Allt að 350 manns mega fara ofan í Laugardalslaug strax á miðnætti 18. maí

Sund­laugar Reykja­vík­ur­borgar geta tekið á móti á milli 110 og 350 manns í einu þegar leyfi­legt verður að opna þær á ný á mánu­dag. Til stendur að hafa næt­uropnun í sund­laugum borg­ar­innar aðfara­nótt mánu­dags.

Laugardalslaugin mun geta tekið við 350 gestum þegar sundlaugarnar opna á ný.
Laug­ar­dals­laugin mun geta tekið við 350 gestum þegar sund­laug­arnar opna á ný. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sund­laugar Reykja­vík­ur­borgar munu opna strax á mið­nætti á mánu­dag­inn og verða opnar allar nótt­ina. Þetta er gert til þess að skapa stemn­ingu, en líka til þess að koma í veg fyrir að það verði örtröð í sund­laug­unum á mánu­dags­morgun, segir Steinþór Ein­ars­son, skrif­stofu­stjóri rekstrar og þjón­ustu hjá ÍTR.

Laug­arnar mega vera á hálfum afköstum fyrst um sinn. Það þýðir að í stærstu laug borg­ar­innar, Laug­ar­dals­laug, mega allt að 350 gestir vera á sama tíma, en not­ast verður við helm­ing­inn af skáp­unum sem eru í boði og laug­inni verður síðan skipt upp í sjö 50 manna svæði.

Fyrst um sinn mun 192 manns geta mætt á sama í Breið­holts­laug, 120 í Sund­höll­ina og Árbæj­ar­laug, 115 í Vest­ur­bæj­ar­laug og 110 í Graf­ar­vogs­laug, sam­kvæmt svari Stein­þórs við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Hann segir einnig að 2. júní sé reiknað með að hækka leyfi­legan gesta­fjölda upp í 75 pró­sent af hámarks­fjöld­anum og að sund­laug­arnar verði komnar á full afköst 15. júní.

Steinþór segir að unnið hafi verið að því að útfæra fyr­ir­komu­lag sund­ferða í sam­starfi við land­lækn­is­emb­ættið og fleiri und­an­farnar vikur og nú séu skýrar leið­bein­ingar til, sem farið sé eftir. Hann segir það á ábyrgð hvers og eins sund­gestar að virða tveggja metra regl­una ofan í laug­unum eins og ann­ars staðar í sam­fé­lag­inu.

Steinþór býst við því að opnun sund­laug­anna verði vel tekið, enda hafi sím­inn og tölvu­póst­ur­inn hjá honum „varla stoppað“ und­an­farna tvo mán­uði vegna fyr­ir­spurna um hvort ekki fari að verða mögu­legt að baða sig í laug­unum á ný.

Allt að 200 manns mega fara Ásvallalaug í Hafnarfirði

Kjarninn sendi líka fyr­ir­spurn á Hafn­ar­fjarð­arbæ til þess að fá að heyra hversu margir gætu dýft sér í hafn­firsku laug­arnar. Árdís Ármanns­dóttir sam­skipta­stjóri bæj­ar­ins segir að unnið hafi verið að því að heim­færa til­mæli og við­mið yfir­valda á hvern stað fyrir sig.

„Hjá okkur þýðir þetta að í Ásvalla­laug getum við tekið á móti 200 manns frá og með mánu­degi og vöktum svo sér­stak­lega öll skil­greind rými á hverjum stað miðað við 50 manns. Í Sundhöll Hafn­ar­fjarðar verður hámarks­fjöld­inn 32,“ segir Árdís.

Hún bætir við að vegna umfangs­mik­illa við­halds­fram­kvæmda við Suð­ur­bæj­ar­laug verði ekki hægt að opna þar fyrr en 25. maí. Þá er reiknað með að í mesta lagi 30 manns geti farið í sund á sama tíma til að byrja með, á úti­svæði laug­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár