Þriðjungur kostnaðar til kominn vegna þjónustu við fatlað fólk með vímuefnavanda

Reykja­vík­ur­borg telur úrræði sem borgin heldur úti fyrir fatlað fólk með virkan vímu­efna­vanda með þegar hún tekur saman útlagðan kostnað sinn við mála­flokk heim­il­is­lausra. Enginn íbúi í Sel­tjarn­ar­nesbæ telst heim­il­is­laus þessa stund­ina.

Sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar sagði í nýlegu minnisblaði að málaflokkur heimilislausra sé orðinn of stór málaflokkur til að hann geti hvílt á herðum borgarinnar einnar.
Sviðs­stjóri vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar sagði í nýlegu minn­is­blaði að mála­flokkur heim­il­is­lausra sé orð­inn of stór mála­flokkur til að hann geti hvílt á herðum borg­ar­innar einnar. Mynd: Bára Huld Beck

Af þeim rúm­lega 1,5 millj­örðum króna sem Reykja­vík­ur­borg sagði Kjarn­anum nýlega að varið hefði verið til mála­flokks heim­il­is­lausra í borg­inni á fyrstu tíu mán­uðum síð­asta árs fóru tæpar 460 millj­ónir króna í rekstur tveggja búsetu­úr­ræða fyrir fatlað fólk með virkan vímu­efna­vanda og 111 millj­ónir í rekstur eða stuðn­ing við alls fimm áfanga­heim­ili.

Rúmar 499 millj­ónir króna fóru í rekstur þeirra þriggja neyðar- eða gisti­skýla fyrir heim­il­is­laust fólk sem starf­rækt eru í borg­inni og 459 millj­ónir króna í mála­flokk heim­il­is­lausra með miklar og flóknar þjón­ustu­þarfir. [links]

Síð­ast­nefnda upp­hæðin sund­ur­lið­ast þannig að á fyrstu tíu mán­uðum síð­asta árs fóru 125 millj­ónir króna í rekstur búsetu­úr­ræðis við Njáls­götu, 189 millj­ónir í rekstur búsetu­úr­ræðis við Hring­braut og 144 millj­ónir í starf­semi VoR-teym­is­ins, vett­vangs- og ráð­gjafateymis sem borgin heldur úti í mála­flokknum.

Þetta kemur fram í svari borg­ar­innar við fyr­ir­spurn Kjarnans, þar sem fal­ast var eftir nán­ari sund­ur­liðun á þeirri upp­hæð sem upp­lýs­inga­full­trúi borg­ar­innar nefndi í fyrra svari sínu, en Kjarninn sagði frá því skömmu fyrir jól að á fyrstu 10 mán­uðum árs­ins 2022 hefði Reykja­vík­ur­borg varið rösk­lega 1,5 millj­örðum króna í mála­flokk heim­il­is­lausra.

[adspot]

Upp­lýs­ing­arnar eru að finna sund­ur­lið­aðar í minn­is­blaði sem tekið var saman af hálfu sviðs­stjóra vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar á aðvent­unni, en mál­efni heim­il­is­lausra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa verið mjög í deigl­unni í því kulda­kasti sem staðið hefur yfir und­an­farnar vikur og var brugð­ist við með því að hafa gisti­skýli opin yfir dag­inn.

Það þykir þó ekki heppi­leg lausn til lengri tíma, sökum þess að starfs­fólk neyð­ar­skýla er orðið lang­þreytt, erfitt er að fá fólk til starfa og aðstæður í neyð­ar­skýl­unum henta illa sem vist­ar­verur allan sól­ar­hring­inn.

Í sama minn­is­blaði sviðs­stjóra vel­ferð­ar­sviðs sagði að ljóst væri að þjón­usta við heim­il­is­lausa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu gæti ekki áfram „hvílt á herðum Reykja­vík­ur­borgar án aðkomu eða fjár­hags­stuðn­ings ríkis, sveit­ar­fé­laga og ann­arra hjálp­ar­stofn­ana“.

„Verk­efnið er ein­fald­lega of stórt til að áfram verði haldið á sömu braut,“ sagði í minn­is­blað­inu.

Í svari Reykja­vík­ur­borgar til Kjarnans kom fram að á fyrstu 10 mán­uðum árs­ins hefði borgin fengið 28,5 millj­ónir króna greiddar frá öðrum sveit­ar­fé­lögum vegna íbúa þeirra sem nýtt hefðu þjón­ustu gisti­skýla.

Önnur sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins í samtali um málaflokkinn

Sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, önnur en Reykja­vík­ur­borg, eru um þessar mundir í sam­starfi um mála­flokk heim­il­is­lausra og að vinna að úttekt um mála­flokk­inn á vett­vangi Samtaka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Kjarn­inn beindi fyr­ir­spurnum um útlagðan kostnað vegna mála­flokks til þess­ara sveit­ar­fé­laga og þegar fyrri frétt mið­ils­ins fór í loftið á Þor­láks­messu höfðu svör borist frá Kópa­vogsbæ og Hafn­ar­firði.

Kópa­vogs­bær sagð­ist hafa greitt rúmar 16 millj­ónir króna fyrir 772 gistinætur í gisti­skýlum á vegum Reykja­vík­ur­borgar, auk þess sem áætl­aður kostn­aður bæj­ar­ins við rekstur áfanga­heim­ilis fyrir 8 karl­menn að Dal­brekku væri 32 millj­ónir króna.

Hafn­ar­fjarð­ar­bær sagði hins vegar „mjög erfitt að segja til um árlegan kostnað Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar vegna þjón­ustu við heim­il­is­laust fólk“ og einnig kom fram í svari bæj­ar­ins að raun­hæf heild­ar­mynd á kostn­aði kall­aði gögn frá mörgum ólíkum aðilum sem hefðu sömu skil­grein­ing­una á heim­il­is­leysi.

Enginn telst heimilislaus á Seltjarnarnesi

Síðan að þessi svör bár­ust Kjarn­anum í aðdrag­anda jóla hafa Mos­fells­bær og Sel­tjarn­ar­nes­bær einnig svarað fyr­ir­spurn mið­ils­ins. Mos­fells­bær greiddi Reykja­vík­ur­borg rúmar 5,8 millj­ónir fyrir gistinætur í neyð­ar­skýlum á síð­asta ári, auk þess sem bær­inn greiddi gisti­heim­ili í Mos­fellsbæ 233 þús­und krónur fyrir gist­ingu innan sveit­ar­fé­lags­ins.

Í svari frá Sel­tjarn­ar­nesbæ kemur fram kostn­aður bæj­ar­ins vegna mála­flokks heim­il­is­lausra hefði ein­skorð­ast við það að greiða Reykja­vík­ur­borg fyrir gistinætur í neyð­ar­skýlum.

Í svar­inu frá bænum sagði að árið 2021 hefði eng­inn ein­stak­lingur með lög­heim­ili á Sel­tjarn­ar­nesi nýtt sér þjón­ustu neyð­ar­skýl­anna, en árið 2022 hafði Sel­tjarn­ar­nes greitt fyrir þrjár nætur.

„Í dag telst eng­inn ein­stak­lingur með lög­heim­ili á Sel­tjarn­ar­nesi með stöðu sem heim­il­is­laus. Ávallt er reynt að koma í veg fyrir að sú staða komi upp og í því sam­bandi má nefna að nú er til skoð­unar, í sam­starfi við sveit­ar­fé­lögin í Kraganum, hvernig koma megi til móts við heim­il­is­lausa,“ segir í svari bæj­ar­ins til Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár