Sjálfstæðisflokkurinn gefur ekki upp hversu mikið hann er búinn að endurgreiða af styrkjum

Fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Þórður Þór­ar­ins­son, vill ekki gefa upp hversu stóran hluta af 56 millj­óna króna styrkjum sem flokk­ur­inn fékk frá FL Group og Lands­bank­anum í lok árs 2006 er búið að end­ur­greiða. Hann segir flokk­inn ekki vilja tjá sig í smá­at­riðum um ein­staka liði í bók­haldi hans.

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var eini flokk­ur­inn sem ákvað að end­ur­greiða háa styrki sem hann hlaut árið 2006. Flokk­ur­inn hefur end­ur­greitt árlega af rekstr­arfé sínu. Áætlanir ganga úr frá því að klára að end­ur­greiða styrk­ina fyrir árið 2018,“ segir Þórður.

Kjarninn hafði sam­band við Júlíus Þor­finns­son, fram­kvæmda­stjóra Stoða, sem áður hétu FL Group og spurði hann hvort og hversu mikið Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi greitt til baka. Hann sagði félagið hafa ákveðið að tjá sig hvorki af eða á um málið.

Páll Bene­dikts­son, upp­lýs­inga­full­trúi slita­bús Lands­bank­ans, segir það ekki geta upp­lýst um greiðslur ein­stakra við­skipta­vina. Það eigi einnig við um end­ur­greiðslur á styrkjum. Því geti búið hvorki sagt til um hvort né hversu mikið Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi greitt til baka af styrkjum sínum.

Var búinn að greiða 18 milljónir króna árið 2013

Styrkirnir voru veittir í lok árs 2006 og námu sam­tals 56 millj­ónum króna. Vorið 2009 sagði Bjarni Bene­dikts­son, þá nýkjör­inn for­maður flokks­ins, að styrkirnir yrðu end­ur­greiddir.

Á lands­fundi flokks­ins 2013 kom fram í máli Jón­mundar Guð­mars­son, þáver­andi fram­kvæmda­stjóra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, að flokk­ur­inn hefði þegar end­ur­greitt um 18 millj­ónir króna. Samkvæmt því stóðu þá 38 millj­ónir króna eftir árið 2013.

Rík­is­end­ur­skoðun birtir árlega útdrátt úr árs­reikn­ingi stjórn­mála­flokka. Síðasti birti útdráttur fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn er fyrir árið 2013. Þar kemur fram að flokk­ur­inn tap­aði 127 millj­ónum króna á því ári, en vert er að taka fram að kosið var til Alþingis 2013 og gjöld því hærri en ella. Skuldir flokks­ins námu 386 millj­ónum króna í lok þess árs en eigið fé var 417 millj­ónir króna. Það lækk­aði úr 543 millj­ónum króna árið áður.

Engar upp­lýs­ingar um end­ur­greiðslur á styrkj­unum til FL Group og Lands­bank­ans er að finna í útdrætt­inum.

Ýmis fjár­mála- og fjár­fest­inga­fyr­ir­tæki styrktu stjórn­mála­flokka á árunum fyrir hrun um háar fjár­hæðir. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er eini flokk­ur­inn sem ætlar sér að end­ur­greiða þá styrki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár