Áhættusportið að eignast barn

Mæðra­dauði er nátengdur sárri fátækt. 99 pró­sent allra dauðs­falla af barns­förum í heim­inum eiga sér stað í þró­un­ar­löndum eins og Afganistan.

Ímyndið ykkur djúpan og langan háfjalla­dal. Lítið þorp með nokkrum tugum mold­ar­húsa hangir utan í fjalls­hlíð­inni. Það er vetur. Hnjé­djúpur snjór í þorp­inu. Við­var­andi snjó­flóða­hætta. Vegurinn yfir háls­inn er ófær; ef veg skyldi kalla. Það er ekki eins og það sé til bíll í þorp­inu.

Í einu hús­inu er kona í barnsnauð. Hún er að fram komin. Á veggnum hangir reipis­bútur með tveimur stórum hnútum. Þegar hríð­irnar fóru að versna sat hún á hækjum sér og hélt í hnút­ana; tog­aði og hékk í reip­inu eins og það væri líf­línan hennar. Það hjálp­aði henni við að bíta á jaxl­inn.

Ópíumið hjálp­aði líka. Valmúinn vex víða í dalnum og hefur séð fólki fyrir ódýrum en ávana­bind­andi verkja­lyfjum í þús­undir ára. En verkirnir hafa bara magn­ast og orkan er á þrotum. Núna liggur hún á teppi á mold­ar­gólf­inu og með­vit­undin er hverful.

Það er heilsu­gæslu­stöð í næsta dal. Það er ekki nema lítið mold­ar­hús, áþekkt íbúð­ar­hús­unum í hér­að­inu. En þar er hægt að tala við hjúkr­un­ar­fræð­ing og ljós­móður, og stundum hægt að kom­ast í þau lyf sem maður þarf. Í morg­unsárið ræddi fjöl­skyldan hvort ráð­legt væri að leggja út á ófæran veg­inn á asnanum. Reyna að kom­ast yfir fjallið í tæka tíð. Vona að konan héldi út að sitja á asna­baki yfir fjallið með harðn­andi hríðir.

Eig­in­lega var það tengda­móð­irin sem tók af skarið. “Ég gat nú fætt sex börn án þess að hitta nokkurn tíma lækni eða ljós­móður. Hún hlýtur að spjara sig.”

Það er komið fram undir hádegi. Heilsu­gæslu­stöðin er að loka. Þau munu heldur ekki ná yfir fjallið meðan dags­ljósið end­ist. Stundum sér maður ekki fyrr en það er of seint að maður hefði betur leitað aðstoðar.

Versti staður í heimi að eignast barn

Við erum stödd í Badakhs­han í Afganistan. Konan á mold­ar­gólf­inu er skálduð, en lýs­ing­arnar eru raunsannar. Þetta er dap­ur­legur hvers­dags­leiki, sér­stak­lega í afskekkt­ari hér­uðum Afganist­ans. Mæðra­dauði er nátengdur sárri fátækt. 99% allra dauðs­falla af barns­förum í heim­inum eiga sér stað í þró­un­ar­löndum eins og Afganistan.

Árið 2002 mæld­ist í Badakhs­han hæsti mæðra­dauði sem nokkurn tíma hefur mælst í heim­inum. Þá reikn­að­ist fólki til að um 6.500 af hverjum 100.000 lif­andi fæð­ingum í hér­að­inu (þar sem barnið lifir af) end­uðu með and­láti móð­ur­innar. Spáið aðeins í því: 6,5% barns­haf­andi kvenna lifðu ekki fæð­ing­una af.

En síðan þá hefur alþjóða­sam­fé­lagið ausið pen­ingum og aðstoð inn í Afganistan. Margt hefur breyst, sér­stak­lega þegar kemur að heilsu mæðra og barna. Árið 2010 var ákaft fagnað, þegar ný rann­sókn leiddi í ljós árang­ur­inn. Mæðra­dauð­inn á lands­vísu hafði fallið frá 1600 niður í 327 dauðs­föll per 100.000 fæð­ingar.

Ein af hverjum 50 konum gat sam­kvæmt þessu búist við að lát­ast af barns­förum. Tveir þriðju allra barna komu í heim­inn án þess að ljós­móðir eða annað heil­brigð­is­starfs­fólk kæmi þar nálægt. Meðganga og fæð­ing voru algeng­asta dán­ar­or­sök ungra kvenna. Samt var allt svo miklu betra en það hafði verið.

Fæðast og deyja í djúpum dölum

Eig­in­lega vitum við samt voða lítið um hversu margir fæð­ast og deyja í Afganistan. Það er engin þjóð­skrá sem skráir fólk inn og út úr þessum heimi. Flest börn fæð­ast heima á mold­ar­gólf­inu, án þess að umheim­ur­inn veiti því neitt sér­staka athygli.

Könnunin frá 2010 var lík­lega allt of bjart­sýn á árang­ur­inn, segir nýleg úttekt. Svo miklar fram­farir hafa aldrei náðst á svo skömmum tíma, svo vitað sé, neins staðar í heim­inum. Síst af öllu á síkviku stríðs­svæði með erf­iða far­ar­tálma frá nátt­úr­unnar hendi.

Eitt getum við þó sagt með vissu. Þó að fleiri konur og börn lifi af, hefur hjálpin ekki náð til allra. Í litlum þorpum um landið allt er ennþá jafn hættu­legt að fæða og fæð­ast og það hefur alltaf verið.

Jafn hættu­legt eða verra.

Fátæktin hættuleg óléttum konum

Afganistan er orðið fátækara, hungr­aðra og óör­ugg­ara síðan 2010. Sér­stak­lega síðan alþjóð­aliðið fór að draga saman seglin árið 2013. Þá jókst atvinnu­leysið og fátæktin varð sár­ari.

Upp­skeran var ágæt í fyrra, en þeim fjölgar sem hvorki geta ræktað sjálfir eða keypt mat. Fátæktin er slík að fleiri og fleiri neyð­ast til að selja land­spild­una sína, taka börn úr skóla til að þau geti unnið fyrir mat, eða betla af fjöl­skyldu og vinum. Atvinnu­á­standið er afleitt. Örygg­is­á­standið fer versn­andi. Allt þetta hefur mikla þýð­ingu fyrir barns­haf­andi konur.

Vannær­ing er stór­hættu­leg á með­göngu og í fæð­ingu. Grein í lækna­tíma­rit­inu Lancet áætlar að ef hægt væri að koma í veg fyrir langvar­andi vannær­ingu, sér­stak­lega járn­skort og blóð­leysi, hjá barns­haf­andi konum mætti koma í veg fyrir 20% af dauðs­föll­unum. Blæð­ingar í og eftir fæð­ingu eru ein af aðal­dán­ar­or­sök­unum. Blóð­lítil kona má ekki við því að missa mikið blóð.

Fleiri og fleiri afganskar fjöl­skyldur neyð­ast til að flýja heim­ili sín og leita skjóls í flótta­manna­búðum, eða freista gæf­unnar í yfir­fylltum fátækra­hverfum í afgönskum borgum. Hvort tveggja fátækra­hverfi og flótta­manna­búðir eru afleitir staðir til að eign­ast barn.

Hugrakkar ljósmæður

Örygg­is­á­standið gerir að verkum að ljós­mæður og annað heil­brigð­is­starfs­fólk getur ekki sinnt störfum sínum sem skyldi. Afganskar ljós­mæður hafa bein í nef­inu og kalla ekki allt ömmu sína. Þær ná oft að tala til upp­reisn­ar­menn sem stoppa þær á vega­tálmum, til að fá að kom­ast leiðar sinnar til að hjálpa konum.

Nansen frið­ar­setrið í Lil­lehammer hefur safnað sögum afganskra ljós­mæðra. Þar sést glöggt að jafn­vel þar sem afganska feðra­veldið er strang­ast og engin hefð er fyrir því að konur vinni utan heim­il­is­ins, njóta ljós­mæður gíf­ur­legrar virð­ingar. Margar njóta jafn­vel verndar vopn­aðra leið­toga, vegna þess að þeir vita að þeir þurfa á ljós­mæðr­unum að halda. Tali­banar eign­ast nefni­lega líka börn.

En svo kemur að því að jafn­vel ljós­mæð­urnar halda sig heima, því örygg­is­á­standið er orðið svo slæmt. Þær eiga líka auð­veld­ara með að flýja til örugg­ari svæða, því þær geta fengið vinnu hvar sem er.

Sjöfalt fleiri ljósmæður, samt ekki nóg

Það eru margt hægt að gera til að draga úr mæðra­dauða. Betri og meiri nær­ing fyrir mæður væri eitt mik­il­vægt skref. Getn­að­ar­varnir myndu hjálpa mörgum. Það síð­asta sem þreyttur og vannærður kven­lík­ami þarf er að eign­ast mörg börn með stuttu milli­bili. Já, og bara að eign­ast mörg börn yfir höfuð. Eða að eign­ast barn á tán­ings­aldri.

Eitt það áhrifa­rík­asta sem hægt er að gera er að mennta ljós­mæður. Alþjóða­sam­fé­lagið hefur menntað margar afganskar konur til ljós­móð­ur­starfa síð­ast­lið­inn ára­tug eða svo. Ljós­mæðrum hefur fjölgað úr 500 árið 2001 í 3500 í dag. Samt dekkar afganska heil­brigð­is­kerfið ekki nema 23% af þörf­inni fyrir mæðra­vernd og fæð­ing­ar­hjálp.

Fram­tíð­ar­spáin er myrk. Að öllu óbreyttu mun kerfið ekki geta annað nema 12-14% af þörf­inni árið 2030. Það eru vondar fréttir fyrir kon­urnar á mold­ar­gólf­inu, börnin þeirra og Afgana alla sem einn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár