Ragnar Þór hættur í miðstjórn ASÍ

Formaður VR hætti í mið­stjórn Alþýðu­sam­bands Íslands á mánu­dag­inn. Hann segir að hann telji orku sinni betur varið í að leita lausna á öðrum vett­vangi og að hans mati sé ASÍ að gera það versta í stöð­unni, ekki neitt.

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR hefur sagt sig úr miðstjórn ASÍ.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR hefur sagt sig úr mið­stjórn ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR sagði sig úr mið­stjórn Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) strax á mánu­dag­inn og telur að kröftum sínum sé að svo stöddu ekki vel varið í að taka þátt í starfi innan sam­bands­ins. Þetta segir hann í sam­tali við Kjarnann.

„Ég ætla bara að ein­beita mér að mínu félagi og mínum félögum fyrst og fremst og ég sé ekki til­gang í að eyða frek­ari orku í að vinna að ein­hverjum lausnum á þessum vett­vangi,“ segir Ragnar Þór.

Verka­lýðs­for­ing­inn segir ágrein­ing hafa verið uppi innan raða ASÍ um hver við­brögð sam­bands­ins við því grafal­var­lega ástandi sem COVID-19 far­ald­ur­inn hefur í för með sér fyrir ættu að vera. Ragnar Þór og Vil­hjálmur Birg­is­son for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, sem var 1. vara­for­seti ASÍ þar til í dag, hafa báðir sagt sig frá störfum fyrr ASÍ í kjöl­farið.

Vil­hjálmur sagði á Facebook í dag að Drífa Snædal for­seti ASÍ hefði lagt til að umsömdum launa­hækk­unum á vinnu­mark­aði, sem taka gildi í dag, yrði frestað.

[links]

„Það var lagt til að fresta kaup­hækk­unum. Það kom ekki til greina af okkar hálfu. Okkar sýn hefur alltaf verið sú að verja kaup­mátt­inn, verja launa­hækk­un­ina og verja störfin,“ segir Ragnar Þór, en slíkum til­lögum úr ranni VR segir hann hafa verið hafnað af samn­inga­nefnd ASÍ.

Versta mögulega leiðin valin

Alþýðu­sam­bandið hefur að und­an­förnu verið í óform­legum við­ræðum við for­svars­menn atvinnu­lífs­ins um ein­hverja lausn til þess að milda höggið af COVID-19 far­aldr­inum fyrir fyr­ir­tækin og launa­fólk í land­inu. Bæði Ragnar Þór og Vil­hjálmur voru til­búnir til þess að fall­ast á lækka mót­fram­lög atvinnu­rek­enda í líf­eyr­is­sjóði starfs­manna sinna yrðu lækkuð úr 11,5 pró­sent í 8 pró­sent, tíma­bundið.

[adspot]

Ragnar Þór segir að í stað þess að fara aðra hvora þess­ara leiða hafi ASÍ á end­anum ákveðið að „gera ekki neitt“, sem hann segir vera verstu mögu­legu leið­ina að mati VR.

ASÍ hafn­aði í dag form­legri beiðni Samtaka atvinnu­lífs­ins um bæði frestun kaup­hækk­ana og beiðni um lækkun mót­fram­lags atvinnu­rek­enda í líf­eyr­is­sjóði starfs­manna.

Segir stjórnvöld hafa lýst sig tilbúin að skoða þak á verðbætur verðtryggðra lána

„Við teljum það bara ein­fald­lega ekki í boði að gera ekki neitt,“ segir Ragnar Þór og bætir við að hann hafi talið ASÍ vera komið með „vil­yrði fyrir því frá stjórn­völdum að fara í að verja heim­ilin með þaki á verð­bætur á verð­tryggðum lánum, sem almenn­ingur hefur sár­lega kraf­ist af stjórn­völdum.“

Þetta segir Ragnar Þór þó ekki hafa verið í hendi. „En það var opnað á þann mögu­leika og fleiri úrræði, sem stjórn­völd voru til­búin til þess að skoða ef að við hefðum náð saman að ein­hverri lausn. Nú er það bara frá og nú er þetta bara staðan og við bara tök­umst á við hana,“ segir Ragnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár