GAMMA hagnaðist um 626 milljónir í fyrra

Hagn­að­ur­inn dróst saman um fjórð­ung frá árinu á undan.

Hagnaður fjár­mála­fyr­ir­tæk­is­ins GAMMA Capital Mana­gement nam tæp­lega 626 millj­ónum króna í fyrra og dróst saman um rúm­lega fjórð­ung frá árinu 2016.

Frá þessu er greint í Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins, í dag, en launa­kostn­aður fyr­ir­tæk­is­ins jókst um lið­lega 300 millj­ónir milli ára. Eignir í stýr­ingu hjá félag­inu voru tæp­lega 140 millj­arðar króna og sjóðir í rekstri voru sam­tals 46.

Stærstu eig­endur GAMMA eru Gísli Hauksson, sem á 31 pró­sent, og Agnar Tómas Möller, fram­kvæmda­stjóri sjóða GAMMA, en hann á rúm­lega 29 pró­sent hlut. Gísli er hættur störfum hjá fyr­ir­tæk­inu og sinnir nú eigin fjár­fest­ingum. Stjórn­ar­for­maður félags­ins er Hlíf Sturlu­dóttir.

Heild­ar­eignir GAMMA í árs­lok 2017 voru 3,2 millj­arðar og hækk­uðu um rúm­lega 740 millj­ónir á árinu.

Sú aukn­ing skýrist að stærstum hluta af því að lang­tíma­kröfur á fag­fjár­festa­sjóði juk­ust um 877 millj­ónir á milli ára og nam bók­fært virði þeirra tæp­lega 1,3 millj­arði, að því er fram kemur í Mark­aðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár