Viljayfirlýsingar og loforðaflaumur í aðdraganda kosninga

Kjör­dagur sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga nálg­ast óðfluga.Svo mikið er víst, ekki síst þegar litið er til allra vilja­yf­ir­lýs­inga, lóða­vil­yrða­samn­inga og ann­arra samn­inga um upp­bygg­ingu í hús­næð­is­málum sem und­ir­rit­aðir hafa verið síð­ustu daga og vikur.

Að minnsta kosti fjórar vilja­yf­ir­lýs­ingar, allt frá hús­næð­is­upp­bygg­ingu til þjóð­ar­hallar, hafa verið und­ir­rit­aðar í yfir­stand­andi kosn­inga­bar­áttu til sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga sem fram fara næst­kom­andi laug­ar­dag. Þá hafa frétta­til­kynn­ingar um ýmsa áfanga og und­ir­rit­anir ýmissa samn­inga hrúg­ast inn til fjöl­miðla. Kjarninn tók saman það helsta sem sveit­ar­fé­lögin hafa verið að vekja athygli á þessa síð­ustu daga fyrir kosn­ingar.

Viljayfirlýsingar: Keldnaland, Listaháskólinn og þjóðarhöll

28. apríl: Uppbygging Keldnalands og Keldnaholts

Reykja­vík­ur­borg og Betri sam­göngur ohf. riðu á vaðið hvað vilja­yf­ir­lýs­ingar varðar 28. apríl þegar full­trúar þeirra und­ir­rit­uðu vilja­yf­ir­lýs­ingu um sam­starf vegna þró­unar og upp­bygg­ingar Keldna­lands og Keldna­holts og flýt­ingu upp­bygg­ingar inn­viða tveggja Borg­ar­línu­leiða. Á mynd sem tekin var við und­ir­rit­un­ina má sjá tvö borð sem hafa sést ítrekað við und­ir­rit­anir vilja­yf­ir­lýs­inga og samn­inga síð­ustu vikur fyrir kosn­ingar.

Undirritunarborðin, ef svo má kalla, hafa ferðast víða um höfuðborgarsvæðið síðustu vikur.
Und­ir­rit­un­ar­borðin, ef svo má kalla, hafa ferð­ast víða um höf­uð­borg­ar­svæðið síð­ustu vikur.

6. maí : Lóðavilyrði fyrir um 2.000 íbúðir

Vilja­yf­ir­lýs­ing­arnar byrj­uðu að hrann­ast inn í maí. Vilja­yf­ir­lýs­ing um lóða­vil­yrði til handa fimm óhagn­að­ar­drifnum íbúða­fé­lögum féll óneit­an­lega í skugg­ann á vilja­yf­ir­lýs­ingu um þjóð­ar­höll sem var und­ir­rituð sama dag, föstu­dag­inn 6. maí. Samkvæmt lóða­vil­yrð­unum geta íbúa­fé­lögin byggt um tvö þús­und íbúðir á næstu tíu árum. Und­ir­rit­unin fór fram á Klambra­túni og þegar henni var lokið hélt borg­ar­stjóri leið sinni áfram í Laug­ar­dal­inn þar sem und­ir­ritun á vilja­yf­ir­lýs­ingu um þjóð­ar­höll fór fram.

6. maí: Þjóðarhöll rís í Laugardal

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Ásmundur Einar Daðason mennta- og barna­mála­ráð­herra og Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri und­ir­rit­uðu vilja­yf­ir­lýs­ingu um bygg­ingu þjóð­ar­hallar í inn­an­húss­í­þróttum. Þannig var hoggið á hnút milli Reykja­vík­ur­borgar og rík­is­ins sem mynd­ast hafði um bygg­ingu þjóð­ar­hallar.

Samkvæmt vilja­yf­ir­lýs­ing­unni á höllin að rísa á næstu þremur árum milli Laug­ar­dals og Suð­ur­lands­brautar. Þjóð­ar­höllin mun upp­fylla kröfur fyrir alþjóð­lega keppni í inn­an­húss­í­þrótta­greinum og stór­bæta íþrótta­að­stöðu fyrir skóla og íþrótta­fé­lög í Laug­ar­dal.

7. maí: Framtíðarhúsnæði Listaháskólans í Tollhúsinu

Síð­ast­lið­inn laug­ar­dag, viku fyrir kosn­ingar, und­ir­rit­uðu Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri Reykja­víkur, ásamt full­trúa fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, vilja­yf­ir­lýs­ingu um fram­tíð­ar­hús­næði Lista­há­skóla Íslands (LHÍ) í Toll­hús­inu við Tryggva­götu.

Fríða Björk Ingv­ars­dóttir, rektor LHÍ, sagði í sam­tali við fjöl­miðla að um væri að ræða stærstu stund í sögu skól­ans frá því að hann var sofn­aður. Ráð­herrar og borg­ar­stjóri nýttu tæki­færið og smelltu mynd af sér í sér­stökum blóm­ara­mma sem búið var að útbúa í til­efni und­ir­rit­unar vilja­yf­ir­lýs­ing­ar­innar.

Ný þjóðarhöll hefur lengi verið til umræðu. Viljayfirlýsing um að slík skuli ríkja á næstu árum var undirrituð átta dögum fyrir kosningar.
Ný þjóð­ar­höll hefur lengi verið til umræðu. Vilja­yf­ir­lýs­ing um að slík skuli ríkja á næstu árum var und­ir­rituð átta dögum fyrir kosn­ingar.

Undirritun samninga og aðrar tilkynningar:

28. apríl: Fossvogslaug í miðjum dalnum

Vilja­yf­ir­lýs­ing um Foss­vogs­laug var und­ir­rituð af Ármanni Kr. Ólafs­syni, bæj­ar­stjóra í Kópavogi, og Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra í mars 2021. Í lok apríl barst til­kynn­ing frá Reykja­vík og Kópavogi þar sem greint var frá því að Foss­vogs­laugin verði stað­sett fyrir miðjum Foss­vogs­dal. „Sveit­ar­fé­lögin munu nú hefj­ast handa við næstu skref við und­ir­bún­ing sam­keppni um hönnun laug­ar­innar í sam­vinnu við Arki­tekta­fé­lag Íslands,“ segir í til­kynn­ing­unni sem send var á fjöl­miðja..

5. maí: Blikastaðaland

Mos­fells­bær og Blika­staða­land ehf. und­ir­rit­uðu sam­starfs­samn­ing um upp­bygg­ingu „sjálf­bærrar og mann­vænnar byggðar í landi Blika­staða“. Stefnt er að því að byggja 3.500 til 3.700 nýjar íbúðir á Blika­staða­land­inu, sem er í end­an­legri eigu Arion banka. Fjöldi þeirra íbúða sem fyr­ir­hug­aðar eru slagar lang­leið­ina upp í þann fjölda íbúða sem eru í Mos­fellsbæ í dag.

Þó svo að sam­starfs­samn­ing­ur­inn hafi verið und­ir­rit­aður nú, níu dögum fyrir kosn­ingar, er um lang­tíma­verk­efni er að ræða og ætla má með að upp­bygg­ing hverf­is­ins taki 15-20 ár, sam­kvæmt því sem haft er eftir Þor­gerði Örnu Ein­ars­dóttur fram­kvæmda­stjóra Blika­staða­lands ehf. í frétt RÚV.

9. maí: Lífsgæðakjarnar fyrir eldri borgara

Borg­ar­stjóri und­ir­rit­aði samn­ing um lífs­gæða­kjarna fyrir eldri borg­ara við Samtök aldr­aðra og Leigu­fé­lag aldr­aðra. Und­ir­rit­unin fór fram við Leir­tjörn þar sem við hana, vestur í Úlf­arsár­dal, í Gufunesi og við Ártúns­höfða er gert ráð fyrir allt að 300 íbúðum fyrir eldri borg­ara.

10. maí: Umhverfisvæn bygging á iðnaðarlóð og makaskipti á lóðum

Á þriðju­dag voru tveir samn­ingar und­ir­rit­aðir, ann­ars vegar um lóð­ar­vil­yrði fyrir umhverf­is­væna bygg­ingu við Ártúns­höfða og hins vegar um maka­skipta­samn­ing á lóðum milli Reykja­vík­ur­borgar og Sorpu.Borðin góðu voru á sínum stað.

Tvær undirritanir á sama degi, nokkuð sem hefur gerst nokkrum sinnum síðustu daga.
Tvær und­ir­rit­anir á sama degi, nokkuð sem hefur gerst nokkrum sinnum síð­ustu daga.

Fréttatilkynningar

Eftir því sem nær dregur kosn­ingum fjölgar frétta­til­kynn­ingum frá sveit­ar­fé­lögum, ekki síst Reykja­vík­ur­borg, um ýmis konar áfanga, und­ir­ritun samn­inga og önnur tíma­mót. Samkvæmt óform­legri sam­an­tekt Kjarnans hafa mest borist tíu frétta­til­kynn­ingar frá Reykja­vík­ur­borg á einum degi, frá átta mis­mun­andi upp­lýs­inga­full­trúum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið undanfarið ár