Leggja til miklar breytingar á menntastefnunni

Sjálf­stæð­is­menn vilja breyt­ingar á mennta­málum þjóð­ar­innar.

Sjálf­stæð­is­menn í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd lands­fundar flokks­ins vilja að stefnu í mennta­málum verði breytt með marg­vís­legum áherslu­breyt­ingum.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kom inn á mennta­mál í setn­ing­ar­ræðu sinni í gær og sagði meðal ann­ars að það væri umhugs­unar efni, að fjöl­breytni í rekstr­ar­formum í skóla­málum væri mun meira á öðrum Norð­ur­löndum heldur en á Íslandi.

Í ályktun um mennta­mál segir að endu­meta þurfi rekstr­ar­form og nýsköpun í skóla­starfi. „Fjöl­breytt rekstr­ar­form, nýsköpun og minni mið­stýr­ing í skóla­starfi er mik­il­vægur þáttur í að auka gæði mennta­kerf­is­ins. Auka þarf gæða­mat og gera sam­ræmda mæli­kvarða til að meta árangur skóla og skóla­stiga. Mælingar á gæðum í íslensku skóla­starfi benda til þess að ýmsu sé ábóta­vant, einkum á grunn­skóla­stigi. Má í því sam­hengi nefna nið­ur­stöður PISA kann­ana og sér­stak­lega náms­ár­angur ungra drengja. Leggja þarf aukna áherslu á lestur, stærð­fræði og nátt­úru­vís­indi til að tryggja að íslenskir nem­endur séu ekki eft­ir­bátar í alþjóð­legu til­liti og til að bæta gæði skóla­starfs. Fjár­mála­læsi er einnig mik­il­væg grund­vall­ar­færni sem skilar sér í auknum skiln­ingi, betri ákvarð­ana­töku og fjár­hags­legri ábyrgð ein­stak­linga, sem stuðlar aftur að auk­inni hag­sæld. Athuga þarf sér­stak­lega stöðu drengja í skóla­kerf­inu, en þriðj­ungur drengja getur ekki lesið sér til gagns við útskrift úr grunn­skóla og drengir eru ein­ungis þriðj­ungur af nýnemum í háskólum,“ segir í ályktun nefnd­ar­innar.

Þá er einnig fjallað um mik­il­vægi þess að tengja mennta­stefnu þjóð­ar­innar við þarfir atvinnu­lífs­ins á hverjum tíma, og að grund­vall­ar­for­senda skóla­starfs­ins verði sú að jöfn tæki­færi verði fyrir alla. „Hag­vöxtur, bætt lífs­kjör og sam­keppn­is­hæfni Íslands byggja á menntun og vís­inda­starfi. Góð menntun er grund­vall­ar­for­senda jafnra tæki­færa og lyk­ill að lífs­gæðum ein­stak­linga, opnu sam­fé­lagi og er for­senda öfl­ugs atvinnu­lífs og sam­keppn­is­hæfni. Auka þarf náms­fram­boð og fjölga sjálf­stætt starf­andi skólum. Miklar breyt­ingar eru að verða á atvinnu­lífi og vinnu­mark­aði sem færa okkur í senn nýjar áskor­anir og tæki­færi, bæði fyrir fyr­ir­tæki og ein­stak­linga. Þar má nefna öra þróun þekk­ingar og tækni með þeirri auknu sjálf­virkni­væð­ingu sem 4. iðn­bylt­ingin hefur í för með sér, bæði inn­an­lands og á alþjóða­mark­aði, stór­auk­inn fjölda inn­flytj­enda á íslenskum vinnu­mark­aði og breytta ald­urs­sam­setn­ingu þjóð­ar­innar. Fjöldi núver­andi starfa mun úreld­ast og ný verða til. Slíkt hefur jafn­framt þá hættu í för með sér að þeir sem í dag sinna störfum sem munu hverfa, missi hæfni sína til þátt­töku á vinnu­mark­aði. Því er fjöl­breyti­legt, skap­andi og hag­kvæmt mennta­kerfi lyk­ill­inn að kraft­miklu og arð­skap­andi atvinnu­lífi þar sem fólk mun þurfa að mennta sig alla ævina með sí- og end­ur­menntun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár