Fyrir mörgum einkennist nútíminn af hraða og annríki. Sífellt fleiri brenna út eða kulna. En í húsi einu á Sólvallagötu er eins og tíminn standi svolítið í stað. Húsið sjálft er hundrað ára en starfsemin sem fer þar fram örlítið yngri, eða 82 ára. Húsið sem einu sinni hét Sólvellir þekkist nú undir öðru nafni, Húsó eða Hússtjórnarskólinn í Reykjavík. „Það var eins og að fara mörg ár aftur í tímann,“ segir Guðrún Sigurgeirsdóttir matreiðslukennari um það að koma inn í húsið fyrst þegar hún hóf þar störf fyrir átta árum.
Og það er rétt, að ganga inn í húsið er eins og að ferðast aftur í tímann, húsgögnin eru í gömlum stíl, dúkar eru bróderaðir, og kökur með kaffinu bornar fram á fallegum diskum. Það er friðsæll andi yfir öllu þótt húsið sé fullt af nemendum. „Við viljum halda í þennan gamla stíl. En svo eru líka bara …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















en það var aldrei metið þegar maður sótti um vinnu, þó námið væri bæði verklegt og bóklegt,
ársnám.