Lögregluráði verður komið á fót

Dóms­mála­ráð­herra ætlar að koma á fót form­legum sam­starfs­vett­vangi allra lög­reglu­stjóra lands­ins og rík­is­lög­reglu­stjóra. Kjartan Þor­kels­son, lög­reglu­stjóri Suð­ur­lands, verður settur rík­is­lög­reglu­stjóri frá og með næstu ára­mótum.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra ætlar að koma á fót lögregluráði sem tekur til starfa 1. janúar næstkomandi. Ráðið verður formlegur samráðsvettvangur allra lögreglustjóra landsins auk ríkislögreglustjóra. Með breytingunni mun ríkislögreglustjóri þurfa að bera allar veigamiklar ákvarðanir undir lögregluráðið.

Þetta er á meðal þeirra skipulagsbreytinga innan lögreglunnar sem Áslaug Arna kynnti á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum í dag.

[links]Greint var fá því í morgun að Har­aldur Johannessen hefði ákveðið að hætta sem rík­is­lög­reglu­stjóri um næstu ára­mót eftir 22 ára starf. Áslaug Arna greindi frá því á fundinum að þau Haraldur hefðu verið sammála um að hleypa nýju starfsfólki að hjá embættinu og að samningur um starfslok Haraldar hefði verið gerður í sátt.

Fyrst um sinn mun Haraldur sinna verkefnum í ráðuneytinu en hann hefur lýst yfir áhuga á því að sinna ráðgjafarhlutverkum á sviði lögreglumála.

Hún greindi jafnframt frá því að embætti ríkislögreglustjóra yrði auglýst laust til umsóknar sem fyrst en frá og með áramótum yrði Kjartan Þorkelsson, lögreglustjóri Suðurlands, settur ríkislögreglustjóri. Hann hefur þó greint ráðherra frá því að hann muni ekki sækja um stöðuna. [adspot]

Ekki tímabært að sameina lögregluembætti

Á fundinum greindi Áslaug Arna jafnframt frá því að hún teldi ekki tímabært að svo stöddu að sameina lögregluembætti. Rætt hefur verið um að fækka lögregluembættum úr níu í sex. Aðrar breytingar eru hins vegar til skoðunar að sögn ráðherra en hún hefur meðal annars falið ráðuneytið að skoða með hvaða hætti megi bæta eftirlit með lögreglu. Auk þess mun ráðuneytið skoða aðkoma þingsins að eftirliti með lögreglu.

Líkt og greint var frá hér fyrir ofan ætlar Áslaug Arna jafnframt að stofna nýtt lögregluráð sem á að styðja við það að lögreglan verði rekin sem ein samheldin heild.

Lögregluráð mun ekki fara með sjálfstætt lögregluvald eða taka stjórnvaldsákvarðanir en ráðið mun funda mánaðarlega. Ríkislögreglustjóra ber jafnframt að hafa samráð við lögregluráð um allar veigamiklar ákvarðanir. Ráðið á taka til starfa 1. janúar 2020.


Fréttin hefur verið uppfærð

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár