Costco-hugsunin ristir djúpt

Miklar breyt­ingar á smá­sölu­hegðun neyt­enda hafa fylgt vexti í net­verslun. Innreið áskrift­ar­hugs­unar Costco í verslun, gæti stuðlað að miklum breyt­ingum á örmark­aðnum íslenska.

Án nokk­urs vafa er það heims­met að 17,6 pró­sent íbúa þjóð­ríkis kaupi sér Costco kort á innan við mán­uði frá opn­un­ar­degi fyrstu versl­unar fyr­ir­tæk­is­ins í land­inu. Í það minnsta 60 þús­und hafa nú keypt sér aðild­ar­kort hjá fyr­ir­tæk­inu (ein­stak­lingar og fyr­ir­tæki), á þeim rúmu tveimur vikum sem versl­un­ar­hús fyr­ir­tæk­is­ins í Kauptúni hefur verið opið. Það opn­aði með látum 23. maí.

Áhuginn á þess­ari banda­rísku magninn­kaupa­inn­reið á íslenskan versl­un­ar­markað - þar sem meira að segja risa­vaxnir bronsút­lít­andi gíraffar selj­ast dýrum dómum - hefur verið nán­ast áþreif­an­legur, eins og umræða á sam­fé­lags­miðlum hefur sýnt glögg­lega. Tæplega 74 þús­und eru nú skráðir á Facebook síð­una Keypt í Costco Ísl. - Myndir og verð. Þar fær ýmis­legt að flakka, en flest teng­ist það Costco með einum eða öðrum hætti.

Eins og bent var á í umfjöllun um inn­reið Costco á dög­unum, á vef Kjarnans, þá gætu þessi miklu við­brögð íslenskra neyt­enda og fyr­ir­tækja við inn­komu Costco, ýtt við for­svars­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins þegar kemur að opnun fleiri versl­ana. Hvort sem það er á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eða jafn­vel Akureyri.

Þolinmæði og viðskiptasamband

Reynslan úr sögu fyr­ir­tæk­is­ins sýnir þó að þol­in­mæði er dygð og meira er lagt upp úr því að styrkja við­skipta­sam­bandið þannig, að aðildin að „Costco sam­fé­lag­inu“ hald­ist til lengri tíma.

Tvo punkta, til við­bótar við þá þrjá sem nefnir voru í umfjöllun okkar á dög­unum, má sér­stak­lega nefna sem áhrifa­mikla fyrir íslenska mark­að­inn og breyt­ingar á honum sem framundan eru.

1. Costco er risi sem nýtur góðs af því þegar farið er inn á örmark­aði eins og þann íslenska. Fyr­ir­tækið er ekki mark­aðs­ráð­andi og getur því boðið lág verð á völdum vörum - eins og lágt bens­ín­verð er til marks um - og komið sér fyrir á mark­aðnum á þeim for­sendum. Þetta er sjald­gæf staða fyrir Costco að vera í, þar sem fyr­ir­tækið starfar á rót­grónum stórum mörk­uðum, fyrst og fremst. Höf­uð­stöðv­arnar eru í Issaquah, á Seattle svæð­inu.

Árlegur vöxtur mark­aðsvirðis fyr­ir­tæk­is­ins hefur verið tæp­lega 15 pró­sent á ári í tutt­ugu ár og er verð­mið­inn nú 75 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 7.500 millj­örðum króna. Samtals rekur Costco 732 versl­un­ar­hús, og er gert ráð fyrir að þeim fjölgi jafnt og þétt á næstu miss­erum. Heild­ar­tekjur á ári voru í kringum 120 millj­arðar Banda­ríkja­dala síð­ustu tólf mán­uði, eða sem nemur um 12 þús­und millj­örðum króna.

Í krafti þess­arar miklu stærðar, getur Costco haft mikil áhrif á versl­un­ar­rekstur almennt, og ýtt af stað breyt­ingum sem ekki hafa komið fram á íslenskum versl­un­ar­mark­aði, en hafa verið áber­andi víða erlendis. Fyr­ir­tæki, ekki síst í verslun, hafa freistað þess að ná betur „utan um“ við­skipta­vini sína með áskrift­ar­þjón­ustu og vild­ar­kjörum af ýmsu tagi. Þetta hefur verið létt­vægt atriði á íslenskum versl­un­ar­mark­aði til þessa, en því hefur nú verið breytt - eins og hendi sé veifað - var­an­lega. Þegar yfir 50 þús­und eru farin að greiða reglu­lega til ein­hvers aðila á mark­aðnum, þá verður ekki aftur snúið.

2. Sam­fé­lags­hugsun í versl­unar- og afþrey­ing­ar­iðn­aði hefur verið afar fyr­ir­ferða­mikil í Banda­ríkj­unum á und­an­förnum árum. Lang­sam­lega verð­mæt­asti smá­sölu­að­ili heims­ins, Amazon (sem einnig er með höf­uð­stöðvar á Seattle-svæð­inu), hefur leitt þessa þróun með upp­bygg­ingu á Amazon Prime sam­fé­lagi sínu. Það er mikið hern­að­ar­leynd­ar­mál hversu margir eru í áskrift hjá fyr­ir­tæk­inu, en grein­endur hafa verið að reikna sig niður á það að þeir séu nú um 80 millj­ónir, sam­kvæmt upp­gjörum fyr­ir­tæk­is­ins. Þetta jafn­gildir fjölda þeirra sem ann­ast inn­kaup á öllum Norð­ur­lönd­unum, Þýska­landi og stórum hluta af öllum við­skipta­vinum í Norður-Evrópu. Tæplega 480 millj­arða Banda­ríkja­dala verð­miði fyr­ir­tæk­is­ins, eða sem nemur um 48 þús­und millj­örðum króna, byggir ekki síst á því að fjár­festar telja mikil sókn­ar­færi fel­ast í þess­ari upp­bygg­ingu við­skipta.

Marg­feld­is­á­hrifin af hverjum áskrif­anda eru mikil, og gögnin sem fyr­ir­tækið fær fram, með því að fylgj­ast vel með verslun sinna áskrif­enda, gefa því færi á því að greina nákvæm­lega neyslu­mynstur. Þetta styrkir síðan áætl­anir til fram­tíðar, vaxta­á­form og grein­ingar á tæki­færum. Stór hluti áskrif­enda Amazon er í Banda­ríkj­unum, en sókn­ar­á­ætl­anir gera ráð fyrir hálf­gerðum heims­yf­ir­ráðum í net­verslun.

Costco hins vegar, vill verða ris­inn í magninn­kaupum heim­ila og fyr­ir­tækja, þar sem vör­urnar eru sóttar í vöru­hús af kaup­end­unum sjálfum. Það má segja að þetta sé hinn end­inn á áskrift­ar­hugs­un­inni sem Amazon hefur byggt upp frá stofnun. Að þessu leyti er Costco-hugs­unin engin til­viljun, og hún er í seinn ein­föld og útpæld.

Íslensk versl­un­ar­fyr­ir­tæki hafa van­rækt þetta árum saman, lík­lega vegna ónægrar sam­keppni. Hugtakið sam­keppni nær ekki aðeins til verð­sam­an­burðar heldur líka til upp­lif­unar og þess hvernig þjón­ustan er þróuð gagn­vart við­skipta­vinum. Íslensku versl­un­ar­fyr­ir­tækin eiga nú næsta leik. Hvernig ætla þau að bregð­ast við?

Á und­an­förnum ára­tug hefur áskrift­ar­hugs­unin í afþrey­ing­ar­iðn­aði á inter­net­inu farið mikla sig­ur­för á mörk­uðum. Hjá Amazon hafa Prime-áskrif­endur aðgang að kvik­myndum, þáttum og tón­list. Þessi þáttur star­fes­em­innar er vax­andi og sam­keppnin hörð.

Heild­ar­fjöldi Netflix áskrif­enda er nú kom­inn yfir 100 millj­ónir á heims­vísu, Spotify er með 55 millj­ónir og Apple Music, með yfir 20 millj­ónir, fyrir utan allan þann fjölda sem verslar í iTu­nes.

Þessi áskriftar-hugsun ristir djúpt í bæði verslun og afþr­ey­ingu, eins og áður segir. Hún hefur nú komið eins og storm­sveipur inn á íslenskan versl­un­ar­markað, og lík­legt að hún eigi eftir að rót­fest­ast enn betur. Þar sem íslensk versl­un­ar­fyr­ir­tæki hafa ekki val um annað en að velta við öllum steinum, og reyna að bjóða enn betri þjón­ustu við við­skipta­vini.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár