Ólafur Ragnar Grímsson vill vera áfram á Bessastöðum

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands. Mynd: Birgir Þór

Ólafur Ragnar Grímsson ætlar að sækj­ast eftir end­ur­kjöri til for­seta Íslands.

Ólafur sagði á blaða­manna­fundi á Bessa­stöðum síð­degis í dag, sem sjón­varpað var beint, að und­an­farin ár hafi verið tími erf­iðrar glímu, öldu mót­mæla og stjórn­ar­skipta. Fjölda­að­gerðir og þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur. Nýlega söfn­uð­ust þús­undir saman við alþing­is­húsið til að krefj­ast afsagnar for­sæt­is­ráð­herra og nýrra þing­kosn­inga.

Ólafur sagði: „Þó að okkur hafi að mörgu leyti miðað vel eftir banka­hrunið, þá voru mót­mæli og ákveðið að flýta kosn­ingum, er ástandið enn við­kvæmt. Stjórn­völd verða að vanda sig.

Í þessu umróti óvissu og mót­mæla og í kjöl­far nýlið­inna atburða hefur fjöldi fólks víða að höfðað til skyldu minnar, reynslu og ábyrgðar og beðið mig að end­ur­skoða ákvörð­un­ina sem ég til­kynnti í nýársávarp­inu. Um að gefa kost á mér á ný til emb­ættis for­seta Íslands.

Sambúð þings og þjóðar getur verið erfið stuttu eftir kosn­ingar. Ýmsir höfðu borið upp slíkt erindi. Eftir atburði síð­ustu vikna og óviss­una framundan, hefur sú alda þrýst­ings orðið æði þung. Þessi þróun hefur sett mig í vanda. Það er frelsið frá dag­legum önnum, tog­ast á við skyld­una. Óskir fólks­ins í land­inu höfða til þess.

Það eru ekki allir á þess­ari skoðun. Að tími sé kom­inn til að annar skipi þetta emb­ætti. En ég hef engu að síður þurft að horfast í augu við fjöld­ann sem lagt hefur hart að mér og höfðað til ábyrgð­ar­innar sem for­set­inn ber og traustið sem það sýnir mér."

Leyndardómsfullur blaðamannafundur

For­set­inn boð­aði til blaða­manna­fund­ar­ins í morgun, en ekki fékkst upp­gefið hvert efni fund­ar­ins var. Miklar vanga­veltur sköp­uð­ust í kjöl­farið, bæði á sam­fé­lags­miðlum og í fjöl­miðlum.

Ólafur Ragnar sagð­ist í nýársávarpi sínu 1. jan­úar síð­ast­lið­inn að hann ætl­aði ekki að bjóða sig fram til emb­ættis í sjötta sinn. Hann sagði þá að óvissan sem var fyrir hendi fyrir fjórum árum, og leiddi til áskor­ana um að hann yrði áfram for­seti, móti ekki lengur stöðu Íslend­inga. Búið væri að leggja til hliðar aðild að ESB, upp­gjör föllnu bank­anna og afnám hafta væri senn í höfn og deilur um stjórn­ar­skrána hefðu vikið fyrir sátt.

Í for­seta­kosn­ing­unum 2012 hafði Ólafur áður gefið sterk­lega í skyn að hann ætl­aði ekki að bjóða sig fram á ný. Hann skipti hins vegar um skoðun og um vorið þá ákvað hann að gefa kost á sér og sigr­aði með yfir­burðum.

Ólafur Ragnar tók við emb­ætti for­seta Íslands árið 1996 og hefur setið í 20 ár á Bessa­stöðum. Hann hefur hlotið mikið fylgi í skoð­ana­könn­unum upp á síðkastið, þrátt fyrir að hafa ekki gefið kost á sér til end­ur­kjörs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár