr­ara en bens­ín­verð, auk þess sem við­halds­kostn­aður er minni hjá raf­magns­bílum. Í sam­tali við VÍS fékk Kjarninn þær upp­lýs­ingar að not­endur raf­bíla og tvinn­bíla greiða lægri iðgjöld af bíla­trygg­ingum, en ómögu­legt væri að segja hversu mikið lægri þau eru þar sem þau eru háð mörgum þáttum.

Kjarninn bar saman kaup- og rekstr­ar­verð á tveimur raf­magns­bílum (Nissan Leaf og e-Golf) við tvo sam­bæri­lega bens­ín­bíla (Nissan Pulsar og Golf), en sam­an­burð­ur­inn bendir til þess að ódýr­ara sé að kaupa raf­magns­bíl heldur en bens­ín­bíl ef kaup- og rekstr­ar­kostn­aður eru tekin með í reikn­ing­inn. Útreikn­ing­ana ásamt gefnar for­sendur má sjá í töflu hér að neðan:

Kostnaðarsamanburður á rafmagnsbíl og bensínbíl

Kostn­að­ar­liðirEiningarViðmið
Raf­orku­verð14,43 Kr/kWstRaf­orku­verð 26. júlí
Bens­ín­verð195,7 Kr/LBens­ín­verð 26. júlí
Með­alakstur á dag32,16 KmTölur frá Sam­göngu­stofu
Afvöxt­un­ar­stuð­ull5,0%skýrsla Hag­fræði­stofn­unnar um raf­bíla
Árlegur vöxtur bens­ín­verðs5,1%Spá orku­mála­stofn­unnar Banda­ríkj­anna
Árlegur vöxtur raf­orku­verðs2%Í takti við vísi­tölu neyslu­verðs (Hag­fræði­stofnun 2016)
Kaupverð bens­ín­bíls2.945.000 KrMeðaltal á verði Nissan Pulsar og Volkswagen Golf sam­kvæmt BL og Heklu
Kaupverð raf­magns­bíls3.770.000 KrMeðaltal á verði Nissan Leaf og Volkswagen e-Golf sam­kvæmt BL og Heklu
Eyðsla bens­ín­bíls5,25 L/100 KmMeðaltal Nissan Pulsar og Volkswagen Golf sam­kvæmt BL og Heklu
Eyðsla raf­magns­bíls12,4 KWst/100 KmMeðaltal Nissan Leaf og Volkswagen e-Golf sam­kvæmt BL og Heklu
End­ing­ar­tími bíls­ins12,5 árMeð­al­aldur íslenska bíla­flot­ans 2016
Trygg­ingar, skattar og skoðun - bens­ín­bíll218.300 kr. hvert árFélag íslenskra bif­reiða­eig­enda
Trygg­ingar, skattar og skoðun - raf­magns­bíll218.300 kr. hvert árFélag íslenskra bif­reiða­eig­enda
Viðhald og við­gerðir - bens­ín­bíll190.000 kr. hvert árFélag íslenskra bif­reiða­eig­enda
Viðhald og við­gerðir - raf­magns­bíll170.000 kr. hvert ár*Félag íslenskra bif­reiða­eig­enda
Raun­kostn­aður bens­ín­bíls8.240.108 kr.
Raun­kostn­aður raf­magns­bíls7.549.600 kr.
Sparn­aður við að kaupa raf­magns­bíl690.508 kr.

*Hér er gert ráð fyrir að við­halds­kostn­aður sé um 20.000 krónum minni á ári hjá raf­bílum, þar sem færri auka­hlutir eru í þeim. Ef gert er ráð fyrir að við­halds­kostn­að­ur­inn væri sá sami myndi sparn­aður við að eign­ast raf­magns­bíl vera 507.875 kr.

Ýmsar hindranir

Ekki er öll sagan sögð með þessum útreikn­ingum, enn eru margir þættir sem standa í vegi fólks fyrir að kaupa raf­magns­bíl. Einn þeirra er drægnin, en flestir raf­bílar ná aðeins að keyra 100-300 kíló­metra á einni hleðslu. Þetta geti orðið vanda­mál utan þétt­býl­is­svæð­is­ins, þar sem langt og mis­fært er milli hleðslu­stöðva. Önnur hindrun er skortur á raf­teng­ingu við bíla­stæði í fjöl­býli, svo erfitt er fyrir marga blokkarí­búa að hlaða bíla sína á nótt­unni.

Umræddar hindr­anir gætu útskýrt að miklu leyti hvers vegna margir kjósa frekar að kaupa bens­ín­bíl, en búist er við að draga muni úr þeim í náinni fram­tíð. Hrað­hleðslu­stöðvum fjölgar ört víða um land og umhverf­is­ráðu­neytið vinnur nú að því að setja bind­andi ákvæði um tengi­búnað fyrir raf­bíla í bygg­ing­ar­reglu­gerð.

Borgar þetta sig?

Kostn­að­ar­sam­an­burð­ur­inn sýnir að ódýr­ara sé að kaupa og reka raf­bíl en svip­aðan bens­ín­bíl ef drægni bíls­ins er ekki vanda­mál. Hins vegar, fyrir ein­stak­ling sem býr í fjöl­býli eða utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er alls óvíst hvort raf­bíla­kaup borgi sig þessa stund­ina. Það mun að öllum lík­indum breyt­ast í náinni fram­tíð þar sem kaup­verð raf­bíla fer lækk­andi, drægni eykst og hrað­hleðslu­stöðvum fjölgar um allt land.

Óhagkvæmt fyrir ríkið – enn sem komið er

Skýrsla Hag­fræði­stofn­unnar árið 2016 um þjóð­hags­legan kostnað raf­bíla gefur ekk­ert sér­stak­lega jákvæða nið­ur­stöðu fyrir nota­gildi raf­bíla. Samkvæmt henni eru raf­bílar of dýrir og bens­ín­verð of lágt til þess að nið­ur­greiðsla til þeirra borgi sig í þjóð­hags­legum skiln­ingi. Til séu hag­kvæm­ari leiðir til þess að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, til að mynda end­ur­heimt vot­lendis.

Ekki þarf þó mikið til að nið­ur­stöður skýrsl­unnar breyt­ist, lækki raf­bíll um 12% í verði að öllu óbreyttu muni hann verða hag­kvæm­ari en bens­ín­bíll fyrir sam­fé­lagið, að mati Hag­fræði­stofn­unnar. Ef fram­tíð­ar­spár um fram­leiðslu­kostnað ganga upp mætti því búast við að raf­bílar verði þjóð­hags­lega hag­kvæmir innan skamms.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

rafbílar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár