Formaður Eflingar lýsir yfir stuðningi við Drífu Snædal

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, hefur lýst yfir stuðn­ingi við Drífu Snædal í stól for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands.

Styður Drífu
Styður Drífu Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, hefur lýst yfir stuðn­ingi við fram­boð Drífu Snædal til for­seta ASÍ.

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, hefur lýst yfir stuðn­ingi við fram­boð Drífu Snædal í emb­ætti for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ). Efling er næst stærsta aðild­ar­fé­lag ASÍ svo vænt­an­lega munar miklu um stuðn­ings­yf­ir­lýs­ing­una. Drífa er fram­kvæmda­stjóri Starfs­greina­sam­bands Íslands.

Sólveig Anna birtir færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hún lýsir yfir stuðn­ingnum. Segir Sólveig Drífu vera sanna bar­áttu­mann­eskju og tals­mann fyrir hags­muni lág­launa­fólks á Íslandi. „Hún til­heyrir fram­varða­sveit þeirra sem barist hafa ötul­lega gegn þeirri við­ur­styggi­legu fram­komu sem tíðkast gagn­vart við­kvæm­asta hópi þeirra sem starfa hér á landi; aðflutts verka­fólks sem lendir í marg­þættum vanda og á sér fáa málsvara. 

Í þeirri bar­áttu sem framundan er, þar sem verka­fólk og lág­launa­fólk hyggst sækja efna­hags­legt og sam­fé­lags­legt rétt­læti sér til handa, skiptir gríð­ar­miklu máli hver velst til að leiða Alþýðu­sam­band Íslands.

Ég tel að emb­ætti for­seta ASÍ eigi að vera skipað mann­eskju eins og Drífu; mann­eskju sem hefur sýnt og sannað að hún stendur með því fólki sem á undir högg að sækja á íslenskum vinnu­mark­aði, mann­eskju sem skilur að sú mikla mis­skipt­ing sem nú er til staðar á Íslandi er upp­spretta stór­kost­legra vanda­mála og að ráð­ast verður í það mik­il­væga verk­efni að búa verka og lág­launa­fólki gott og mann­sæm­andi líf.

Ég lýsi því hér með yfir stuðn­ingi við Drífu Snædal í emb­ætti for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands.“

43. þing ASÍ fer fram dag­ana 24. til 26. októ­ber næst­kom­andi. Gylfi Arn­björns­son, for­seti sam­bands­ins, hefur gefið út að hann hygg­ist víkja úr stóli for­seta á þing­inu. Tvö hafa gefið út að þau gefi kost á sér í stól for­seta, Drífa og Sverrir Mar Alberts­son, fram­kvæmda­stjóri AFLs starfs­greina­sam­bands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár