Fallist á að arðgreiðslur hafi verið kaupauki en sektargreiðsla lækkuð

Fjár­mála­eft­ir­litið hafði áður sektað Arctica Finance um 72 millj­ónir króna, en sú upp­hæð var lækkuð niður í 24 millj­ónir, sam­kvæmt dómi hér­aðs­dóms í dag.

Með dómi í dag var stjórn­valds­sekt sem Fjár­mála­eft­ir­litið lagði á fjár­mála­fyr­ir­tækið Arctica Finance, upp á 72 millj­ónir, í sept­em­ber 2017, lækkuð niður í 24 millj­ónir króna, og ber rík­is­sjóði að end­ur­greiða mis­mun­inn, 48 millj­ónir króna, með vöxtum.

Arctica Finance stefndi FME vegna ákvörð­un­ar­innar, sem byggði á því að arð­greiðslur til starfs­manna hefðu brotið gegn reglum um kaupauka.

Dómurinn féllst á að arð­greiðslur til starfs­manna Arctica Finance hf. hafi í raun verið kaup­auki, en fall­ist var að hluta á kröfu Arctica Finance hf. um að ógilda fram­an­greinda ákvörðun og lækka sekt­ar­fjár­hæð­ina, eins og áður segir.

Nánar til­tekið taldi hér­aðs­dómur að þær reglur, sem Fjár­mála­eft­ir­litið studdi ákvörðun sína við fyrir tíma­bilið 2012-2015, hafi ekki haft næga laga­stoð sem við­ur­laga­heim­ild, að því er segir í til­kynn­ingu FME.

„Hér­aðs­dómur taldi á hinn bóg­inn að ákvörðun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins vegna áranna 2016 og 2017 hafi haft næga stoð í lögum, en 57. gr. a laga nr. 161/2002 um fjár­mála­fyr­ir­tæki, sem ætlað var að tak­marka kaupauka­greiðslur fjár­mála­fyr­ir­tækja, var breytt í júlí 2015. Á grund­velli þessa var ákvörðun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins stað­fest að hluta, en fjár­hæð sektar, sem Fjár­mála­eft­ir­litið hafði lagt á Arctica Finance hf., lækkuð,“ segir í til­kynn­ingu FME.

Í dómnum segir að ekki verði fall­ist á það, að mik­ill vafi hafi verið uppi um hvernig túlka bæri reglur varð­andi arð­greiðsl­urnar. Ákvörðun FME byggði á því að fyr­ir­tækið hefði greitt til­teknum starfs­mönnum, sem jafn­framt voru hlut­hafar í svo­nefndum B, C- og D-flokkum, kaupauka í formi arðs af hlutum sínum í félag­inu á árunum 2012 til 2017, og var þetta talið vera brot.

„Svo sem áður greinir telur dóm­ur­inn að leggja verði til grund­vallar að ein­ungis hafi verið gild refsi­heim­ild fyrir hendi vegna hátt­semi stefn­anda vegna kaupauka­greiðslna fyrir árin 2016 og 2017 og verður við ákvörðun stjórn­valds­sektar að taka mið af því. Í þessu felst einnig að ekki verður litið svo á að brot stefn­anda hafi staðið yfir í langan tíma, svo sem gengið er út frá í hinni umstefndu ákvörðun. Svo sem áður greinir upp­lýsti stefn­andi stefnda, Fjár­mála­eft­ir­litið, með ítar­legum hætti um það fyr­ir­komu­lag sitt við arð­greiðslur sem hér um ræðir á árinu 2011 og óskaði eftir við­brögðum hans. Á hinn bóg­inn fellst dóm­ur­inn ekki á það með stefn­anda að neinn raun­veru­legur vafi hafi verið uppi um túlkun þeirra reglna sem hér um ræðir frá og með fyrr­nefndri gild­is­töku laga nr. 57/2015 þannig að þýð­ingu hafi við mat á hátt­semi hans og fjár­hæð sektar. Þá hafði stefn­andi enga ástæðu til að ætla, eftir gild­is­töku lag­anna, að áðurlýst fyr­ir­komu­lag við kaupauka­greiðslur sam­ræmd­ist þeim lögum og reglum sem honum var ætlað að starfa eftir. Að þessu virtu, en að öðru leyti með vísan til for­sendna umræddrar ákvörð­unar stefnda, Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, þykir stjórn­valds­sekt stefn­anda hæfi­lega metin 24.000.000 króna vegna kaupauka­greiðslna á árunum 2016 og 2017,“ segir í dómi hér­aðs­dóms.

Dómari í mál­inu var Skúli Magn­ús­son. Lögmaður Arctica Finance var Steinar Guð­geirs­son hrl. en lög­maður FME Jóhannes Karl Sveins­son hrl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár