Fjármálaeftirlitið sektaði Fossa fyrir að klæða kaupauka í búning arðgreiðslna

Fossar mark­aðir fengu fyrr í sumar 10,5 millj­óna króna stjórn­valds­sekt frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu fyrir arð­greiðslur til hlut­hafa úr hópi starfs­manna, sem FME segir ólög­mætar. Fossar ætla að vísa mál­inu til dóm­stóla til þess að „eyða óvissu“ um fram­kvæmd­ina.

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands birti niðurstöðuna í máli Fossa síðasta föstudag.
Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands birti nið­ur­stöð­una í máli Fossa síð­asta föstu­dag. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fjár­mála­eft­ir­litið lagði fyrr í sumar 10,5 millj­óna króna stjórn­valds­sekt á fjár­mála­fyr­ir­tækið Fossa mark­aði hf., vegna þess sem FME álítur að hafi verið kaupauka­greiðslur til starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins á árunum 2016 og 2017. FME sagði í ákvörðun sinni að fyr­ir­tækið hefði brotið gegn a-lið 57. greinar laga um fjár­mála­fyr­ir­tæki og reglum sem settar eru á grund­velli þess ákvæðis.

Fyr­ir­tækið er ekki sam­mála ákvörðun FME og segir Haraldur Þórð­ar­son for­stjóri þess í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að stjórn Fossa telji rétt að leita til dóm­stóla til þess að meta lög­mæti sekt­ar­á­kvörð­un­ar­innar.

Málið á sér hart­nær þriggja ára aðdrag­anda og snýst um arð­greiðslur til hand­hafa svo­kall­aðra B-hluta­bréfa í fjár­mála­fyr­ir­tæk­inu, sem starfar á verð­bréfa­mörk­uðum hér á landi og einnig erlendis.

Fram kemur í ákvörðun FME að eig­endur bréf­anna séu starfs­menn Fossa mark­aða auk eins stjórn­ar­manns fyr­ir­tæk­is­ins og að eign­ar­haldið á bréf­unum virð­ist tengj­ast vissum störfum innan félags­ins. Bendir FME meðal ann­ars á að B-hlutir hafa aldrei verið í eigu ann­arra en þeirra sem starfað hafa fyrir félagið, en hluta­flokknum fylgir réttur til arðs sem hafi á árunum 2016-2019 numið 44,94-46,84 pró­sentum af hagn­aði síð­asta rekstr­ar­árs, en hlut­fall hluta­flokks­ins hafi á sama tíma ein­ungis verið á bil­inu 7,5-23,6 pró­sent af heild­ar­hlutafé félags­ins sam­kvæmt sam­þykktum þess.

FME segir, í stuttu máli, að þessar arð­greiðslur sé ekki hægt að leggja að jöfnu við venju­legar arð­greiðslur af fjár­fest­ingum í hluta­bréfum. Áhættan sé mun minni og hagn­að­ar­von eig­enda B-bréfa einnig meiri.

[adspot]

„Frá og með árinu 2016 hefur heild­ar­fjár­hæð B-hluta félags­ins numið frá kr. 21.250.000 til kr. 30.350.000, en arð­greiðslur til eig­enda hlut­anna hafa frá og með sama ári numið sam­tals kr. 344.997.231. Svo mik­ill munur á fjár­hags­legri áhættu og hagn­aði bendir til þess að önnur sjón­ar­mið en öflun hluta­fjár hafi ráðið ferð­inni þegar félagið skipti hlutafé í A og B flokk,“ segir FME í nið­ur­stöðu sinni.

Augljósar kaupaukagreiðslur, sagði FME

Fossar gerðu marg­vís­legar athuga­semdir við aðfinnslur FME, sem sagði hins vegar að það teldi „ekk­ert í mál­flutn­ingi Fossa hagga þeirri nið­ur­stöðu að í arð­greiðslum til B-hlut­hafa hafi falist kaup­auki“ í skiln­ingi laga og reglna. FME er afdrátt­ar­laust í þeirri afstöðu sinni og segir að í arð­greiðsl­unum hafi falist end­ur­gjald fyrir störf í þágu Fossa, þrátt fyrir að „téður kaup­auki hafi verið klæddur í bún­ing arð­greiðslna“.

Segir í ákvörðun FME að á árunum 2016 og 2017 hafi hlut­fall kaupauka­greiðslna í formi arðs numið á bil­inu 52-89 pró­sentum af árs­launum starfs­manna Fossa mark­aða sem skráðir voru fyrir B-bréfum.

Málið hefur tekið langan tíma, helst þar sem bið var á því á meðan nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms Reykja­víkur í svip­uðu máli fjár­mála­fyr­ir­tæk­is­ins Arctica Finance var beðið. Í ljósi þessa er stjórn­valds­sektin milduð, en ein­ungis er sektað fyrir brot Fossa gegn lögum og reglum á árunum 2016 og 2017, en ekki árin 2018 og 2019, þegar með­ferð máls­ins var í bið hjá FME.[links] 

Arctica Finance var dæmt til þess að greiða 24 millj­óna króna sekt með dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, en áður hafði FME lagt 72 millj­óna króna stjórn­valds­sekt á fyr­ir­tækið.

Fossar ætla að skjóta ákvörðuninni til dómstóla

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til Fossa vegna ákvörð­un­ar­innar, um hvort fyr­ir­tækið myndi una nið­ur­stöðu FME í mál­inu eða grípa til ein­hverra aðgerða. Haraldur Þórð­ar­son for­stjóri svar­aði og sagði að ljóst væri að um „mats­kennt lög­fræði­legt álita­efni að ræða“ og því teldi stjórn Fossa rétt að leita til dóm­stóla til að meta rétt­mæti ákvörð­un­ar­innar.


„Í áliti FME segir að almennt banni ekk­ert starfs­mönnum og stjórn­ar­mönnum fjár­mála­fyr­ir­tækja að fjár­festa í hluta­bréfum vinnu­veit­enda. Einnig er við­ur­kennt að starfs­menn og stjórn­ar­menn eigi almennt kröfu um arð af fjár­fest­ingum sínum án þess að þær greiðslur telj­ist til kaupauka. Hins vegar er svig­rúm til að túlka og skil­greina arð­greiðslur af hluta­bréfum sem kaupauka þó nokk­urt að mati eft­ir­lits­ins. Engar við­mið­un­ar­reglur eru til um þetta álita­efni og því er nauð­syn­legt að eyða þeirri óvissu sem skap­ast hefur,“ segir for­stjór­inn í svari sínu.

Engin krafa um úrbætur

Haraldur bætir við að Fossar mark­aðir hafi alla tíð lagt ríka áherslu á að allir þættir starf­sem­innar séu í sam­ræmi við lög og reglur sem um fjár­mála­fyr­ir­tæki gilda og átt upp­byggi­leg sam­skipti við Fjár­mála­eft­ir­litið frá því að félagið hóf starf­semi.

„Línan í þessu máli er hins vegar óljós. Þrátt fyrir ágrein­ing var samt strax tekin ákvörðun um að aðlaga sam­þykktir Fossa mark­aða um arð­greiðslur til hlut­hafa að athuga­semdum sem komu frá FME. Það eru því ekki gerðar neinar kröfur um úrbætur í ákvörðun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins og því ljóst að Fossar upp­fylla nú þegar öll skil­yrði lag­anna eins og þau eru túlkuð af eft­ir­lit­inu óháð nið­ur­stöðu í dóms­mál­inu,“ skrifar Haraldur, en í nið­ur­stöðu FME segir hið sama, að hlut­hafar Fossa hafi í maí sam­þykkt nýjar sam­þykktir, þar sem gert er ráð fyrir miklum breyt­ingum á B-flokki hluta­bréfa, sem valdi því að ekki er lengur efni til að fara fram á úrbætur.

Ákvörðun FME er dag­sett 10. júní, en var birt opin­ber­lega síð­asta föstu­dag á vef Seðla­bank­ans. Fjár­mála­eft­ir­lits­nefnd tók nýlega ákvörðun um að fram­vegis verði slíkar ákvarð­anir birtar opin­ber­lega á vef Seðla­bank­ans nema birt­ing sé „talin stefna hags­munum fjár­mála­mark­að­ar­ins í hættu, varði hún ekki hags­muni mark­að­ar­ins sem slíks eða ef ætla má að birt­ing hennar valdi hlut­að­eig­andi aðilum tjóni sem telst ekki í sam­ræmi við til­efni ákvörð­un­ar­innar“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hlutabréfamarkaðir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár