Langar ekki aftur til Spánar en finnur enga leið til að vera

Gema Borja Conde hefur staðið vakt­ina í ferða­manna­verslun í mið­bænum und­an­farna mán­uð­ina. Hún segir að það hafi verið und­ar­leg til­finn­ing þegar ferða­menn­irnir hurfu úr mið­borg­inni. Nú er hún búin að missa vinn­una og spari­féð brátt á þrotum, svo hún fer lík­leg­ast aftur heim til Spánar fljót­lega þó hana langi frekar að búa hér.

Líður vel hér
Líður vel hér Gema segir stöð­una sem upp er komin setja allar hennar áætl­anir um að setj­ast að á Íslandi úr skorðum. Mynd: Heida Helgadottir

Gema Borja Conde kom til Íslands í lok ágúst í fyrra til að læra við Háskóla Íslands. Námið hér var hluti af gráðu hennar í spænsku við Háskól­ann í Sevilla, hennar heimabæ. Aðeins tveimur mán­uðum eftir að hún kom til Íslands var hún komin með vinnu með­fram skól­anum, í ferða­manna­versl­un­inni Lundanum. Hún hafði séð fyrir sér að í fram­tíð­inni myndi hún verða spænsku­kenn­ari á Spáni en ætl­aði að dvelja á Íslandi í nokkur ár. Eftir því sem mán­uð­irnir liðu leið henni æ betur hér og hún var farin að gæla við þá hug­mynd að setj­ast hér alfarið að. Höggið vegna COVID-19 setur hins vegar allar hennar áætl­anir úr skorðum. „Þetta var svo skrýtið. Einn dag­inn var brjálað að gera hjá okkur í versl­un­inni, troð­fullt allan dag­inn. Næsta dag komu bara nokkrar hræður og dag­inn eftir það eng­inn. Það var furðu­legt að upp­lifa þessar breyt­ingar,“ rifjar hún upp. 

Búðin var …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár