„Það eru engir brúnir krakkar á KrakkaRÚV“

Erlendum rík­is­borg­urum sem búa hér­lendis er að fjölga meira en nokkru sinni fyrr. Um er að ræða mestu sam­fé­lags­breyt­ingu sem átt hefur sér stað. Sú breyt­ing er efni Kjarnans á Hring­braut í kvöld. Gestir eru Edda Ólafs­dóttir og Nichole Leigh Mosty.

„Það eru engir brúnir krakkar á Krakk­aRÚV,“ sagði sonur Nichole Leigh Mosty, fyrr­ver­andi þing­manns og verk­efna­stjóra hjá þjón­ustu­mið­stöð Breið­holts, við hana í morgun. Hann sagði að mamma hans yrði að tala við RÚV, enda sé veru­leiki hans, sem á vini frá Nepal, Fil­ipps­eyjum, Senegal og fleiri löndum, allt annar en sá en birt­ist honum á Krakk­aRÚV. „Ef hann er að fatta þetta þá þurfum við bók­staf­lega að hugsa inn á við og segja: „við þurfum að gera eitt­hvað í þessu.“

Þetta kemur fram í við­tali við Nichole í fyrsta sjón­varps­þætti Kjarnans á árinu, sem sýndur verður á Hring­braut í kvöld klukkan 21. Brot úr við­tal­inu má sjá í spil­ar­anum hér að ofan.

Þar verða til umræðu þær miklu sam­fé­lags­breyt­ingar sem orðið hafa á Íslandi á und­an­förnum árum vegna fjölg­unar erlendra rík­is­borg­ara sem sest hafa hér að. Nichole ræðir einnig ítar­lega #Metoo-frá­sagnir kvenna af erlendum upp­runa og af hverju sá hópur sker sig frá öðrum sem hefur stigið fram með frá­sagnir undir hatti sömu bylt­ingar.

78 pró­sent af mann­fjölda­fjölgun á land­inu á síð­asta ári var vegna fjölg­unar útlend­inga sem hingað fluttu. Þeim hefur fjölgað um 81 pró­sent frá 2011 og eru nú tæp­lega 38 þús­und tals­ins. Það búa því um þrjú þús­und fleiri erlendir rík­is­borg­arar á Íslandi en búa alls í Kópavogi. Og mann­fjölda­spár gera ráð fyrir að þessi þróun haldi áfram næstu árin. Spá Hagstofu Íslands reiknar með að fjölgun erlendra rík­is­borg­ara á Íslandi verði 77-111 pró­sent á tíma­bil­inu 2017-2022.

Gestur þátt­ar­ins, auk Nichole, er Edda Ólafs­dóttir, félags­ráð­gjafi og verk­efn­is­stjóri á vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur­borgar. Hún ræðir hvernig Reykja­vík­ur­borg hefur tek­ist á við þá miklu fjölgun komu­fólks sem sest hefur að í borg­inni á und­an­förnum árum og þær áskor­anir sem slíkum sam­fé­lags­breyt­ingum fylgja. „Þetta eru áskor­anir á mjög mörgum sviðum. Við erum búin að taka lítil skref en nú eru kosn­ingar í vor og ég vona að þessi mála­flokkur fái aukið vægi þar og það verði rætt svo­lítið um hvernig sveit­ar­fé­lagið ætlar að bregð­ast við þess­ari nýju stöðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið undanfarið ár