Fyrsta tilfelli COVID-19 kórónuveiru greinist á Íslandi

Íslenskur karl­maður á fimm­tugs­aldri hefur verið færður í ein­angrun á Land­spít­ala eftir að sýni úr honum reynd­ist jákvætt fyrir nýju kór­ónu­veirunni, COVID-19.

Íslenskur karl­maður á fimm­tugs­aldri hefur verið færður í ein­angrun á Land­spít­ala eftir að sýni úr honum reynd­ist jákvætt fyrir nýju kór­ónu­veirunni, COVID-19. Maðurinn er ekki alvar­lega veikur en sýnir dæmi­gerð ein­kenni COVID-19 sjúk­dóms sem eru hósti, hiti og bein­verkir.

Sýnataka og grein­ing á veiru- og sýkla­fræði­deild Land­spít­ali stað­festi laust eftir kl. 13:00 í dag að mað­ur­inn væri smit­aður af COVID-19 kór­óna­veiru. Þetta er fyrsta stað­festa til­fellið hér á landi.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá emb­ætti land­læknis.

Í ljósi þessa mun rík­is­lög­reglu­stjóri í sam­ráði við sótt­varna­lækni virkja hættu­stig almanna­varna. Er þetta gert bæði vegna þess að ekk­ert lát er á hóp­sýk­ingu af völdum veirunnar ytra, þá sér­stak­lega í Evrópu, og að fyrsta til­fellið hefur nú verið stað­fest hér á landi.

Maðurinn sem greind­ist var nýverið staddur á Norður-Ítalíu utan skil­greinds hættu­svæðis fyrir veiruna. Unnið er að rakn­ingu smit­leiða en mark­mið þeirra vinnu er að varpa ljósi hverjir gætu verið útsettir vegna þessa stað­festa smits.

[links]Yfir 82 þús­und manns hafa sýkst af nýju veirunni frá því að hún upp­götv­að­ist fyrst í des­em­ber, lang­flestir í í Kína. Tæplega 3.000 hafa lát­ist eða 3,4% sýktra. Sam­kvæmt John Hop­k­ins hafa um 33.000 manns ­náð sér eftir veik­ind­in.

Nýja veiran hefur greinst í um fimm­tíu löndum og síð­ustu daga í grann­ríkjum Íslands; Svíþjóð, Noregi og Danmörku.

Hvert á að hringja?

Ein­stak­lingar sem finna fyrir veik­indum og hafa mögu­lega verið útsettir fyrir smiti vegna t.d. ferða­laga eru hvattir til að hringja í 1700 (fyrir erlend síma­númer: +354 544-4113) til að fá leið­bein­ingar. Þeir sem hafa verið í nánu sam­neyti við ein­stak­linga með stað­festa eða lík­lega sýk­ingu verða settir í sótt­kví og hið sama á við um þá sem ferð­ast hafa á und­an­förnum dögum til skil­greindra áhættu­svæða.

Ítar­legar upp­lýs­ingar um hina nýju kór­óna­veiru er að finna á land­la­eknir.is og jafn­framt upp­lýs­ingar um skil­greind áhættu­svæði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár