Forseti talar á Hinsegin dögum í fyrsta sinn

Guðni og Eliza eru orðin sjöttu forsetahjón lýðveldisins.
Guðni og Eliza eru orðin sjöttu for­seta­hjón lýð­veld­is­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son, flytur erindi á Hinsegin dögum næst­kom­andi laug­ar­dag. Þetta er í fyrsta sinn sem for­seti Íslands kemur að ein­hverju móti að dag­skrá Hinsegin daga. Guðni er búinn að vera for­seti í rúm­lega hálfan sól­ar­hring, en hann var settur í emb­ætti seinni­part­inn í gær.

Sólheimar, Fiskidagur og Reykjavík Pride

Guðni lætur það verða sitt fyrsta emb­ætt­is­verk að fara í heim­sókn að Sól­heimum í Gríms­nesi. Guðni og Eliza Jean Reid eig­in­kona hans, leggja land undir fót nú strax fyrir hádegi í dag og borða hádeg­is­verð með íbúum á Sól­heimum og eiga með þeim sam­veru­stund. Guðni og Eliza eru búin að vera for­seta­hjón í rúm­lega hálfan sól­ar­hring, en Guðni sór emb­ætt­is­eið­inn klukkan rúm­lega fjögur í gær. Guðni óskaði sjálfur eftir heim­sókn­inni á Sólheima, er greint er frá á mbl.is.

Á föstu­dag mætir for­set­inn ásamt eig­in­konu sinni og fjórum börnum síðan til Dalvíkur til að vera við­staddur Fiski­dag­inn mikla á Dalvík. Guðni flytur þar svo­kall­aða Vin­áttu­keðju­ræðu og hyggst skemmta sér með fjöl­skyldu sinni í bænum, snæða fiski­súpu og fara á tón­leika. Daginn eftir, á laug­ar­deg­inum klukkan 15:30, flytur Guðni svo ræðu ræðu á Hinsegin dögum á Arn­ar­hóli í Reykja­vík, en verður svo aftur mættur á Dalvík um kvöldið.

Bessastaðaveisla

Guðni og Eliza buðu til veg­legrar veislu á Bessa­stöðum eftir athöfn­ina í gær og mættu um 150 til 200 manns þangað. Fjöl­skyldan er þó enn ekki flutt á Álfta­nesið af Sel­tjarn­ar­nes­inu, en nú standa yfir fram­kvæmdir við íbúð­ar­húsið á Bessa­stöðum til þess að það henti sex manna fjöl­skyldu með fjögur ung börn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár