Kjarni málsins – fákeppni sleggjudómara?

Í byrjun þessa mánaðar birt­ist grein í Kjarn­anum eftir und­ir­rit­aðan – Ráði frjáls mark­aður veiði­heim­ildum – eða fákeppni? Viðbrögð létu sann­ar­lega ekki á sér standa. Strax næsta morgun eftir birt­ingu grein­ar­innar brugð­ust tveir gagnrýnendur við, Húnbogi Gunnþórsson og Heiða Skúladóttir, hvort um sig með kjarn­yrtu áliti sínu á Facebook-síðu Kjarnans.

Mér er ljúft og jafn­vel skylt að svara þessu ágæta fólki þó ég sé ekki á Facebook, og þó svo væri þá væri það heldur alls ekki sjálfgefið að svara þeim á þeim vett­vangi frekar en öðrum. En þarna horfi ég upp á full­kom­inn mis­skiln­ing eða réttara sagt vísvit­andi útúrsnúning á því efni sem ég hafði fram að færa. Er því sjálfsagt og eðli­legt að vinda aðeins ofan af málflutn­ingi þeirra Húnboga og Heiðu.

[adspot]

Umrædd grein birt­ist síðdegis 2. nóvem­ber í Kjarn­anum og um hæl var vísað til hennar á Facebook- síðu Kjarnans. Árla morg­uns dag­inn eftir birtir Húnbogi eft­ir­far­andi ummæli við Facebook-færsl­una:

„Mikið lagt í þessa grein.

En hefur höfundur kynnt sér afleið­ingar sóknar­marks­kerfis þar sem það hefur verið notað?

Sóknar­markið sem höfundur vil taka upp hefur hvergi reynst vel svo ég viti til. Það væri fínt ef höfundur gæti komið með dæmi um þjóð sem hefur notað sóknar­mark til stýringa með góðum árangri.

Helstu ókostir sóknar­marks hafa verið mikil offjárfest­ing í skipa­kosti og það hefur stuðlað að ólympískum veiðum, þar sem keppst er við að hámarka land­aðan afla en gæðin skipta minna máli.“

Sannast sagna þá fjalla ég hvergi og alls ekki um neitt sóknar­mark nema á einum ein­asta stað í grein­inni – þar sem ég þó beinlínis hvet til þess að sóknar­mark verði aflagt! Verða ummæli Húnboga því ekki öðruvísi skilin en vísvit­andi afflutn­ingur stað­reynda, sleggjudómur kveð­inn upp í því skyni að fæla les­endur frá lestri grein­ar­innar. Kaus höfundur færsl­unar þó nokkrum dögum síðar að fjar­lægja þetta fótspor sitt á Facebook, líkt og hann hefði þar hvergi komið nærri... En töluð orð verða ekki aftur tekin, hvað þá eftir að komin eru í Facebookskjóðuna.

Í eft­ir­far­andi málsgrein, frekar fram­ar­lega í grein minni, kemur fram kjarni þess máls sem ég hef fram að færa – þar sem ég augljóslega hafna hverskyns séraf­la­marki jafnt sem sóknar­marki:

„Í stað þess að veiði­rétt­inum væri út­hlutað á mjög svo umdeildan hátt líkt og verið hefur und­an­farna ára­tugi, væri allt sérút­hlutað afla­mark upp­haf­ið, öll afla­marks­hlut­deild felld nið­ur, og allur sér­stakur stuðn­ingur í formi kvótaút­hlut­ana til ein­stakra byggða eða sókn­ar­marks í nafni strand­veiða aflagð­ur, en öll­um, sem á annað borð upp­fylltu almenn skil­yrði um búnað veiði­skipa sinna, væri heim­iluð frjáls veiði gegn greiðslu fyrir veiði­réttin þegar afla væri land­að, eðli­lega að teknu til­liti til reglu­gerða um tíma­bundnar lok­anir svæða og ann­arra slíkra tak­mark­ana. Veiði­rétt­ar­gjald­ið – krónur pr. kíló land­aðs afla – myndi ein­fald­lega mót­ast af heild­ar­fram­boði fisk­teg­undar sam­kvæmt ákvörðun stjórn­valda en á hinn bóg­inn af eft­ir­spurn, sókn í hverja fisk­teg­und á hverjum tíma.“

Í stað þess að við­halda núver­andi skömmt­un­ar­kerfi, hvort sem er í formi sérúthlut­aðs kvóta eða sérúthlut­aðra daga, sóknar­marks, til svo­kall­aðra strand­veiða, fer ég að dæmi Adams Smith og kalla eftir frelsi til við­skipta og athafna. Með öðrum orðum, að öllum væri heim­iluð frjáls veiði gegn greiðslu er ein­fald­lega mótað­ist af hinu gamla mark­aðslögmáli um fram­boð og eft­ir­spurn.

Búðin væri því opnuð öllum – en ekki ein­ungis sérútvöldum aðli – og öllum heim­ilað að taka sér það sem hug­ur­inn girntist og þá sjálfsögðu gegn greiðslu. Enda er eng­inn hádeg­is­verður ókeypis, ekki frekar en mjólk, brauð og sulta í Bónus eða Iceland.

Þegar Milton Friedman hélt hádeg­is­fyr­ir­lestra sína lagði hann ríka áherslu á að allir væru vel­komnir en eðli­lega gegn því að hver og einn borg­aði fyrir sig, jafnt fyrir mat­inn sem alla þjónustu, og sér sjálfum fyrir fyr­ir­lestr­ar­flutn­ing­inn og vinn­una við und­irbúning sem og fyrir leigu á sal – eða var það ekki þannig? Eða hver átti ann­ars að borga? Þjóðin? Ríkið? Eða standa í útkasti óverð­ugra við dyrnar? Eða úthluta bestu sæt­unum til útval­ins aðals, ef ekki mátti láta eft­ir­spurn móta verð fyrir tak­markað sæta­fram­boð?

Heiða Skúladóttir hefur verið mik­il­virkur gagnrýnandi á Facebook Kjarnans. Þegar þetta er ritað hefur Heiða afrekað að birta a.m.k. 25 ummæli við jafn­margar kynn­ing­ar­færslur Kjarnans á efni vefrits­ins á ein­ungis innan við hálfum þessum nóvem­bermánuði liðnum frá birt­ingu greinar minnar, og myndi víst æra óstöðugan ef talið væri lengra aftur í tímann.

Fáum sem verða fyrir sleggjudómum Heiðu hlotn­ast sú upp­hefð að vera ekki útnefndir fas­istar, nas­istar, heimsk­ingjar, fábjánar, spilltir, aum­ingjar, vits­muna­skertir, ill­menni, pervertar, geðsturl­aðir eða annað eftir því í gagnrýnand­ans hástemmdu hat­urs­orð­ræðu, svo sem einföld flett­ing gegnum ummæli hennar sannar. Má und­ir­rit­aður því þakka sínum sæla fyrir að vera þó ekki dæmdur harðar fyrir sinn pistil en hvert annað greind­ar­skert kjánaprik:

„Ef kjánaprikið sem skrif­aði þetta bull – vissi hvað frjáls við­skipti væru – væri mögulega hægt að taka mark á honum.

Hann virð­ist halda að evrópsk fas­istalög – bann við veiðum og bann við kaupum á mörkuðum – sé við­skipta­frelsi.

Maðurinn er greind­ar­skertur.“

Þarna er aðeins rétt rúmur hálftími lið­inn frá gagnrýnis­færslu Húnboga Gunnþórssonar og hefði maður þá haldið að nú færi aldeilis að fær­ast fjör í Facebookleikinn. Eða hvað? Var ekki til­gangi beggja einmitt náð – að kveða helst alla umræðu í kútinn, fæla sem flesta frá með sleggjukast­inu?

Eða til hvaða evrópsku fas­ista­laga er Heiða Skúladóttir að vísa? Eða til banns hverra við veiðum hverra? Eða banns við kaupum á hvaða mörkuðum? Við­skipta­frelsi hvað?

Ég mæli hvergi gegn frjálsum fisk­mörk­uðum, ef það eru slíkir mark­aðir sem Heiða hefur í huga, heldur er ég þvert á móti að mæla með því að veiði­heim­ildir verði farið sem hverja aðra vöru eða þjón­ustu á frjálsum mark­aði. Að veiði­rétt­ar­gjald mót­að­ist ein­fald­lega af heild­ar­fram­boði fisk­teg­undar en á hinn bóg­inn af eft­ir­spurn, sókn í hverja fisk­teg­und á hverjum tíma. Á sinn hátt einmitt líkt og ger­ist á opnum, frjálsum fisk­mörk­uðum þegar kemur að því að útgerð­ar­menn selja sjálfan fisk­inn, þá vænt­an­lega að lok­inni greiðslu fyrir veiði­rétt­inn.

Bann við veiðum orða ég heldur hvergi, öðru nær. Ég mæli þvert á mót með að „öllum, sem á annað borð upp­fylltu almenn skil­yrði um búnað veiði­skipa sinna, væri heim­iluð frjáls veiði gegn greiðslu fyrir veiði­rétt­inn þegar afla væri landað,“ svo að ég vísi enn beint í máls­grein­ina hér að ofan beint úr pistli mínum.

Einu evrópsku lögin, svo mér sé kunn­ugt um, sem fjalla um bann við veiðum á Íslands­miðum og útil­oka jafn­framt frjáls við­skipti með íslenskar veiði­heim­ildir á raun­veru­legum opnum mark­aði, eru íslensk. Ég vil þó ekki taka svo djúpt í árinni sem gagnrýnand­inn Heiða, að kalla þau fasísk, ef það eru þau sömu lög sem hún á við. Óneit­an­lega eru íslensk fis­veiði­stjórnun­arlög þó mjög ein­skorðuð við útval­inn hóp og stang­ast þannig í mörgum greinum á við flest evrópsk lög um athafna- og við­skipta­frelsi.

Þannig er útlend­ingum óheim­ilt, sem sagt bannað, að eiga aðild að útgerð í íslenskri lögsögu nema að þeir séu í litlum minni­hluta eig­enda. M.ö.o. skal mik­ill meiri­hluti eign­ar­að­ildar skipa er veiða í íslenskri fisk­veiðilögsögu vera í höndum íslenskra ríkis­borg­ara eða íslenskra lögað­ila sem eru undir yfirráðum íslenskra aðila.

Bann við aðild að veiðum í íslenskri lögsögu er þó miklu víðtækara en svo að nái til útlend­inga einna. Heyrir það reyndar til und­an­tekn­inga, en ekki reglu, að Íslend­ingar geti stundað veiðar á Íslands­miðum nema með afar­kostum, slík er fákeppnin sem lögin stuðla að.

Ein helsta grunn­regla íslenskra fisk­veiði­stjórn­un­ar­laga gerir ráð fyrir að útval­inn hópur Íslend­inga hafi öðl­ast fisk­veiði­rétt í krafti veiða á til­teknu örfárra ára tíma­bili allrar þús­und ára veiði­sögu þjóð­ar­innar. Greiðsla til eig­enda fyrir afnot af nytja­stofnum í sam­eign þjóð­ar­innar, eða með öðrum orðum fyrir afnot af veiði­rétti í for­sjá íslenska rík­is­ins, hefur lengstum verið lítil eða jafn­vel nær engin – og skýtur þó svo skökku vð að hand­höfum veiði­rétt­ar­ins á hverjum tíma hefur verið heim­ilað að versla með eign­ar­rétt rík­is­ins líkt og sér­eign­ar­réttur ein­stak­linga eða fyr­ir­tækja væri að ræða.

Enginn kvótalaus Íslend­ingur, hvað þá útlend­ingur, kemst að soðkötlunum nema fyrir þá afar­kosti að greiða útgerð­armönnum, en sem sagt ekki forsjárað­il­anum, íslenska ríkinu, slíkt verð fyrir veiðiréttinn að myndi ganga að öllum stórútgerðum dauðum ef þær ættu allan sinn úthlut­aða kvóta undir svo hörðum kostum kom­inn.

Svo vel aldir eru útgerð­ar­menn okkar sumir jafn­vel orðnir, að þeir telja sig vera miklu jafn­ari en aðrir í evrópskum og almennt alþjóðlegum skiln­ingi á athafna- og við­skipta­frelsi. Þykir þeim jafn sjálfsagt að meina sem flestum Íslend­ingum og útlend­ingum eðli­legan aðgang að soðkötlunum, sem þeir hafa nánast tekið sér einkarétt á, fyrir atfylgi pólitíkusa sinna og áróðurs­meist­ara, eins og að fara með kvótagróða sinn úr landi og beita honum í hinum klókustu heims­við­skiptum. Gildir þá einu hvort þessir miklu heims­borg­arar arð­ræna bláfátæk strandríki Afríku í nafni alþjóðahyggju og við­skipta­frelsis eða láta mola hrjóta af borðum sínum til hinna ýmsu aflandseyja­skeggja víðsvegar um jörð fyrir aðstoð við að koma sínum fáguð­ustu heims­við­skiptum í skjól, undan samfélags­legri ábyrgð.

Höfundur er áhuga­maður um fisk­veiði­stjórnun

Nokkur helstu lög um fiskveiðistjórnun á Íslandi:

Lög um stjórn fisk­veiða

Lög um veiðar í fisk­veiði­land­helgi Íslands

Lög um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fisk­veiði­land­helgi Íslands

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár