Varamaður Framsóknar í hálfan sólarhring

Greint var frá því í gær­kvöldi að Gústaf Adolf Níelsson hefði verið skip­aður sem vara­maður í mann­réttinda­ráð Reykja­vík­ur­borgar fyrir hönd Fram­sókn­ar­flokks­ins og flug­vall­ar­vina. Hann er flokks­bund­inn sjálf­stæð­is­maður og hefur vakið athygli fyrir að tala gegn múslimum og hjóna­böndum og ætt­leið­ingum sam­kyn­hneigðra. Rétt rúmir tólf tímar liðu þar til búið var að draga skipan hans til baka. Kjarninn fer yfir atburða­rás­ina.

Strax umdeilt og ekki einhugur í borgarstjórn


Gústaf var kjör­inn sem vara­maður Svein­bjargar Birnu Svein­björns­dóttur, odd­vita Fram­sóknar, í mann­réttinda­ráði borg­ar­innar á fundi borg­ar­stjórnar í gær­kvöldi. Skipan Gústafs var strax umdeild þar sem ekki ríkti ein­hugur um hann, eins og venja er þegar skipað er í ráð og nefndir borg­ar­innar. Fimm borg­ar­full­trúar meiri­hlut­ans sátu hjá við afgreiðslu máls­ins, Sóley Tóm­as­dóttir, Halldór Auðar Svansson, Skúli Helgason, Heiða Björg Hilm­is­dóttir og borg­ar­stjór­inn Dagur B. Egg­erts­son. Aðrir borg­ar­full­trúar sam­þykktu skip­un­ina, þar með taldir aðrir borg­ar­full­trúar Sam­fylk­ing­ar­innar.

[caption id="attachment_12288" align="align­right" width="150"] Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík.[/caption]

Borg­ar­stjóri sagði í sam­tali við Kjarnann í dag að hann hafi setið hjá vegna þess að hann þekkti til Gústafs og mál­flutn­ings hans. „Til­nefn­ing í þetta vara­manns­sæti var auð­vitað ein­ungis á ábyrgð Fram­sókn­ar­flokks­ins. Það er nán­ast óskrifuð regla að virða til­nefn­ingar flokka í kosn­ingum í nefndir og ráð,“ sagði Dagur. Hann kvaðst mjög feg­inn að nið­ur­staðan hafi orðið sú að draga skipun Gústafs til baka.

Alls konar raddir ættu að heyrast í mannréttindaráði


Vísir sagði frá mál­inu í gær­kvöldi og ræddi við Guðfinnu Jóhönnu Guð­munds­dóttur borg­ar­full­trúa sem sagði alls­konar raddir eiga að hljóma í mann­réttinda­ráði. „Gústaf hefur verið virkur í þjóð­fé­lags­um­ræð­unni síð­ustu árin. Á grund­velli yfir­lýs­inga í sam­starfs­sátt­mála meiri­hlut­ans um að hlustað sé á alls­konar raddir og þeim skap­aður vett­vangur þá er það mat borg­ar­full­trúa Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina að skipan hans sem vara­manns styðji við þau sjón­ar­mið,“ sagði Guðfinna við Vísi. Þá kom fram í við­tölum við Gústaf að Svein­björg Birna hafi haft sam­band við hann í des­em­ber vegna máls­ins.

Strax í morgun höfðu tveir ráð­herrar, Eygló Harð­ar­dóttir félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, og Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra, tjáð sig um málið. Eygló sagði skip­un­ina óásætt­an­lega og ekki í sam­ræmi við gildi flokks­ins. Gunnar Bragi tók undir og skor­aði á Framsókn og flug­vall­ar­vini að skipa nýjan vara­mann. Fleiri þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem og bæj­ar­full­trúar, tóku í sama streng.

„Mistök“ dregin til baka


Rétt fyrir hádegi kom svo til­kynn­ing frá flokknum þar sem greint var frá því að ákveðið hefði verið að draga til baka skipun Gústafs til baka. „Skipun vara­manns í mann­réttinda­ráð Reykja­vík­ur­borgar í gær er ekki í sam­ræmi við stefnu Fram­sókn­ar­flokks­ins og voru því mis­tök af okkar hálfu,“ stóð í yfir­lýs­ingu. Enn fremur stóð að flokk­ur­inn hafn­aði hvers konar mis­munun og berð­ist fyrir mann­rétt­indum. Greta Björg Egils­dóttir mun taka sæti vara­manns í stað Gústafs, en ekki verður hægt að ganga frá skipun hennar fyrr en borg­ar­stjórn kemur saman og kýs um málið næst.

Skömmu eftir að til­kynnt var að Gústaf yrði ekki full­trúi Fram­sóknar í borg­inni sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra frá því að hann hefði fundað með borg­ar­full­trúum flokks­ins og rætt þau mis­tök sem hafi verið gerð við nefnd­ar­skipan. Hann hefur ekki tjáð sig frekar um málið.

Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir sagði í við­tali við mbl.is eftir ákvörð­un­ina að ekki hefði orðið vinnu­friður um mál­efnin, „og við vissum ekki af afstöðu til sam­kyn­hneigðra. Það er það sem breytt­ist.“ Hún minnt­ist hins vegar ekki á afstöðu Gústafs til múslima.

Borg­ar­full­trúar ann­arra flokka tjáðu sig einnig um þetta atriði.







Gústaf sjálfur hefur komið í fjöl­miðla í dag og sagt að tek­ist hafi að hræða líf­tór­una úr odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík. „Ég sé það að odd­vit­inn hefur verið tek­inn í hrað­nám­skeið í póli­tískum rétt­trún­aði,“ sagði hann einnig.

Undir kvöld kom svo önnur til­kynn­ing frá Fram­sókn­ar­flokknum í Reykja­vík þar sem áréttað var að flokk­ur­inn virði trú­frelsi og sé ekki né hafi verið and­stæð­ingar minni­hluta­hópa í land­inu. „Vinna okkar í borg­ar­stjórn hefur helg­ast af bar­áttu fyrir bættum hag borg­ar­búa, skil­virk­ari þjón­ustu og jafn­rétti allra hópa. Við munum halda áfram þeirri vinnu.“

Hver er Gústaf?


Gústaf er fæddur árið 1953 og er 61 árs gam­all. Hann er sagn­fræð­ingur og hefur meðal ann­ars starfað sem útvarps­maður á Útvarpi Sögu, þar sem hann fjall­aði bæði um mál­efni sam­kyn­hneigðra og útlend­inga. Hann hélt úti bloggi á blogg­svæði Morg­un­blaðs­ins þar sem hann skrif­aði um sömu mál. Gústaf var fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Hann starf­aði einnig fyrir nekt­ar­dans­stað­inn Bóhem um tíma og skrif­aði meðal ann­ars gegn vænd­is­frum­varpi sem þá hafði verið lagt fram á Alþingi.

Árið 2005 bauð hann sig fram í átt­unda sætið á fram­boðs­lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­inni. Í við­tali við Frétta­blaðið í til­efni af því sagð­ist hann vera sjálf­stæð­is­maður af klass­ískum skóla.

Gústaf skrif­aði grein um frum­varp um rétt­ar­stöðu sam­kyn­hneigðra í Morg­un­blaðið árið 2005, þar sem afstaða hans til máls­ins er rakin. „Það hefur löngum verið þekkt að sumt fólk leggur ást á sitt eigið kyn, en það er ekki þar með sagt að slík hátt­semi sé eðli­leg, heldur þvert á móti. En hin kristnu sam­fé­lög Vest­ur­landa eru frjáls­lynd og umburð­ar­lynd. Þau skilja að sum okkar eru öfug­snúin og afbrigði­leg og láta refsi­laust í dag, enda kær­leiks­boð­skap­ur­inn grunn­tónn í trúnni. En fyrr má nú rota en dauð­rota, það var aldrei mein­ingin að leiða hið afbrigði­lega og ófrjóa til önd­vegis.“

„Er það ekki hámark sjálfselsk­unnar að leggja ást á sitt eigið kyn, og slík ást getur aldrei borið ávöxt. En úr því að sú nöt­ur­lega stað­reynd blasir við, er rétt­ast að gera þá kröfu á ríkið að börn séu til útdeil­ingar handa hommum og les­b­íum í hjóna­bandi – í jafn­rétt­is­skyni. Þá er auð­vitað eng­inn að huga að þeim sjálf­sögðu mann­rétt­indum barna, að eiga bæði föður og móður, sem öll börn jú eiga, því ekk­ert barn verður til nema fyrir til­verknað sæðis karls og eggs konu. Ég geri ráð fyrir því að umboðs­maður barna hafi ein­hverja rök­studda skoðun á þessu, eða eru sjón­ar­mið hans óþörf í mann­rétt­inda- og jafn­rétt­is­bar­áttu homma og lesbía?“

Hann var í hópi 20 trú­fé­laga og 20 ein­stak­linga sem mót­mæltu frum­varp­inu í ályktun árið 2006. Þar var meðal ann­ars ályktað um að hjóna­band væri milli karls og konu, og að standa ætti vörð um hina „upp­runa­legu fjöl­skyldu­mynd og vel­ferð fjöl­skyldna og barna í íslensku sam­fé­lagi.“ Lög­gjöfin færi þvert gegn krist­inni kenn­ingu um hjóna­bandið og sam­band for­eldra og barns.

Hann hefur lýst yfir ánægju sinni með fram­göngu borg­ar­full­trúa fram­sóknar und­an­farna mán­uði, eins og sjá má hér að neðan.

 




Þá hefur Gústaf verið í við­tölum hjá Harma­geddon á X-inu og meðal ann­ars sagði hann á síð­asta ári að Ísland væri síð­asta kristna vígið. „Eru það for­dómar að hafa þessa skoðun að það sé ekki heppi­legt að fylla landið af múslimum?“ spurði hann meðal ann­ars. Þá er Gústaf með­limur í Pegida-sam­tök­unum á Íslandi, en sam­tökin eru upp­runin í Þýska­landi og berj­ast gegn meintum áhrifum íslam í vest­rænum ríkjum.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár