Hæstiréttur braut gegn tjáningarfrelsi ritstjóra

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu segir íslenska ríkið hafa brotið gegn tíundu grein Mann­rétt­inda­sátt­mál­ans með dómi yfir Stein­grími Sævarri Ólafs­syni, fyrr­ver­andi rit­stjóra Pressunnar.

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu komst að þeirri nið­ur­stöðu í morgun að dómur Hæsta­réttar yfir Stein­grími Sævarri Ólafs­syni, fyrr­ver­andi rit­stjóra Pressunnar, hefði brotið gegn tján­ing­ar­frelsi hans. Hæsti­réttur dæmdi Stein­grím fyrir meið­yrði árið 2013.

Málið gegn Stein­grími höfð­aði Ægir Geirdal, vegna ummæla tveggja systra sem sök­uðu hann um barn­a­níð. Ummælin birt­ust á Press­unni árið 2010, þegar Ægir var í fram­boði til stjórn­laga­þings. Pressan birti grein sem var byggð á bréfi sem syst­urnar birtu og við­tali við aðra þeirra. Einnig var rætt við Ægi og hann neit­aði þessum ásök­unum. Fleiri fréttir voru birtar í kjöl­farið, meðal ann­ars um hót­anir um mála­ferli gegn systr­unum.

Ægir höfð­aði hins vegar mál gegn Stein­grími, en Hér­aðs­dómur Reykja­víkur sýkn­aði hann. Hæsti­réttur snéri þeim dómi í byrjun árs 2013 og dæmdi Stein­grím til að greiða Ægi 200 þús­und krónur í miska­bætur og 800 þús­und krónur í máls­kostnað.

Hæsti­réttur féllst á að Ægir hefði þurft að þola umfjöllun á opin­berum vett­vangi af því að hann gaf kost á sér til trún­að­ar­starfa í þágu almenn­ings. Það hafi hins vegar ekki rétt­lætt ásak­anir gagn­vart honum, sem hann hafi aldrei verið rann­sak­aður eða dæmdur fyrir. Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn taldi rök íslenskra dóm­stóla gild en þau nægi alls ekki til að rétt­læta inn­grip í málið. Hæsti­réttur hafi ekki gætt með­al­hófs.

Þetta er langt frá því að vera fyrsti dóm­ur­inn þar sem íslenska ríkið er dæmt fyrir brot gegn tján­ing­ar­frelsi. Í dómnum frá því í morgun er vísað í mál Erlu Hlyns­dóttur og Bjarkar Eiðs­dóttur, sem báðar unnu mál sín fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu, Erla oftar en einu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár