Elon Musk: „Ég trúi þessu ekki enn“

Mikil fram­þróun er nú í geim­vís­indum. Vel heppnuð lend­ing Falcon 9 flaugar SpaceX kemur í kjöl­farið á því að banda­rísk stjórn­völd ákváðu að auka fjár­veit­ingar til NASA upp í 19,3 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 2.400 millj­örðum króna.

Lending Falcon 9 geim­flaugar SpaceX fyr­ir­tæk­is­ins í gær­kvöldi, eftir að hafa komið ell­efu gervi­hnöttum frá sér, þykir eitt stærsta skref sem stigið hefur verið, á sviði þró­unar geim­flauga og ferða um geim­inn. „Ég veit ekki hvað ég á að segja, ég er ekki búinn að átta mig á þessu ennþá, ég trúi þessu ekki enn,“ sagði Elon Musk, hinn 44 ára gamli stofn­andi og stjórn­andi SpaceX, á blaða­manna­fundi eftir lend­ing­una.

Hann var í skýj­unum, en þessi áhrifa­mikli frum­kvöð­ull, sem einnig er stofn­andi Tesla Motors og PayPal, hefur sett sér það mark­mið að stór­efla þróun geim­flauga, með það að mark­miði að draga úr kostn­aði, umhverf­is­á­hrifum og gera almenn­ingi það mögu­legt að ferð­ast út í geim­inn, og í fram­tíð­inni „setj­ast þar að“.

SpaceX hef­ur unnið að því að draga úr kostn­aði við geim­skot með því að gera fyrsta þrep Falcon-eld­flaug­ar­inn­ar end­ur­nýt­an­legt, og þykir lend­ingin í gær stað­festa að fyr­ir­tækið sé á réttri braut, og hafa burði til þess að hafa afger­andi áhrif á gang mál í geim­vís­indum á næstu árum.

Musk seg­ist sann­færður um að við mann­fólkið á jörð­inni þurfum að leggja meiri áherslu á að þróa ferðir um geim­inn, og þar er lend­ing­ar­tækni algjört lyk­il­at­riði að frek­ari fram­þróun. Ekki síst þess vegna þykir lend­ingin í gær mikið afrek.

Hann lýsti lend­ing­unni beint á Twitter, og stað­festi lend­ing­una á jörðu niðri, eftir ferð níu mín­útna flug­ferð. „Velkomin aftur, elskan“ sagði hann í færslu sinni.

Á vef breska rík­is­út­varps­ins BBC, er þessum tíma­mótum lýst sem miklum fram­fara­at­burði í geim­vís­indum en mikil fagn­að­ar­læti brut­ust út í höf­uð­stöðvum SpaceX í nótt þegar fyr­ir­tæk­inu tókst að lenda fyrsta þrepi Falcon-eld­flaug­ar sinn­ar í fyrsta skipti, eftir mis­heppn­aðar til­raunir til þessa.

Af­rekið mark­ar tíma­mót fyr­ir SpaceX en mark­miðið með að lenda eld­flaug­arþrep­inu er að draga veru­lega úr kostn­að­inum við geim­skot. 

Hjá SpaceX starfa nú ríf­lega fjögur þús­und starfs­menn, en fyr­ir­tækið er með höf­uð­stöðvar í Kali­forníu. Elon Musk er bæði for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, og yfir­maður tækni­þró­unar.

Fastlega er búist við því að vel heppnuð lend­ing Falcon 9 muni styrkja stoðir SpaceX, og enn fremur efla þróun geim­flauga og geim­vís­inda.

Lend­ingin kemur í kjöl­farið á því, að banda­rísk stjórn­völd ákváðu að auka fjár­veit­ingar til NASA, geim­vís­inda­stofn­unar Banda­ríkj­anna, til mik­illa muna fyrir næsta ár eða um sem nemur um 1,2 millj­örðum Banda­ríkja­dala. Í heild mun NASA fá 19,3 millj­arða Banda­ríkja­dala. Það er upp­hæð sem nemur um 2.400 millj­örðum króna.

„Við erum rétt að byrja,“ sagði Musk, eftir lend­ing­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Geimvísindi

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár